Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.1985, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 07.11.1985, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 7. nóvember 1985 VÍKUR-fréttir MÍKUn Útgetandi: Víkur-fréttir hf. Afgrei&sla, rltstjórn og auglýsingar: Hafnargötu 32, II. hæð - Sími 4717 - Box 125 - 230 Keflavik RltstJ. og ábyrg&armenn: Fréttastjóri: Emil Páll Jónsson, hs. 2677 £mj| páll Jónsson Dáll Ketilsson, hs. 3707 .... Auglysingastjóri: Páll Ketilsson Upplag: 4500 eintök, sem dreift er ókeypis um öll Suöurnes hvern fimmtudag. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað, er óheimilt nema heimildar sé getið. Setníng. filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavik Snyrtistofan ANNETTA Gjafa- og snyrtivöruverslun Kynnum hinar frábæru Ck ristían Dior snyrtivörur föstudaginn 8. nóv. frá ki. 13-18. Snyrtistofan ANNETTA Vikurbæjarhúsinu, II. hæö, simi 3311 V axtaræktarnámskeið fyrir dömur Vorum að hefja nýtt námskeið í íþróttahús- inu í Keflavík. Uppl. í síma 3639. Vaxtarræktin Fasteignaþjónusta Suðurnesja Hátelgur 14, Keflavik: Mjög góð 4ra herb. íbúð ásamt bílskúr. KEFLAVÍK: Góð 2ja herb. neðri hæð við Vesturgötu 2ja herb. neðri hæð við Vesturbraut .... 2ja herb. nýleg ibúð viö Faxabraut . Góð 2ja herb. íbúð við Háteig ... .. 1 .. 1 .. 1 .. 1 3ja og 4ra herb. íbúðir við Mávabraut. Verð frá 1 3ja herb. íbúð við Heiðarhvamm ........... 1 4-5 herb. íbúö við Hringbraut 136, með bílskúr. Skipti möguleg á ódýrari eign.............2 95 ferm. raðhús við Mávabraut ............ 1 050.000 000.000 350.000 450.000 400.000 600.000 .000.000 .950.000 NJARÐVÍK: 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúð við Fifumóa og Hjalla- veg. Verð frá ............................. 1.250.000 Einbýlishús í l-Njarðvík við Kirkjubrautog víðar. Skipti möguleg á ódýrari eignum. Raðhús í smíðum við Háseylu. Nánari upplýsing- ar á skrifstofunni. Iðnaðarhúsnæði í Y-Njarðvík við Holtsgötu. Ýmsar aðrar eignir eru á söluskrá, s.s. í Grinda- vík, Sandgerði og víðar. Nánari upplýsingarveitt- ar á skrifstofunni. H&fum veriö beöin um a& leigja húsnæ&i a& Hafn- argötu 35 I Keflavík (nýbygging) fyrir sex verslanir. Upplýsingar eru veittar á skrifstofunni, en ekki i sfma. Fasteignaþjónusta Suðurnesja Hafnargötu 31, II. hæ& - Keflavik - Símar: 3441, 3722 Finnur Leitraberg heldur á gereftunum 5 í þeirri stöðu sem hann var í þegar eldurinn kom upp. „Man næst eftir mér með slökkvitæki í höndunum64 -segir Jón Axel Brynleifsson, sem með hárréttum við- brögðum kom í veg fyrir stórtjón í vinnustað sínum Góð fræðsla um eldvarn- ir koma fyrirtækjum oft til góða. Það sannaðist best sl. föstudag er eldur kom upp í lakkklefa hjá Trésmiðju Þorvaldar Olafssonar hf. í Keflavík. „Það fer ekkert á milli mála, að fyrir rétt viðbrögð mannanna tveggja sem voru í klefanum, tókst að koma í veg fyrir stórtjón, og eiga þeir þakkir skilið fyrir“, sagði Þorvaldur um málið við blaðamann. Með hárréttum við- brögðum tókst þeim Jóni Axel Brynleifssyni og Finni Leitraberg að slökkva eld- inn strax í fæðingu, en hefðu viðbrögðin verið önnur er hætta á að illa hefði farið, því í lakkklef- anum var mikið af eldfim- um efnum, s.s. nýlakkaðri framleiðslu. Hvergi, þar sem slík framleiðsla á sér stað, er vitað um hliðstæð orsök og þarna, og stendur því nú yfir rannsókn á því, að ósk fyrirtækisins, hvað orsakað hafi eld þennan, en á örfáum sekúndum mynd- aðist eldsúla upp frá fangi manns sem var að taka ný- lökkuð gerefti út úr véla- samstæðu og náði eldurinn a.m.k. meter upp fyrir manninn. Fór sjálfvirkt viðvörunarkerfi hjá Vara í gang við eldinn, en forráða- menn fyrirtækisins gátu stöðvað boðun til slökkvi- liðs áður en það var kallað út, enda var þá búið að slökkva eldinn. Fyrirtækið fór hins vegar fram á rann- sókn málsins og hafa sér- fræðingar Brunavarna Suð- urnesja, Slökkviliðs Kefla- víkurflugvallar og Bruna- málastofnunar ríkisins tekið að sér rannsókn elds- upptakanna. En hvað segir annar þeirra sem í klefanum var um málið? „Við vorum að lakka hérna gerefti“, sagði Jón Axel, „og skyndilega tók ég eftir því að maðurinn sem tekur á móti þeim úr vél- inni stendur þarna með 5 þeirra logandi í fanginu. i Hvað þá skeði veit ég ekki, en næsta sem ég man eftir var að ég stóð með slökkvi- tæki í hendinni og beið augnablik meðan Finnur sleppti gereftunum logandi í gólfið, og slokknaði eldur- inn samstundis og ég sprautaði á hann. Hér hefði getað skapast óskaþleg hætta, því loftið var svo mettað, svo það var aðeins sekúndubrot sem bjargaði því að klefinn fuðr- aði ekki upp. Vil ég þakka því þessum snöggu við- brögðum, að ég var búinn að fara á námskeið hjá Slökkviliðinu í Keflavík og þar voru manni sýnd fyrstu viðbrögð, og tel ég þá fræðslu hafa bjargað þessu. Annars hefði verið hætta á að ég hefði hlaupið út úr klefanum í stað þess að fara beint að slökkvitækinu. Eftir fræðsluna hafði ég hugsað út í það hvað ég ætti að gera ef slík staða kæmi upp. Ef ég hefði hlaupið fyrst út hefði ekki þurft að spyrja að neinu frekar“, sagði Jón að lokum. Við þetta má bæta, að það er líka talið hafa bjarg- að miklu, að Finnur hélt ró sinni meðan á þessu stóð, í stað þess að henda logandi timbrinu frá sér“. - epj. Jón Axel Brynleifsson, sem slökkti eldinn á sekúndubroti og bjarg- aði þar með klefanum. Orðsending frá Reið- hjólaverkstæðinu Hafnargötu 55, Keflavik Þar sem ég hef hætt starfsemi minni frá og meö 1. nóvember 1985, vil ég þakka þeim fjölmörgu viðskiptavinum mínum á liðnum árum, um leið og ég óska nýjum eiganda, Sigurði Eiríkssyni, velfarnaðar á komandi ^rum Henning Kjartansson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.