Víkurfréttir - 07.11.1985, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 7. nóvember 1985 9
VÍKUR-fréttir
Sl. 10 ár á Suðurnesjum:
2882 kærðir fyrir ölvun við akstur
- þar af 255 á síðasta ári. - Útgefin ökuskírteini 11.075
Samkvæmt skýrslum
Umferðarráðs voru 2882
ökumenn kærðir fyrir
ölvun við akstur á 10 ára
tímabili, 1974-1984, á Suð-
urnesjum öllum. 229 þeirra
voru teknir í Grindavík,
1534 í Keflavík og Gull-
bringusýslu. A síðasta ári
voru 255 teknir og er skipt-
ingin þannig milli um-
dæma:
Kcflavík/Gullbr.s.: Meint 149,-
Fellt niður 28, Neðri mörk 25, Efri
mörk 96.
Keflavíkurflugvöllur: Meint 76,
Fellt niður 16, Neðri mörk31,Efri
mörk 29.
Samtals: Meint 255, Fellt niður
48, Neðri mörk 64, Efri mörk 141,
Niðurstöður ókunnar 2.
Skv. sömu skýrslum
kemur í ljós að alls hafa
verið gefin út 11.075 öku-
skírteini á Suðurnesjum frá
upphafi, þar af 302 á síð-
asta ári, og skírteini fyrir
létt bifhjóleru alls36. - epj.
ARSHATÍÐ
Stangaveiðifélags
Keflavíkur
verður haldin í Grófinni, laug-
ardaginn 23. nóv. - Fjölmennið.
Skemmtinefndin
Grindavík: Meint 30, Fellt niður
4, Neðri mörk 8, Efri mörk 16,
Niðurstöður ókunnar 2.
Athyglisverð
staða
Ef samningar hefðu
tekist milli Stálfélags-
ins og Rússa um eignar-
aðild þess síðast nefnda í
stálverksmiðjunni, sem
reisa á innan sveitar-
marka Vatnsleysu-
strandarhrepps, hefði
komið upp mjög athygl-
isverð staða. Eins og
margir vita fellur mikið
af járni til hjá Varnar-
liðinu á Keflavíkurflug-
velli og er fyrirsjáan-
legt að sá aðili getur
orðið stór viðskiptaað-
ili í framtíðinni. Ef Rúss-
arnir hefðu gerst eignar-
aðilar að verksmiðjunni
hefðu þeir haft hag að
því að versla við fjand-
mennina í vestri þ.e.
kanana, hér uppi í
heiðinni. Já það er
margt skrítið í sam-
skiptum stórveldanna.
....dónaskapur
Varnarliðsins
Töf sú sem Varnarlið-
ið skapaði er flugvél
sovéska ráðherrans
ætlaði í loftið á dögun-
um, var ófyrirgefanleg-
ur dónaskapur Varnar-
liðsins gegn Islenska
lýðveldinu, þó að hér
hafi rússar verið á ferð
sem töfðust, þá voru
þeir í heimsókn hjá
íslendingum og því áttu
herþoturnar að sýna þá
sjálfsögðu kurteisi að
fljúga ekki framhjá rétt
á meðan gestirnir fóru í
loftið. Sú afsökun
Varnarliðsins að þotur-
nar hafi verið eldsneytis-
lausar á ekki við rök að
styðjast samkv. frásögn
vitna, því þoturnar tóku
á loft aftur eftir að hafa
snert brautina, en það
hefðu þær ekki gert ef
eldsneytið væri á
þrotum og ef svo hafi
verið er það líka dóna-
skapur að fljúga þotum
sem þessum á síðustu
dropunum yfir byggð
eins og þarna átti sér
stað.
Ef skoðuð er skipting
milli mánaða á síðasta ári
voru flestir ökumanna
teknir í maí í Grindavík,
apríl í Keflavík og í nóv. á
Keflavíkurflugvelli.
GLÓÐIN opnar
pítustað
Axel Jónsson á Glóð-
inni hefur greinilega
ekki sagt sitt síðasta í
veitingabransanum. Nú
er hann að fara að opna
nýjan veitingastað.
Verður hann staðsettur
í sama húsi og Glóðin er
í að Hafnargötu 62, þar
sem verslun Kaupfélags-
ins var áður. A nýja
staðnum verða seldar
pítur, pizzur og fleira í
þeim dúr.
A þessum stað verður
einnig eldhús Veislu-
þjónustunnar sem
hingað til hefur notað
eldhús Glóðarinnar til
„snittusmurnings” og
matargerðar í stórveisl-
ur. Sem sagt: meiri
breyting og bæting hjá
Axeli á Glóðinni.
Dýravinir
á Suðurnesjum
Fyrir skömmu aug-
lýsti Kanínumiðstöðin í
Njarðvík eftir satrfs-
manni „sem hafði áhuga
á að vinna með dýrum”
Umsækjendur voru á
aldrinum 16til85áraog
þar af aðeins inn karl-
maður. Greinilega
miklir dýravinir meðal
kvenþjóðarinnar. En
því miður dugði það
ekki til, karlmaðurinn
var ráðinn, öllum að
óvörum.....eða hvað?
Nokkra
ára hugmynd
I „Molum” í síðasta
tölublaði var rætt um að
eftir að Keflvíkingar
væru búnir að vera hótel
lausir um margra
áratugaskeið væru nú
líkur á að innan tíðar
yrðu þau orðin tvö í
bænum. Af fréttinni
mátti ráða að Jón W.
Magnússon hefði fengið
hugmyndina að sínu
hóteli eftir að hin varð af
veruleika, þetta er
alrangt því hans
hugmynd er orðin
nokkura ára.
Biðjumst við því vel-
virðingar á þessum mis-
tökum.
Verkakvennafélag Keflavíkur og Njarðvíkur hef-
ur ákveðið í samráði við Tómstundaskólann að
halda námskeið í jólaföndri dagana 23. og 30.
nóv. á Víkinni. - Lærðir kennarar verða til leið-
beiningar. - Þátttaka tilkynnist á skrifstofu fé-
lagsins í síma 2085. - Sjáumst!
Stjórnin
ULLARVÖRUR
Tilvalin jólagjöf
fil vina og ættingja
erlendis.
Tjarnargötu 3
Keflavík - Sími 3308