Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 30
Alexander Jarl klæðist hér fötum úr Hummel NEO línunni. Bakpokinn er frá TIMBUK2. MyNdIr/HANNA
Hettupeysa úr smiðju $QUAd. Fleiri föt eru væntanleg frá þeim.
Alexander Jarl, annar meðlima rappsveitar-
innar JARL $QUAD, setur þægindin í fyrsta
sæti þegar kemur að fatastíl og tísku. „Þæg-
indi skipta mig mestu máli. Ég verð helst
að geta spilaði körfubolta úti á velli, farið
þaðan beint upp á svið og stoppað svo í rækt-
inni eftir tónleika án þess að skipta um föt.
Þannig að ég er mikið að vinna með tískuleg
íþróttaföt og helst frá merkinu Hummel.“
Hann segir tískuáhugann hafa vaknað
þegar hann hóf að koma fram með hljóm-
sveit sinni. „Ég fór úr FUBU-merkinu í
þröngar gallabuxur mjög fljótlega. Nú erum
við í hljómsveitinni komnir á það stig að
hanna eigin hettupeysur og boli. Jón Gunn-
ar Zoëga, sem rekur fatamerkið Modern
Day Slaves, hefur hjálpað okkur mikið með
að hanna snið. Þessa dagana erum við með
$QUAD-íþróttabuxur í vinnslu.“
Áhrif frÁ rappsenunni
Þrátt fyrir skemmtilegan fatastíl segist hann
ekki fylgjast meðvitað með tísku en vera
vissulega undir áhrifum frá bandarísku og
skandin avísku rappsenunni. „Hérna heima
eru uppáhaldsverslanirnar mínar Inklaw,
Hummel og Nike en uppáhaldsflíkin mín er
einmitt sérsniðinn Inklaw denim-jakki. Ég
hef eytt miklum tíma í Bandaríkjunum en
þar kaupi ég aðallega íþróttaföt. Þó hef ég
slysast til að panta mér föt frá ASOS en mér
finnst það of mikil áhætta. Fyrir utan ein-
staka fatamerki þá er ég mikið fyrir gull-
keðjur, hringi á litla fingri og úr en þó aðal-
lega á tónleikum eða öðrum viðburðum. Ég
fer ekkert þannig klæddur að versla í Krón-
unni.“
Aðspurður um bestu og verstu fatakaup
segir hann hvort tveggja eigi í raun við sömu
flíkina. „Ég keypti einu sinni svarta Ver-
sace-silkiskyrtu sem var allt of stór. Tuttugu
kílóum síðar er hún enn eins og tjald. Þetta
eru því verstu kaupin því hún er risastór og
þau bestu því hún er Versace-silkiskyrta,
fjandakornið!“
næg verkefni framundan
Það er alltaf nóg að gera hjá félögunum í
JARL $QUAD. „Við erum að hanna meira af
fötum, ætlum að halda tónleika um allt land
og halda áfram að vinna í nýju efni. Næstu
stóru tónleikar hjá okkur verða Airwaves
í nóvember. Við munum örugglega gefa út
stóra plötu en það verður ekki á næstunni.
Þegar ég geri stóra plötu mun ég setja allan
minn tíma og orku í hana en ég einfaldlega
hef ekki tíma núna. Svo á ég von á dóttur í
lok september og fjölskyldan verður alltaf í
fyrsta sæti. Við munum þó henda í smáskíf-
ur og myndbönd reglulega út árið.“
Þægindin alltaf í
fyrsta sætinu
Tónlistarmaðurinn Alexander Jarl klæðist helst tískulegum íþróttafötum
enda setur hann þægindin í fyrsta sæti þegar kemur að fatastíl og tísku.
$QUAd bolur sem hljómsveitarfélagarnir hanna saman.
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Nýjar haustvörur
Allt sem þú þar ...
Gallup, apríl–júní 2016.
íbúa á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu
12–80 ára lesa Fréttablaðið daglega.*
57,4%
Sá öldi myndi fara langt með að fylla sæti
Laugardalsvallar tíu sinnum.
4 . á g ú s t 2 0 1 6 F I M M t U D A g U R4 F ó l k ∙ k y n n I n g A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n g A R b l A ð ∙ t í s k A
0
4
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
9
-5
0
5
0
1
A
2
9
-4
F
1
4
1
A
2
9
-4
D
D
8
1
A
2
9
-4
C
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K