Víkurfréttir - 07.11.1985, Blaðsíða 14
14 Fimmtudagur 7. nóvember 1985
VIKUR-fréttir
Gylfi Guðmundsson skrifar:
Skólar í Keflavík og Njarðvík
Langskipting skóla í Keflavík. - Samvinna skóla í Kefla-
vík og Njarðvík. - Nemandinn í brennidepli
SFrá Sérleyfis-
bifreiðum
Keflavíkur
Ferðaáætlun á sunnudögum og öðrum
helgidögum var breytt 27. nóv. sl. og er sem
hér segir:
Ný ferð:
Frá Reykjavík kl. 22.
Frá Keflavík til Sandgerðis kl. 23.15.
Frá Sandgerði til Keflavíkur kl. 23.30.
Breyting:
Frá Keflavík til Sandgerðis kl. 21.15
(í stað kl. 21.45)
Frá Sandgerði til Reykjavíkur kl. 21.30
(í stað kl. 22.00)
Frá Keflavíktil Reykjavíkurkl. 22.00
(í stað kl. 22.30)
Aðrar ferðir óbreyttar.
Skoðanaskipti
Undanfarnar vikur hafa
ýmsir skipst á skoðunum á
síðum þessa blaðs um
skólamál og er það svo
sannarlega ánægjulegt, því
ljóst er af skrifum allra að
þeir vilja leggja sitt af
mörkum til þess að bæta
skólahald í Keflavík og
koma því svo fyrir, að nem-
andinn, tími hans og vinna,
sé ævinlega í brennidepli.
Grunnskólalögin ætla
skólum fyrst og fremst það
hlutverk að vera mennta-
stofnanir, en breyttir at-
vinnuhættir og ný viðhorf
til hlutverka skólans
stækka hlut hans og mótun
í uppeldi barnsins.
Uppeldi
Á vökutíma barns fer
fram uppeldi þess og er
augljóst að margir taka þátt
í því uppeldi, foreldrar, fé-
lagar, umhverfi allt - og þá
ekki síst skólinn.
Daglegur viðverutími
nemenda í skóla er sífellt að
SÉRLEYFISBIFREIÐIR KEFLAVÍKUR
lengjast og því er ljóst að
uppeldishlutverk skólans
fer stöðugt vaxandi. Hluti
SIMATÍMI LÆKNA
á Heilsugæslustöð Suðurnesja I Keflavík:
ARNBJÖRN ÓLAFSSON:
Mánudagur: Kl. 8,15-9,00
Þriðjudagur: Kl. 8,15-9,00 og 12,15-13,00
Fimmtudagur: Kl. 8,15-9,00 og 12,15-13,00
Föstudagur: Kl. 12,15-13,00
HREGGVIÐUR HERMANNSSON:
Mánudagur: Kl. 13,00-13,45
Þriðjudagur: Kl. 13,00-13,45
Fimmtudagur: Kl. 9,00-9,45
Föstudagur: Kl. 9,00-9,45
JÓN A. JÓNSSON:
Mánudagur: Kl. 9,00-9,45
Miðvikudagur: Kl. 9,00-9,45 og 13,00-13,45
Föstudagur: Kl. 8,15-9,00 og 11,45-12,30
BIRKIR SVEINSSON:
Mánudagur: Kl. 11,30-12,45
Þriðjudagur: Kl. 11,30-12,15
Miðvikudagur: Kl. 11,30-12,15
Fimmtudagur: Kl. 11,30-12,15
Föstudagur: Kl. 11,30-12,15
PÁLL ÞORGEIRSSON:
Mánudagur: Kl. 12,00-12,45
Þriðjudagur: Kl. 9,00-9,45
Miðvikudagur: Kl. 9,00-9,45 og 12,30-13,00
Fimmtudagur: Kl. 9,00-9,45
Föstudagur: Kl. 12,15-13,00
SJÚKRAHÚS KEFLAVÍKURLÆKNISHÉRAÐS
HEILSUGÆSLUSTÖÐ SUÐURNESJA
SÍMI 4000
af uppeldishlutverki
heimila hefur því flust í æ
ríkara mæli yfir á skólana,
sem eru oftast vanbúnir að
sinna þessum nýju áhersl-
um, en þessi þróun er þess
valdandi að þörf er á sterk-
um tengslum heimila og
skóla. Okkur ber því að
styrkja þessi tengsl og
koma á raunverulegri sam-
vinnu heimila og skóla um
uppeldi barna. Stjórnirfor-
eldra- og kennarafélaga
hafa víðast þróast upp í að
verða einhvers konar
skemmtinefndir. Þetta þarf
að breytast svo von sé til
þess að alvöru tengsl og
samvinna verði um uppeldi
barna og unglinga. Einnig
þarf að losna við þann
gagnkvæma ótta sem oft
virðist vera á milli foreldra
og kennara.
Húsnæði skóla
Skólann þarf að gera að-
laðandi svo hann geti stuðl-
að að þroska allra nem-
enda, hvernig svo sem þeir
eru gerðir.
Allt sem hér hefur verið
sagt beinir athygli okkar að
húsnæðinu sjálfu og því
innra starfi sem þar fer
fram.
Ljóst er skólahúsnæði
þarf að vera stórt og rúm-
gott og þannig úr garði gert
að hægt sé að veita nemend-
um flesta þá þjónustu sem
barn þarfnast á heimili. Má
þar nefna að í hverjum
skóla þarf að vera aðstaða
til að veita eða selja nem-
endum heita máltíð, ekki
síst þeim eldri. Þá þurfa
nemendur aðstöðu til þess
að geta lokið vinnudegi sín-
um í skólanum og eiga þeir
þá að hafa lokið vinnu sinni
eins og flestir aðrir er heim
kemur.
Sannleikurinn er nefni-
lega sá, að oft er farið illa
með nemendur. Þá á ég við
að heimavinna er oft of
mikil. Þeir eru ekki fyrr
komnir heim en farið er að
jagast í þeim að fara nú að
læra heima - og oft nær
þessi vinna langt fram eftir
kvöldi. Þetta er ekki kenn-
urum að kenna - heldur
hitt, að kröfur til skóla um
fræðslu aukast stöðugt.
Detti mönnum eitthvað
nýtt í hug, sem nemendur
þurfa að tileinka sér, er
ævinlega bent á skólann.
Þar er þá komið nýtt náms-
efni, en ekkert er tekið út í
staðinn.
Hagsmunir barna
Við skulum minnast þess
að mannúðarsjónarmið
verða ætíð að ráða ferðinni í
skipulagi skólastarfs. Eins
og hér hefur komið fram er
skóli ekki eingöngu
fræðslustofnun, heldur - og
ekki síst - uppeldisstofnun,
og því ber okkur skólafólki
að skipuleggja skóla á þann
veg sem börnum hæfir best.
Börn hafa engan talsmann
til þess að gæta hagsmuna
sinna. Þegar barn segir í 5.
bekk: „Eg kvíði svo fyrir að
fara í nýjan skóla“, er
venjulega ekki hlustað.
Kerfið í Keflavík er svona,
því verður ekki breytt. Það
er þversum!!
En hver segir að við
búum við óbreytanlegt
kerfi? Hvers vegna rís for-
eldri ekki upp og krefst
breytinga? - og tekur þá til
greina ótta barnsins - eða
kannar hvort hann hefur
við einhver rök að styðjast?
Við vitum öll að þessi ótti er
til staðar hjá mörgum börn-
um.
í raun má segja að þetta
eitt séu nægjanleg rök til
þess að langskipta skóla.
Látum mannúðarsjónarmið-
ið ráða ferðinni. Gagn-
fræðaskólakerfið er löngu
dautt - en samt höldum við í
það!
Börn eiga rétt
Sumir halda því fram að
hugmynd mín um lang-
skiptan skóla byggi á litlum
rökum, þar sem ég taji mest
um kvíða nemenda. Eg hefi
að vísu komið með fleiri rök
í fyrstu grein minni. Hins
vegar vil ég enn undirstrika
það, að á meðan kvíði og
ótti er í hugum barna í 5. og
6. bekk, þá eru það sterk rök
með því að skipta skóla
langsum, þ.e. 0-9. bekk.
En enginn gerir neitt í mál-
inu.
Við sjáum í verslunum
undirskriftalista og áskor-
anir, sem liggja frammi um
alla skapaða hluti - en þegar
að börnum okkar kemur láta
flestir sér á sama standa,
eða hvað? Er von til þess að
foreldrar íhugi þetta í al-
vöru, láti sér koma þetta
við - og geri eitthvað i mál-
inu?
Við megum aldrei
gleyma mannlega þættin-
um. Börn eiga rétt á því að á
Framhald á bls. 16.