Fréttablaðið - 21.07.2016, Síða 17

Fréttablaðið - 21.07.2016, Síða 17
Þegar bankarnir hrundu haustið 2008 sögðu sumir eins og í sjálfs-vörn: írskir bankar eru einnig komnir að fótum fram og varla berum við ábyrgð á því eða hvað? Afneitunin var alger. Kjarni málsins var og er að banka- hremmingar beggja landa voru heima- tilbúnar og áttu rót sína að rekja til vanrækslu stjórnmálamanna, banka- manna og meðreiðarsveina þeirra. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis 2010 og aðrar heimildir bera vitni. Alþingi ályktaði nokkru síðar einum rómi að skýrslan „sé áfellisdómur yfir stjórnvöldum, stjórnmálamönnum og stjórnsýslu, verklagi og skorti á form- festu.“ Dálkahöfundur Irish Times Flintan O‘Toole birti bók 2010 undir heitinu Ship of Fools: How Stupidity and Corruption Sank the Celtic Tiger (Fíflafley: Hvernig heimska og spilling drekktu keltneska tígrisdýrinu). Margt sem þar stendur rímar vel við Ísland. Hvort landið stóð sig betur, Ísland eða Írland? Eftir hrun gerðu margir sér mat úr því að Ísland væri betur í sveit sett en Írland þar eð Íslendingar gætu leyft gengi krónunnar að falla um helming meðan Írar voru bundnir á klafa evrunnar. Aðrir sögðu: Hægan, hægan, Írar eiga aðgang að evrópska seðlabankanum og annarri fjárhagsaðstoð ESB sem Ísland á ekki sjálfkrafa aðgang að. Nú, átta árum síðar, er tímabært að spyrja: Hvort landið komst betur frá kreppunni? Skoðum tölurnar. Frá 2007 til 2010 dróst kaupmáttur landsframleiðslu á mann saman um 11% á Írlandi og 9% á Íslandi. Það er bitamunur en ekki fjár. Það er fyrst nú í ár að kaupmáttur lands- framleiðslu á mann í báðum löndum er orðinn hinn sami og hann var fyrir hrun, 2007. Það tók bæði löndin því níu ár, frá 2007 til 2016, að komast aftur á upphafsreit. Frá því botninum var náð 2010 þar til nú hefur kaupmáttur landsframleiðslu á mann aukizt um 16% á Írlandi og 12% á Íslandi og er nú sjöttungi meiri á Írlandi en á Íslandi eins og hann var 2007. Því má segja að bæði löndin hafi komizt álíka vel frá hruninu. Atvinnuleysi er að vísu miklu meira á Írlandi en á Íslandi en þannig hefur það verið um áratugaskeið og hefur ekkert með hrunið eða eftirköst þess að gera. Skoðum fleiri tölur. Landsframleiðsla á hverja vinnustund, öðru nafni vinnu- framleiðni, er betri lífskjarakvarði en landsframleiðsla á mann þar eð fram- leiðsla á vinnustund tekur fyrirhöfnina á bak við tekjuöflunina með í reikning- inn. Frá 2007 til 2016 jókst landsfram- leiðsla á hverja vinnustund á Írlandi úr 59 Bandaríkjadölum í 74 dali og úr 41 dal í 44 á Íslandi. Vinnuframleiðni jókst því um 26% á Írlandi 2007-2016 borið saman við 7% aukningu hér heima. Þarna skilur milli feigs og ófeigs. Þrátt fyrir mikið og landlægt atvinnuleysi hefur Írum tekizt að auka forskot sitt á Íslendinga í vinnuframleiðni úr 44% 2007 (59/41 = 1,44) í 68% 2016 (74/44 = 1,68). Önnur gögn ber að sama brunni. Velferðarvísitala Sameinuðu þjóðanna (e. Human Development Index) sem tekur ekki aðeins mið af framleiðslu og tekjum á mann heldur einnig menntun og heilbrigði skipar nú síðast (2014) Írlandi í 6. sæti og Íslandi í 16. sætið í hópi nær allra landa heimsins, nær 200 talsins. Evran stóðst prófið Af þessum samanburði má ráða að evran dró Írland ekki niður á hyldýpi eins og sumir áttu von á. Aðild að Mynt- bandalagi Evrópu og evrunni þarf að skoða í samhengi við aðra þætti svo sem sjálfkrafa aðgang að fjárhagsaðstoð frá ESB þegar þörf krefur, aðhald og sameig- inlegt eftirlit. Öðrum evrulöndum hefur einnig tekizt skaplega að vinna sig út úr erfiðleikum síðustu ára, t.d. Lettlandi og Portúgal. Öðru máli gegnir um Grikk- land, en þar hefur vandinn sem við er að glíma reynzt mun alvarlegri en annars staðar. Vandi Grikklands átti upptök sín í ábyrgðarlausri fjármálastjórn ríkisins og breiddist út í bankakerfið en ekki öfugt eins og t.d. á Írlandi og Íslandi. Ríkisstjórn Írlands ákvað að írskir skattgreiðendur skyldu bæta til fulls tjónið sem eigendur og lánardrottnar bankanna hefðu ella þurft að axla. Þetta var harkaleg ákvörðun en hún reyndist framkvæmanleg þar eð skuldirnar voru viðráðanlegar. Þessi leið var ófær á Íslandi þar eð skuldir bankanna hér heima voru svo miklu meiri miðað við landsframleiðslu en á Írlandi. Þess vegna var ekki hægt að bjarga íslenzku bönk- unum frá gjaldþroti. Hefðu íslenzku bankarnir grafið sér grynnri gröf, hefðu íslenzk stjórnvöld e.t.v. reynt með erlendri hjálp að fara sömu leið og Írar, en til þess kom ekki. Eftir stendur að Írar ákváðu að standa í skilum og halda sig við evruna og agann sem fylgir henni meðan Íslendingar létu bankana fara á hliðina og leyfðu gengi krónunnar að hríðfalla. Samt hefur Írum ef eitthvað er tekizt betur en Íslendingum að vinna sig með herkjum út úr erfiðleikum undan- genginna ára. Evran stóðst prófið. Írland og Ísland átta árum síðar Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag Innanríkisráðuneytið hefur kynnt drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjóðskrá og almannaskráningu. Með nýjum lögum er ætlunin að lög um mannanöfn nr. 45/1996 falli úr gildi. Í greinargerð ráðu- neytisins með frumvarpinu segir að rétt sé talið að felldar séu úr gildi takmarkanir á nafngjöf og lögð áhersla á, að með því sé fullorðnum einstaklingum og foreldrum barna gefið frelsi til að velja nöfn sín og barna sinna. Mannanafnanefnd yrði lögð niður – enda óþörf, eins og segir í greinargerðinni. Nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska stafrófsins. Eiginnöfn skulu vera nafnorð, auðkennd með stórum upphafsstaf og án greinis. Sé eiginnafn af íslenskum uppruna skal það falla að íslensku beyg- ingarkerfi, en það er ekki skilyrði ef um viðurkennt erlent nafn er að ræða. Uppfylli nöfn ekki þessi skil- yrði þessarar ber Þjóðskrá Íslands að hafna skráningu. Endurskoðun laga eðlileg Ekki er óeðlilegt að lög um manna- nöfn séu endurskoðuð vegna breyttra viðhorfa og breyttra aðstæðna í samfélaginu. Í greinar- gerð innanríkisráðuneytisins segir að á undanförnum árum hafi umræða um mannanafna- löggjöfina verið áberandi í samfé- laginu, meðal annars í tengslum við ákvarðanir mannanafna- nefndar. Hefur því sjónarmiði því „vaxið ásmegin“, eins og stendur í greinargerðinni, að réttur manna til að ráða sjálfir nöfnum sínum og barna sinna sé ríkari en hagsmunir samfélagsins af því að takmarka þennan rétt. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 2013 hafi verið byggt á því að réttur manns til nafns félli undir vernd 71. greinar stjórnar- skrárinnar um friðhelgi einkalífs. Því til stuðnings vísaði héraðsdóm- ur til dómaframkvæmdar Mann- réttindadómstóls Evrópu sem fellt hefur réttinn til nafns undir ákvæði í Mannréttindasáttmála Evrópu, en hún sé efnislega samhljóða 71. gr. stjórnarskrárinnar. „Af því leiðir að réttur til nafns verði aðeins tak- markaður með sérstakri lagaheim- ild ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra, sbr. 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu,“ eins og segir orðrétt í greinargerð innanríkisráðuneytisins. Íslensk nafngiftarhefð Endurskoðun laga er eðlileg við breyttar aðstæður og réttur ein- staklinga er afar mikilsverður. En til eru fyrirbæri sem heita hefð, venjur, menning og málrækt. Því ber í „nýjum lögum um þjóðskrá og almannaskráningu“ að takmarka rétt til nafns með sérstöku ákvæði til þess að koma í veg fyrir, að þús- und ára gamlar nafngiftarvenjur Íslendinga njóti réttarverndar sem eru mikilsverður hluti af menn- ingunni. Fela má Þjóðskrá Íslands að gæta gamallar nafngiftarhefðar, enda er unnt að leita álits Árna- stofnunar eða Íslensku- og menn- ingarsviðs Háskóla Íslands um vafamál eða ágreiningsmál. Að lokum má benda innan- ríkisráðuneytinu á norsku nafna- lögin frá 2006, Lov om personnavn, navne loven. Lögin eru vel skrifuð, sett fram á einfaldan hátt og skyn- samlega haldið á málum. Réttindi einstaklinga – ekki síst barna – eru virt, en um leið er tekið tillit til hefðar og venju í samfélaginu. Hvað á barnið að heita? Tryggvi Gíslason fv. skólameistari MA Heilbrigðis- og velferðarmál eru meðal þeirra málaflokka sem hvað mest snerta líf og heilsu hvers einasta borgara þessa lands. Það er því merkilegt þegar litið er til baka hversu lengi heil- brigðismál stóðu utan umræðuvett- vangs íslenskra stjórnmála. Stærstan hluta tuttugustu aldarinnar og fram á annan áratug þessarar aldar snér- ust viðfangsefni þeirra aðallega um sjávarútveg og landbúnað og efna- hags-, iðnaðar-, orku- og byggðamál. Í aðdraganda kosninga árið 2013 komu fram háværar kröfur um að heilbrigðismál yrðu meðal helstu mála kosningabaráttunnar. Ekkert varð úr því en í kjölfar kosninganna var eins og sprengju væri varpað inn á vettvang þjóðmálabaráttunnar. Frá þeim tíma hafa heilbrigðismál verið stöðugt í brennidepli stjórnmálaum- ræðunnar. Nú eru ýmsar blikur á lofti og ljóst að fleiri málefnasvið munu krefjast aukinnar hlutdeildar í því sem til skiptanna er. Endurreisn Þrír ráðherrar í ríkistjórn Íslands og forsvarsmenn Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands skrif- uðu 8. janúar 2015 undir yfirlýsingu í tengslum við gerð kjarasamninga lækna. Þar er því m.a. lýst yfir að heil- brigðiskerfið skuli búa við sambæri- legan ramma hvað varðar fjármuni og fjölda starfsmanna og hin Norð- urlöndin að teknu tilliti til sérstöðu Íslands hvað varðar mannfjölda og staðhætti. Athafnamaðurinn Kári Stefánsson virðist ekki hafa talið sig geta treyst orðum ríkisstjórnarinnar og réðst því í undirskriftasöfnun í ársbyrjun 2016. Í yfirlýsingu sem gekk undir nafninu „Endurreisum heilbrigðiskerfið“ var þess krafist að Alþingi skuli verja 11% af vergri landsframleiðslu í heil- brigðismál. Því var haldið fram að stjórnvöld hefðu lengi vannært heil- brigðiskerfið og það væri ekki lengur þess megnugt að sinna hlutverki sínu sem skyldi. Í lok apríl 2016 höfðu 86.761 manns skrifað undir. Fjárframlög Skýrslur Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD) sýna að fjár- framlög til heilbrigðismála sem hlut- fall af þjóðarframleiðslu eru nokkuð lægri á Íslandi en það sem best ger- ist á hinum Norðurlöndunum og innan OECD. Tölur frá OECD fyrir árið 2013 sýna að Íslendingar vörðu 8,7% af verðmæti þjóðarframleiðslu sinnar til heilbrigðismála. Ísland var í 19. sæti allra ríkja OECD umrætt ár. Þann 15. mars 2016 birti Hag- stofa Íslands bráðabirgðauppgjör um fjármál hins opinbera árið 2015. Þar kemur fram að umrætt ár hafi heildarútgjöld til heilbrigðis- mála verið 192 milljarðar króna eða 8,7% af vergri landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera 157 milljarðar en hlutdeild heimilanna 35 milljarðar eða 18,2% af heilbrigð- isútgjöldunum. Er það nokkuð lægra hlutfall en verið hefur undanfarin ár. Það felur í sér að bein heilbrigðisút- gjöld heimilanna hafi sama ár verið að meðaltali 105.800 kr. á mann. Sé gert ráð fyrir að veita 11% af lands- framleiðslunni til heilbrigðismála má ætla að árið 2015 hafi skort um 50 milljarða inn í heilbrigðiskerfið. Ríkisfjármálaáætlun Á vordögum 2016 voru lagðar fram tvær þingsályktunartillögur um fjár- málastefnu og fjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021. Báðar þessar tillögur byggja á nýjum lögum um opinber fjármál. Samkvæmt fjármálaáætlun- inni er stefnt að því að auka fjárfram- lög ríkisins til heilbrigðismála um 30 milljarða á næstu fimm árum. Þann- ig að fjárveitingar hins opinbera til heilbrigðismála hækki úr 170 í 200 milljarða á tímabilinu, sbr. mynd 1. Miðað við tölur OECD og Hag- stofu Íslands vantar, umfram það sem áætlað hefur verið í fjármála- stefnunni, um 20 milljarða upp á að hlutdeild heilbrigðismála nái 11% af vergri landsframleiðslu í lok tímabilsins 2017-2021. Allar tölur á verðlagi ársins 2016. Þá hefur því ekki verið svarað hver hlutur heim- ilanna í heilbrigðisútgjöldum verði næstu árin. Ennfremur hefur ekki verið nægjanlega skoðað að hvaða marki sé dýrara að halda uppi góðri heilbrigðisþjónustu í víðfeðmu, fámennu og harðbýlu landi. Hvert stefnt Árið 2012 samþykktu íslensk stjórn- völd evrópska heilbrigðisstefnu WHO til ársins 2020 (Health 2020). Á grunni þessarar stefnumörkunar og framtíðarsýnar hafa mörg ríki Evrópu þegar ráðist í gerð áætlana til að ná mikilvægum markmiðum í heilbrigðismálum. Aðildarríkin hafa skuldbundið sig til að bæta heilsu íbúanna, draga úr ójöfnuði, styrkja lýðheilsu og tryggja notendamiðað heilbrigðis- og velferðarkerfi. Á Íslandi hefur ný heilbrigðisáætlun til ársins 2020, sem tekur til þessara málefna, lengi verið í burðarliðnum, en af ýmsum orsökum hefur ekki tekist að ljúka henni. Að lokum skal lögð áhersla á að vandamál heilbrigðiskerfisins verða ekki eingöngu leyst með auknum fjárveitingum, því stjórnvöld verða jafnhliða að móta sér framtíðarsýn í heilbrigðismálum og skilgreina hlut- verk allra meginþátta heilbrigðis- þjónustunnar. Fyrsti áfanginn í því verkefni er að ráðast í víðtæka þarfa- greiningu og úttekt á helstu kostn- aðarþáttum starfseminnar. Afrakstur þeirrar vinnu gæti orðið grunnur að sáttmála um endurreisn heilbrigðis- kerfisins. Heilbrigðisstefna til framtíðar Ingimar Einarsson félags- og stjórn- málafræðingur Fela má Þjóðskrá Íslands að gæta gamallar nafngiftar- hefðar, enda er unnt að leita álits Árnastofnunar eða Íslensku- og menningarsviðs Háskóla Íslands um vafamál eða ágreiningsmál Á Íslandi hefur ný heilbrigð- isáætlun til ársins 2020, sem tekur til þessara málefna, lengi verið í burðarliðnum, en af ýmsum orsökum hefur ekki tekist að ljúka henni. Kjarni málsins var og er að bankahremmingar beggja landa voru heimatilbúnar og áttu rót sína að rekja til vanrækslu stjórnmálamanna, bankamanna og meðreiðarsveina þeirra. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F i M M T u d a g u R 2 1 . j ú L Í 2 0 1 6 2 1 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 6 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 0 E -3 0 F 4 1 A 0 E -2 F B 8 1 A 0 E -2 E 7 C 1 A 0 E -2 D 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 0 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.