Víkurfréttir - 07.11.1985, Síða 13
VIKUR-fréttir
Fimmtudagur 7. nóvember 1985 13
gatnagerð á þessu ári er
nálægt því að vera 13-14
millj. kr.“
Grunnskólinn
,,Nú, grunnskólinn hefur
búið við lélegt húsnæði,
eða lítið, fram að þessu og
skv. nýjustu skýrslum
Fræðsluskrifstofu Reykja-
nesumdæmis þá er kennslu-
rými hér einungis 43% af
því normi sem slíkum skóla
er ætlað að starfa í.
Þetta eitt varð til þess að
á þessu ári var ekki lengur
stætt á því að hefjast ekki
handa um smíði nýs skóla-
rýmis fyrir grunnskólann.
Var brugðið á það ráð að
byggja ofan á eldra skóla-
húsnæðið u.þ.b. 600 ferm.
húsnæði. Þetta bar að með
þeim hætti að ekki reyndist
unnt að bíða eftir fjárveit-
ingu til byggingarinnar, svo
það hefur alfarið hvílt á
herðum bæjarfélagsins að
koma þessum áfanga upp í
núverandi stand. Innrétt-
ingar og aðbúnaður skól-
ans er þó ekki hafinn enn-
þá og treysta menn því á að
á næsta ári fáist jákvæður
vilji samstarfsaðila, þ.e.
ríkissjóðs, svo því verki
ljúki“.
Ríkissjóður á eftir
„Það hefur komið illa við
allar þessar framkvæmdir,
að bæði varðandi skólann
og eins íþróttahúsið, hefur
hlutdeild ríkissjóðs verið þó
nokkuð á eftir því sem gert
er ráð fyrir í lögum. Geri ég
ráð fyrir því að þessa stund-
ina vanti u.þ.b. lOmilljónir
til að ríkissjóður leggi bæn-
um til eftirstöðvar þessara
tveggja framkvæmda“.
Með hjálp þingmanna
og ráðherra
„I sumum tilfellum hefur
gengið betur en menn áttu
von á. Þegar fiskvinnslu-
stöðvarnar hér vestur af
bænum hófu starfsemi sína
og uppbyggingu á síðasta
ári, komu upp vandamál
varðandi umferð flutninga-
bíla. En með hjálp þing-
manna og samgönguráð-
herra er nú komin lausn á
þessi mál og eru nú að hefj-
ast framkvæmdir við nýja
vegagerð utan við bæinn, til
að þjóna þessari athafna-
semi. Er gert ráð fyrir því að
vegagerð þessari ljúki um
næstu mánaðamót.
Oft hefur verið talað um
gatnamót Reykjanesbraut-
ar og Grindavíkurvegar,
hvað þau séu illa merkt og
menn hafa velt því fyrir sér
á undanförnum árum hvað
betur mætti gera þarna í
þeim efnum. Ber því að
þakka, að siðustu daga
hefur verið komið þarna
fyrir merkistikum sem sjást
í myrkri og menn vita því
nú hvar vegurinn liggur að
Reykjanesbrautinni“.
Atvinnumál
„Fiskvinnslubærinn
Grindavík byggist svo sem
allir vita alfarið á sjósókn
og fiskveiðum, þjónustu-
störf eru með minnsta móti
sem þekkist i nokkru sam-
félagi á Islandi. Fiskvinnsla
og fiskveiðar fylla nánast
70% af þeirri athafnasemi
sem hér er í bænum.
Fiskveiðar byggjast með
hefðbundnum hætti á vetr-
arvertíð, sumarvertíð,
haustvertíð, auk þess sem
nokkur ársvertíð á sér stað
er varðar rækjuvinnslu. I
bænum eru engin skip sem
stunda samhangandi veiði-
skap og því er alltaf spurn-
ingin um næstu vertíð og
hvernig henni reiðir af.
Fyrirtækin í bænum hafa
byggst upp á elju og þraut-
seigju einstaklinga og eru
þó nokkuð mörg fyrirtæk-
in sem hafa byggst upp á ár-
angri sem hefur fengist úr
fiskvinnslunni. Hafa þau til
skamms tíma staðið föstum
fótum efnalega, en nú er
svo komið að jafnvel best
reknu fyrirtækin í fisk-
vinnslu og sjávarútvegi í
dag sjá fram á erfið rekstr-
arskilyrði, þar sem eigið
fjármagn þeirra hefur eyðst
í afkomubresti útvegsins.
Þetta er uggvænlegt fyrir
byggðarlag eins og Grinda-
vík, þar sem þessi atvinnu-
vegur er nú þegar jafn
veigamikill þáttur allrar
atvinnustarfseminnar og
því verður að bregðast fljótt
við. Er á döfinni að gera al-
menna grein fyrir því að
vekja menn til meðvitund-
ar um að áframhald á þess-
ari raun sjávarútvegsins
leiðir fljótlega ti! algjörrar
stöðvunar í atvinnumálum
bæjarfélagsins. Er nú búið
að undirbúa fund um þessi
mál á vegum atvinnumála-
nefndar í bænum og á þann
fund mun þingmönnum
verða boðið.
Nokkurt áfall hefur
orðið á þessu hausti hvað
Hið nýja og glæsiiega íþróttahús Grindvíkinga.
varðar síldveiðar og síldar-
vinnslu. Má segja að sú ver-
tíð hafi brugðist verulega
vonum bæjarbúa, þar sem
einungis var saltaður helm-
ingur þess magns miðað við
síðasta ár“.
Tengja Reykjanesið
við byggðir
austan fjalla
„Framtíðarhorfur bæjar-
ins byggjast að sjálfsögðu
að verulegu leyti á því, að
sjávarútvegur njóti eðli-
legra starfskjara og viður-
kenningar, sem ein höfuð
atvinnugrein þjóðfélagsins
og vel rekin fyrirtæki við
bestu mið landsins geti
staðið að rekstri og þróun
af eign aflafé, en menn
þurfi ekki að liggja á hnján-
um fyrir opinberum stofn-
unum til þess að biðjast
bónbjargar, því ég geri ráð
fyrir að þeir sem starfi að
þeim málum, a.m.k. hér í
Grindavík, séu þar ekki í
réttu hlutverki.
En hvað má vera til við-
bótar? Þá verður oft hugs-
að til þess að Grindavík er
nú utan alfaraleiðar, það
eru jú 30 km fram og til
baka á aðalumferðarbraut,
sem er vestur eftir Reykja-
nesinu, og oft hefur verið
hugað að ónauðsynlegri
framkvæmd í samgöngu-
málum en þeirri, að tengja
Reykjanesið sunnan fjalla
við byggðirnar austan fjalls.
A ég þá við braut sem liggur
hér yfir á lægsta svæði, með-
fram sjó til Þorlákshafnar
og þaðan austur yfir til Eyr-
arbakka og Stokkseyrar og
áfram austur í sveitir.
Með þessum hætti gæti
jafnvel sjávarútvegur eflst
verulega í þessum byggðar-
lögum öllum, því bátarsem
sæktu sjó gætu þá hagað
löndunum sínum eftir því
hvar afla er að fá og síðan
yrði hann að sjálfsögðu
fluttur milli löndunarstaða
og vinnslustaða. Með því
móti sparast verulegur
rekstrarkostnaður báta.
Eins er hitt, að með þessu
færu Suðurnesin betur inn á
markaðssvæði austan fjalls
og gætu í auknum mæli
orðið þjónustukjarni fyrir
sveitirnar þar austur frá.
Þetta er, trúi ég, minni
háttar framkvæmd, sem
þarna þarf að koma til ef
menn eru í alvöru farnir að
hugsa til að brúa Ölfusá".
Framh. á 16. síðu
VETRARSKOÐUN
• Stilltir ventlar •
• Stilltur blöndungur «
• Skipt um kerti
• Skipt um platínur •
• Still kveikja
• Athuguð viftureim •
og stillt •
• Athugað frostþol á •
kælikerfi. •
• Athugaðar þurrkur og
settur isvari «
í rúðusprautu
Athugaður stýrisbúnaður
Athugaðar og stilltar
hjólalegur
Mælt millibil á
framhjólum
Athugaðir bremsuborðar
Skoðaður undirvagn
Borið silicon á þéttikanta
Athuguð öll Ijós og stillt
ef þarf
Mæld hleðsla
Verð með kertum,
platínum, ísvara og sölu-
skatti kr. 2.516
fyrir 4 cyl. bíl.
Erum einnig með
viðgerðarþjónustu fyrir
Mazda, Nissan/Datsun
Subaru, Daihatsu og
Mitsubishi-bifreiðar.
Bíla- og vélaverkstæði
KRISTÓFERS ÞORGRÍMSSONAR
Iðavöllum 4B - Keflavík - Simi 1266
HITAVEITA
SUÐURNESJA
ö
BYKGINGA
ÞJONUSTAN
Súnino ORKU
oyiuiiy cdadi
SPARNAÐARATAK
Missið ekki af góðu tækifæri...
Sýningin ORKUSPARNAÐARÁTAK
stendur yfir í húsi Hitaveitu Suðurnesja
Brekkustíg 32-34, Ytri Njarðvík
um helgina 9.11.-11.11.