Víkurfréttir - 07.11.1985, Side 1
mun
Keflavíkurflugvöllur:
Reyndi að smygla 8
lítrum af áfengi með
rútu flugfarþega
42. tbl. 6. árg. Fimmtudagur 7. nóvember 1985
Um sl. helgi handtók
lögreglan á Keflavíkur-
flugvelli mann sem ætl-
aði að nota flugfarþega-
rútuna til að smygla
áfengi út af Keflavíkur-
flugvelli. Fundust í
fórum hans 8 lítrar af
áfengi, að sögn Þorgeirs
Þorsteinssonar, lög-
reglustjóra á Keflavík-
urflugvelli.
Skv. áreiðanlegum
heimildum blaðsins hef-
ur lögreglan haft grun
um það nú um nokkurt
skeið, að rúta flugfar-
þega væri notuð til
sliks, en eins og margir
vita er rútan aldrei
stöðvuð í flugvallarhlið-
inu, þar sem farþegar
þessir hafa þegar farið í
gegnum tollskoðun við
komu til landsins.
Sl. laugardag var svo
látið til skarar skríða og
voru tveir óeinkennis-
klæddir lögreglumenn
látnir fylgjast með þeim
sem komu í rútuna.
Veittu þeir þá eftirtekt
manni sem kom í stefnu
frá Navy Lodge, og lét
hann tösku sína í far-
angursrými rútunnar og
ætlaði síðan að bland-
ast farþegum úr flugi, í
rútunni.
Var maðurinn hand-
tekinn og færður á lög-
reglustöðina og fannst
þá umrætt áfengismagn
í tösku hans. Er nú
unnið að fullnaðarrann-
sókn málsins. - epj.
í Grindavík hafa í
sumar verið miklar
framkvæmdir af hálfu
bæjarfélagsins. Unnið
hefur verið við nýtt
íþróttahús, viðbyggingu
grunnskólans, holræsa-
lagnir, vegaframkvæmd
ir og fleira.
Þetta byggðarlag er
eitt stærsta fiskvinnslu-
og sjávarútvegsbyggð-
arlagið hér á landi, enda
hafa um 70% íbúa
Grindavíkur fram-
Grindavík:
„Eitt stærsta
sjá varútvegsbyggðar-
lag landsins
- „fyrirtækin byggð upp á elju
og þrautseigju einstaklinganna“,
segir bæjarstjórinn
færslu sína beint af sjó-
sókn. Þar eru rekin
mörg myndarleg sjávar-
útvegsfyrirtæki, en nú
sjá mörg þeirra fram á
verri rekstrarskilyrði en
áður.
Annars staðar í blað-
inu er birt ítarlegt viðtal
við bæjarstjóra þeirra
Grindvíkinga, Jón
Gunnar Stefánsson, og
þar eru öll þessi mál og
mörg fleiri tekin til um-
fjöllunar. - epj.
Frá aðalfundi Sjóefnavinnslunar sl. föstudag.
Sjóefnavinnslan hf.:
„Jákvæð áhrif fyrir Suðurnes“
- segir Finnbogi Björnsson, framkvæmdastjóri
um stækkun verksmiðjunnar
Ákveðið hefur verið að
ráðast í framkvæmdir við
stækkun Sjóefnavinnsl-
unnar hf. á Reykjanesi. Að
loknum framkvæmdum
þessum mun vera hægt að
framleiða 8.500 tonn af
salti og 1560 tonn af kol-
sýru. Kom þetta fram á
aðalfundi fyrirtækisins sem
haldinn var í Keflavík sl.
föstudag.
Eftir fundinn sneru
Víkur-fréttir sér til Finn-
boga Björnssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjóefna-
vinnslunnar hf., og inntu
hann álits á því hvaða áhrif
þessar ákvarðanir um upp-
bygginguna á Reykjanesi
hefðu fyrir Suðurnesin.
„Það er ljóst að ákvarð-
anirnar hafa vafalaust já-
kvæð áhrif fyrir Suðurnes.
Þær eru atvinnuskapandi,
sem ekki veitir af um
þessar mundir. Þó álít ég ef
til vill mikilvægast, að
grundvöllur virðist vera að
skapast fyrir því að gera
Reykjanessvæðið að vett-
vangi rannsókna fyrir iðn-
aðartækifæri, sem nýttu há-
hita til starfsemi sinnar.
Það er augljóst, að hvergi
eru betri aðstæður til þess
en hér í nánd við hafnir,
flugvöll og byggð. Þetta
lofar góðu fyrir Suðurnes",
sagði Finnbogi.
Annars staðar í blaðinu
er nánar greint frá aðal-
fundinum og málefnum
verksmiðjunnar. - epj.
Opinn fundur um áfengismál
Jón Helgason, ráðherra, frummælandi
- ásamt Arnbirni Olafssyni, lækni
í kvöld kl. 20.30 hefst op-
inn fundur í Holtaskóla um
áfengismál. Er fundurþessi
haldinn á vegum Stúkunn-
ar Vík og Áfengisvarna-
nefndar Keflavíkur.
Frummælendur verða
Arnbjörn Olafsson, læknir,
og Jón Helgason, dóms-
málaráðherra. Auk frum-
mælenda munu bæjar-
stjórnarmenn frá Keflavík
og Njarðvík og áfengis-
varnanefndarmenn frá
sömu stöðum svara fyrir-
spurnum fundarmanna.
epj.
Aðalfundur S.S.S. - hefst á morgun
Á morgun, föstudag kl.
14, hefst aðalfundur Sam-
bands sveitarfélaga á Suð-
urnesjum, og er hann hald-
inn að þessu sinni í félags-
heimilinu í Höfnum.
Mun fundurinn standa
yfir í 2 daga og þar verða
tekin fyrir ýmis mál er
varða okkur Suðurnesja-
menn. Helstu málaflokkar
eru:
Hitaveita Suðurnesja á
tímamótum, Drög að fruin-
varpi um skólakostnað
framhaldsskóla. Hvaðerað
gerast í atvinnumálum á
Suðurnesjum? Málefni
aldraðra (á Suðurnesjum) í
nútíð og framtíð. Samein-
ing sveitarfélaga á Suður-
nesjum. -epj.
Það verður í nógu að snúast hjá Eirík Alexsanderssyni framkvæmda
stjóra S.S.S. ásamt öðrum sveitarstjómarmönnum um helgina.
ljósm. pket.