Víkurfréttir - 07.11.1985, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 7. nóvember 1985
VÍKUR-fréttir
Úrvalsdeild - ÍBK-ÍR 95-78:
Karfa kvenna:
UMFN
VANN
ÍBK
Karfa:
í kvöld kl.20 heimsækja Stúdentar Grindvíkinga í
l.deildinni og leika í nýja íþróttahúsi heimamanna.
A morgun, föstudag er stórleikur í úrvalsdeild.
UMFN og Valur leika í Njarðvíkum og hefst leikur-
inn kl.20.
Á laugardag eru tveir leikir, í íþróttahúsi Kefla-
víkur. ÍBK ogKReigast viðí l.deild kvennakl,14og
strax á eftir leika ÍBK og ÍS í l.flokki karla.
I Ljónagryfjunni í Njarðvík er 1 leikur á sunnu-
dag. KL. 14 leika UMFN og IR í lávarðadeildinni.
I Sandgerði leika heimamenn í l.deildinni við
UBK á sunnudag og hefst leikurinn kl.20.
Handbolti:
Á morgun kl.20 verður nágrannaslagur í íþrótta-
húsinu í Sandgerði en þá mætast lið Reynis og
UMFN í 3.deild.
Á sunnudag leika svo_ IBK og Skagamenn og hefst
sá leikur kl.20 og er í íþróttahúsi Keflavíkur.
Hreinn Þorkelsson í baráttu yið Hreiðar Hreiðars, Njarðvíking.
Hreinn skoraði 24 stig gegn ÍR-ingum.
Helgarsportið
tvívegis í bikar-
keppni KKÍ
UMFN vannÍBKÍbik-
arkeppni KKÍ í körfu
kvenna í íþróttahúsi Kefla-
víkur sl. mánudag. Loka-
tölur 44-35. Þórunn Magn-
úsdóttir var atkvæðamest
Njarðvíkurstúlkna og
skoraði 22 stig. Anna
María var best IBK stúlkna
og skoraði 14 stig.
I keppni þessari er leikið
heima og heiman. I fyrri
leik liðanna sem háður var í
Njarðvík fyrir skömmu
sigraði UMFN með
miklum yfirburðum, 53-29,
og er það stærsta tap IBK í
langan tíma. - pket.
Siddý er ein af burðarásum
UMFN-liðsins, sem vann IBK
í tvígang í bikarkeppninni.
21 stig á
2 mín.
Frábær lokakafli ÍBK og
klaufaskapur IR-inga
tryggði ÍBK sigur, 95-78 í
leik liðanna sl. laugardag í
íþróttahúsi Keflavíkur. Á
síðustu 2 mín. skoruðu Kefl-
víkingar 21 stig á móti að-
eins 7 stigum IR-inga.
ÍBK var betri aðilinn
framan af leiknum en þegar
líða tók á hálfleikinn komu
IR-ingar meira inn í mynd-
ina. I leikhlé var 5 stiga
munur ÍBK í vil, 42-37.
IR-ingar komust í fyrsta
skipti yfir þegar um 11 mín.
voru til leiksloka og höfðu
nauma forystu þar til
Hreinn Þorkelsson jafnaði
67-67. Þegar 3 1/2 mín. var
eftir, var enn jafnt, 63-63.
Lokakafli Keflvíkinga var
síðan glæsilegur át meðan
ekkert gekk hjá ÍR sem
flestir voru komnir með 4
villur og týndust flestir úr
byrjunarliðinu útaf með
5.villuna á bakinu. Fór
þetta í taugarnar á þeim og
röfluðu í dómurum sem
borguðu þeim til baka
með tæknivítum. Keflvík-
ingar gengu á lagið og léku
við hvern sinn fingur þenn-
an lokakafla og stóðu uppi
með yfirburðasigur, 95-78.
Otrúlegar lokamínútur í
annars slökum leik.
Jón Kr., Hreinn og Óli
Gott voru bestu menn IBK,
aðrir léku undir getu. Sig-
urður Ingimundar hefur
ekki náð sér á strik eftir
góðan leik gegn KR.
Jón Kr. var stigahæstur
með 31 stig, Hreinn 24,
Guðjón 14, Olafur Gott 10,
Sigurður 7, Skarphéðinn 6
og Hrannar 3. -asb/pket.
/--------------------\
„SETTUM
ALLT
í BOTN“
„Við settum allt í botn í
restina og þá fóru hlutirnir
að ganga. Svo voru IR-ing-
arnir miklir klaufar líka.
Ég get ekki neitað því að ég
var orðinn smeykur undir
lokin því við vorum miklir
klaufar að tapa fyrir Vals-
mönnum á lokamínútun-
um. Annars er ég ánægður
með gengi okkar til þessa
og við erum staðráðnir í að
halda áfram á sömu braut.
Þó þessi leikur á móti IR
hafi ekki verið sérstaklega
góður þá héldum við haus í
lokin og unnum“sagði Ol-
afur Gottskálksson, Kefl-
víkingur. -pket.
Úrvalsdeild - UMFN-Haukar 80-82:
Valur í óstuði og UMFN tapaði
-í fyrsta sinn á tímabilinu
„Þetta var ekki nógu gott.
Við náðum okkur aldrei virki-
lega á strik í þessum leik.
Svo var það náttúrlega klúð-
ur hjá mér að missa tvö upp-
lögð tækifæri í tveimur sókn-
um í röð á lokamínútunum.
Þetta var bara hræðsla hjá
mér gagnvart Spóanum, ég
lét hann plata mig og tapaði
þá einbeitningunni" sagði
Kristinn Einarsson Njarð-
víkingurinn ungi eftir leik
UMFN og Hauka sl.föstu-
dag í Njarðvíkum.
UMFN tapaði fyrsta
leiknum sínum í vetur.
Lokatölur 80-82 og Hauk-
ar höfðu yfir í leikhlé 42-36.
Valur Ingimundarson,
stigahæsti maður úrvals-
deildar átti slakan dag,
lenti í villuvandræðum og
náði sér aldrei á strik. Skor-
aði aðeins 7 stig og var lítið
inn á í seinni hálfleik. Aðrir
leikmenn UMFN reyndu
að halda uppi merki
UMFN þó Valur væri ekki í
stuði. Helgi og Kristinn
voru þar fremstir í flokki
ásamt Jóhannessi og Árna
Lárussyni. Það dugði þó
ekki í þetta skipti. Haukar
voru mjög ákveðnir frá
upphafi til enda leiksins.
Pálmar hitti mjög vel og
Ivar var þeirra besti maður
í vörn og sókn. Langþráður
sigur Hauka á Njarðvík-
ingum og þeir þurftu svo
sannarlega að hafa fyrir
honum.
Helgi Rafnsson skoraði
mest hjá UMFN, 17 stig,
Jóhannes 16, Kristinn 15,
Árni Lár 14 og Ingimar 2.
Valur aðeins með 7 stigeins
og áður segir en er samt
lang stigahæstur í deildinni
með 185 stig að loknum 7
leikjum. Pálmar næstur
með 149 stig.
l-X-2 l-X-2
„Sá ÍBK tapa 9-0“
„Ég hélt mikið upp á Jimmy Greaves og hann var í
Tottenham og síðan hefur maður haldið með þeim síðan,-
í ein 20 ár.“ Svo mælir næsti spámaður okkar, Júlíus Jóns-
son, fjármálaspekúlant Hitaveitu Suðurnesja.
Júlli fer reglulega að fylgjast með sínu liði í Englandi
eins og hörðum aðdáanda sæmir. „Ég fór í fyrsta skipti að
sjá Tottenham úti þegar IBK lék við þá í Evrópukeppninni
árið 1971. Það var ekki hátt á Keflvíkingunum risið undir
lokin enda lágu þeir 9-0. Síðan hef ég farið nokkrum sinn-
um og síðast í fyrra um páskana og sá þá 3 leiki á White
Hart Lane.
„Jú, ég spila reglulega í getraunum. Er með 3-4 gula
seðla í hverri viku og stundum einn gráan. Ég náði 11
réttum um daginn en þá var náttúrlega allt Island með
vinning. Þetta var svaka upphæð sem ég fékk, heilar 240
kr. að mig minni. En maður biður og vonar. Það er aldrei
að vita nema röðin komi að manni einhvern tíma með
þann stóra“ sagði Júlíus Jónsson.
Heildarspá Júliusar:
Leikir 9.nóvember:
Birmingham - Newcastle..1
Chelsea - Nott'm Forest..1
Coventry - Liverpool.....2
Everton - Arsenal........X
Leicester - Southampton..X
Man. City - Ipswich......1
Oxford - West Ham........2
Sheffield Wed. - Man. Utd ...X
Watford - Aston Villa...1
W.B.A. - O.P.R..........1
Huddersfield - Charlton..2
Sunderland - Wimbledon..1
Enn einn með fímm.
Ekki er hægt að segja að frammistaða Magnúsar Jóns-
sonar, Samkaupsmanns, hafi verið til að hrópa húrra fyrir,
fimm réttir lágu. Raggi Marinós því enn efstur, með 7 rétta.