Fréttablaðið - 04.08.2016, Síða 10
Samfélag Guðni Th. Jóhannesson
forseti og Eliza Reid forsetafrú heim-
sóttu Sólheima í gær. Kynntust þau
þar hverfinu, íbúum þess og þeirri
starfsemi sem þar fer fram. Heim-
sóknin var sú fyrsta hjá forsetahjón-
unum en Guðni tók við embætti á
mánudag.
Fánar voru á lofti og íbúar höfðu
stillt sér upp sitt hvorum megin við
gangstéttina þegar forsetann bar að
garði. Forsetahjónin heilsuðu öllum
og héldu þaðan í Sesseljuhús þar sem
Pétur Sveinbjarnarson, stjórnarfor-
maður Sólheima, flutti fyrirlestur
um samfélagið sjálfbæra. Þá skoð-
uðu forsetahjónin einnig listaverk,
gróðurhús og margt fleira. Þegar
fjöldi manns vildi taka myndir af sér
með Guðna sagði hann að sér liði
eins og rokkstjörnu.
Reynir Pétur Steinunnarson, íbúi
og starfsmaður garðyrkjustöðvar-
innar Sunnu, segir að sér lítist einkar
vel á Guðna og Elizu. „Þetta er mikill
heiður. Þetta er fyrsta opinbera
heimsóknin,“ segir Reynir Pétur.
Þeir Pétur og Guðmundur Ármann
Pétursson, framkvæmdastjóri Sól-
heima, segjast einkar ánægðir með
að Sólheimar séu fyrsti staðurinn
sem forsetinn heimsækir. „Þetta
gefur birtu inn í hjartað,“ segir Guð-
mundur og bætir því við að heim-
sóknin sé mikill heiður.
Guðni segir sjálfur að heimsóknin
hafi verið skipulögð stuttu eftir að
hann náði kjöri. „Mig langaði til þess
að fara hingað. Ég vildi vekja athygli
á því góða starfi sem er unnið hérna
og ég vissi að hvert sem maður fer í
þessu embætti, þá vekur það athygli,“
segir Guðni. Hann segir margt mega
læra af samfélaginu á Sólheimum.
„Samhjálp og sjálfbærni. Þetta
eru stundum innantómir frasar en
hér sjáum við hvað hægt er að gera í
verki,“ segir Guðni. Hann segist vilja
leggja sitt af mörkum í baráttunni
fyrir umhverfisvernd en hann breyti
engu einn síns liðs. Sjálfbærni segist
hann vilja auka í okkar samfélagi og
samhjálpina einnig.
„Hér eru eru íbúar sem þurfa á smá
aðstoð að halda til þess að líða vel og
til þess að ná að sýna hvað í þeim býr
og hér er fólk sem er boðið og búið til
að aðstoða við það. Hér sjáum við í
verki hvað hægt er að gera þegar við
stöndum saman.“
Guðni segir fleiri heimsóknir á
hina ýmsu staði, sem og móttökur
gesta, á döfinni. „Svo kemur pólitíkin
líka og setur svip sinn á atburðarás-
ina frá degi til dags,“ segir hann.
Aðspurður hvort kosið verði í
haust segir Guðni: „Kosið í haust,
miðað við það sem allir hafa sagt frá
því í vor, eða nánast allir.“
thorgnyr@frettabladid.is
Leið eins og rokkstjörnu á Sólheimum
Forseti Íslands og eiginkona hans heimsóttu Sólheima í gær. Heimsóknin var hans fyrsta í embætti. Íbúar Sólheima tóku forsetanum
fagnandi og voru hæstánægðir með að vera fyrstu gestgjafar hans. Forsetinn vill beina athyglinni að mikilvægum hlutum samfélagsins.
Guðni, Eliza og Pétur Sveinbjarnarson fá sér lambakjöt og grænmeti af grillinu.
Valdimar Ingi Guðmundsson, forstöðumaður garðyrkjustöðvarinnar Sunnu, sýnir Guðna og Elizu tómata. Um
átján tonn eru framleidd af tómötum þar ár hvert.
Reynir Pétur Steinunnarson heldur á íslenska fánanum á meðan tekið er á móti Guðna og Elizu. FRéttablaðIð/GVa Eva Guðbjartsdóttir gaf hjónunum ilmolíur, sápur og fleira framleitt á staðnum.
Pétur Sveinbjarnarson sýnir Elizu og Guðna listaverk eftir íbúa.
4 . á g ú S t 2 0 1 6 f I m m t U D a g U R10 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a ð I ð
0
4
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
9
-6
D
F
0
1
A
2
9
-6
C
B
4
1
A
2
9
-6
B
7
8
1
A
2
9
-6
A
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K