Víkurfréttir - 07.11.1985, Side 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 7. nóvember 1985 7
Fyrstu nemendurnir í starfsnámi
F.S. á haustönn 1985 útskrifast
„Markmiðið að efla
tengsl skólans
við atvinnulífið“
r
- segir Sturlaugur Olafsson,
aðstoðarskólameistari F.S.
Fyrstu nemendurnir í
starfsnámi Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja á haust-
önn 1985 útskrifuðust
nýlega. Voru það 12
nemendur í tölvunámi.
Að starfsnáminu
standa auk Fjölbrauta-
skólans, Verslunar-
mannafélag Suðurnesja,
Félag kaupsýslumanna á
Suðurnesjum, Kaupfélag
Suðurnesja og Starfs-
mannafélag Keflavíkur-
bæjar. Starfsnám þetta
hóf göngu sína á sl. ári og
tókst mjög_ vel. Að sögn
Sturlaugs Ólafssonar, að-
stoðarskólameistara FS,
var það sett á stofn til að
auk tengsl skólans við at-
vinnulífið og gefa þannig
fólki á atvinnumarkaðn-
um kost á að sækja sér
nauðsynlega endur-
menntun i formi styttri
námskeiða.
Auk nemendanna í
tölvunámi útskrifuðust
sama dag 11 nemendur í
útstillingum, en þar fór
kennslan fram í Sam-
kaupum.
Tæknilegur ráðgjafi
fyrir starfsnámi verslunar-
og skrifstofufólks er
Helgi Baldursson, sem
einnig skipuleggur starfs-
nám fyrir Verslunarskóla
Islands.
Við útskriftina afhenti
Sturlaugur Ólafsson, að-
stoðarskólameistari, þátt-
takendum viðurkenning-
arskjal, en til að fá það
þurfti til lágmarks mæt-
ingarskylda sem var 85%,
en kennslustundir voru
alls 20. Kennari á tölvu-
námskeiðinu var Gísli
Gíslason. - pket.
Hópurinn sem útskrifaðist í tölvunáminu, ásamt Sturlaugi Ólafssyni, aðstoðarskólameist-
ara, lengst til hægri.
Skilafrestur auglýsinga er
til kl. 14 á þriðjudögum.
Greinar og fréttatilkynningar
skulu berast í síðasta lagi
á mánudögum.
VÍKUR
{ttUil
ÁLETRAÐAR ^
DRYKKJARKÖNNUR
Tilvalin
jólagjöf
handa
börnum
á öllum
aldri.
Vinsamlega pantið í tíma.
ii»
Tjarnargötu
Keflavík - Simi 3308
RAÐHÚS
KEFLAVÍK
Glæsileg 91 ferm. raðhús, sem verða
staðsett við Heiðarholt í Keflavík. Hús-
unum verður skilað fullbúnum að
utan, m.a. lóð frágengin, stéttar steypt-
ar, og málað, en verða fokheld að
innan.
Byggingaraðili: HÚSANES HF.
Arkitekt: PÁLL V. BJARNASON
Verkfr.: HAUKUR MARGEIRSSON
Athugið: Verðið er frá kr. 1.630.000.
Beðið verður eftir húsnæðisláni ca. kr.
915.000 - fyrir þann sem kaupir í fyrsta
sinn. - Góð greiðslukjör. Tvímælalaust
bestu kaupin í dag.
Söluaðili:
EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA
Hafnargötu 17 - Keflavík - Sími 1700