Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.1985, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 07.11.1985, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 7. nóvember 1985 VÍKUR-fréttir Þú lest það í - VIKUR-fréttum FRÁ SÉRLEYFISBIFREiÐUM KEFLAVÍKUR: SANDGERÐINGAR í samráði við Hreppsnefnd Miðnes- hrepps hefur verið ákveðin ný akstursleið og stoppustöðvar í Sandgerði frá og með 1. nóv. n.k., sem hér segir: AKSTURSLEIÐ: Tjarnargata - Brekkustígur - Hlíðar- gata - Austurgata - Suðurgata. STOPPISTÖÐVAR: Tjarnargata, 6-horn Brekkustígs og Hlíðargötu. Horn Hlíðargötu og Austurgötu. Pósthús Suðurgötu. Horn Suðurgötu og Túngötu. Horn Suðurgötu og Keflavíkurvegar. Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur KONUR Hádegisverðar- fundur Aðalfundur Félags framsóknarkvenna í Keflavík og nágrenni verður haldinn á Glóðinni, laugardaginn 9. nóvember kl. 12-14. - DAGSKRÁ: • Framboðsmál: Drífa Jóna Sigfúsdóttir • Söngur: Hlíf Káradóttir • Píanó: Ragnheiður Skúladóttir • Venjuleg aðalfundarstörf • Gamanmál Konur! Mætið vel og takið með ykkurgesti. Stjórnin SKÓLAR . .. Framh. af 14. síðu þau sé hlustað - og gerum svo eitthvað. Fleiri rök En fleiri rök hníga svo sannarlega að því að lang- skipta skóla. Um þetta hefur verið ritað af hæfu fólki - og er auðvelt að leita rakanna og ganga beint að þeim. Skulu hér nokkur nefnd: 1. í heildstæðum grunn- skóla er auðveldara að fylgjast með þroska og framförum hvers einasta nemanda frá forskóla til loka grunnskóla. 2. Milli skólastiga eru oft mjög skörp skil á milli bekkjarkennslu og fag- kennslu. Með sam- ræmdri stjórnun í heild- stæðum grunnskóla er auðvelt að draga úr þess- um skilum svo viðbrigði verði óveruleg fyrir nemendur. 3. Ljóst er að langskipting auðveldar skipulagningu skólastarfs og tryggir að betur sé fylgst með náms- og þroskaferli hvers nem- anda. Heildstætt skóla- starf og markvisst verð- ur best tryggt með lang- skiptum skóla. 4. Það verður mun auðveld- ara að sníða af vankanta Viðtal við Jón Gunnar Framh. af 15. síðu Fríhöfn í Grindavík „Nokkuð hefur verið rætt um fríhöfn, og að koma upp iðnaði og þá sér- staklega léttum iðnaði í tengslum við Keflavíkur- flugvöll. Er það hugmynd sem vissulega á rétt á sér. Mér dettur í hug hvort ekki væri í fullri alvöru hægt að tala um aðra fríhöfn, sem væri þá í tenglsum við sam- göngur á sjó, og sýnist mér Grindavík bjóða upp á mjög kjörið tækifæri, bæði hvað landrými varðar og eins vegalengdir til og frá útlandinu“, sagði Jón Gunnar að lokum. - epj. <7 HRESSIÐ . . . ykkur upp í skammdeg- inu í viðurkenndum sólar- lömpum okkar. Gufubað - Nudd Snyrtivörur fyrir dömur og herra. w \ i / // SÓLBAÐS- & SNYRTISTOFAN KWICK - SLIM grenningarmeöferöin gefur frábæran árangur. SUÐURGÖTU 16, SANDGERÐI í skólastarfi þegar kenn- arar í heildstæðum skóla vinna saman að lausn vandamála. Slík sam- vinna dregur úr van- trausti og gagnrýni milli skólastiga og sérþekk- ing kennara nýtist betur og samstarf eykst. Keflavík - Njarðvík Bæjarfélögin tvö, Kefla- vík og Njarðvík, eru nánast runnin saman í eina heild - og munu gera enn meira á næstu árum er mikil byggð kemur í námunda við Sam- kaup og Móahverfi. Bæjar- félög þessi hafa mikla sam- vinnu nú þegar í gegnum SSS. Og öllum má ljóst vera, að einungis er tíma- spursmál hvenær þessi tvö bæjarfélög sameinast í eitt. Það hlýtur því að teljast eðlilegt að bæjarfélögin taki upp nána samvinnu um grunnskóla og þau mál verði skipulögð í samvinnu. Þá skulum við einnig minnast þess, að skóla- rekstur verður alltaf til staðar í Keflavík og Njarð- vík, því bæjarfélögin eru orðin það stór. Einnig þykir slík þjónusta í bæjarfélög- unum nú sjálfsögð og eðli- leg. Því skiptir öllu máli hvernig við skiptum í skóla- hverfi - og slíkri skiptingu má breyta að vild til þess að nýting verði sem best á því skólahúsnæði sem er til staðar hverju sinni. Ný nefnd verði skipuð Eg benti á að ýmislegt er til skrifað um langskiptan skóla. Eg ætla ekki að fara að telja það allt upp hér. En ég held að nú séu umræður komnar á það stig að æski- legt sé að skipa nefnd til þess að kanna þessi mál ofan í kjölinn og fá fram niðurstöður. Rétt er að geta þess að áður var skipuð nefnd til að kanna fram- tíðarskipan skólamála í Keflavík, en hún dó drottni sínum, blessuð sé minning hennar! Hin nýja nefnd gæti til dæmis verið skipuð deildar- stjóra Menntamálaráðu- neytisins, tveim kennurum, tveim fulltrúum frá Kefla- víkurbæ og tveim fulltrú- um frá Njarðvík, vilji menn taka upp nána samvinnu í skólamálum, eins og hér er lagt til. Æskilegt væri að all- ir fulltrúar sunnanmanna ættu börn á grunnskóla- aldri og þekktu þannig nokkuð vel til innviða skól- anna. Tillögur um framtíðarskipan Loks vil ég vekja aftur at- hygli á tillögum mínum um framtíðarskipan skóla- mála - en þær birti ég í Vík- ur-fréttum 24. okt. sl. Gylfi Guðmundsson Eigendaskipti á reiðhjólaverk- stæðinu. Um s.l. mánaðamót urðu eigendaskipti á Reiðhjóla- verkstæðinu, Hafnargötu 55 í Keflavík. Henning Kjartansson sem rekið hefur verkstæðið um langt árabil hefur selt það Sig- urði Eiríkssyni. epj- Brekkubúðin hætt Nú um s.l. mánaðarmót hætti Brekkubúðin í Kefla- vík rekstri sínum. En eins og áður hefur komið fram hér í blaðinu hefur hinn dæmigerði „kaupmaður á horninu” orðið að láta í minni pokann fyrir mörk- uðunum og kaupfélagsbúð- unum. Dæmi þar um er Voga- bær og Brekkubúðin, og nú síðast verslunin Kostur. Vitað er um erfiðleika hjá fleiri slíkum búðum í Kefla- vík, Njarðvík, Garði og Sandgerði. - epj. Slökkvitækja- þjónusta Suðurnesja Kolsýruhleðsla - Dufthleðsla Viðhald og viðgerðir á flestum tegundum slökkvitækja Reykskynjarar - Rafhlöður Brunaslöngur - Slökkvitæki Uppsetning ef óskaö er. Viðurkennd eftirlitsþjónusta handslökkvitækja í bátum og skipum. Slökkvitækjaþjónusta Suðurnesja Háaleiti 33 - Keílavik - Siml 2322

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.