Víkurfréttir - 07.11.1985, Page 20
mun
juttit
Fimmtudagur 7. nóvember 1985
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Hafnargötu 32, II. hæð. - Simi 4717
Hún var stór rófan, sem Sigurbjörn Hallsson tók
upp nú nýlega út á Stafnesi. Þar hefur hann og fjöl-
skylda hans ræktað rófur um árabil og þar hafa
rófur af ýmsum stærðum komið upp eins oggengur.
En þessi sem þið sjáið hérá meðfylgjandi mynderað
öllum líkindum sú stærsta til þessa að sögn
Sigurbjarnar.
„Þetta gæti verið stærsta rófa landsins, þetta er
alla vega sú stærsta sem ég hef séð” sagði Sigurbjörn,
þegar hann kom með rófuna í myndatöku. „Hún
vóg tæp 6 kíló með kálinu, en þegar búið var að
snyrta hana vóg hún u.þ.b. 5 kíló”.
kmár.
V✓
Getraunasala UMFK og KFK:
Metsala frá upphafi
- 35 þús. raðir seldust í Keflavík
einnig verið metsala, en þá
seldust 26 þús. raðir. Otrú-
leg aukning á einni viku.
Mesta sala á sl. ári var 24
þús.raðir.
„Ahugi fyrir getraunum
er sífellt að aukast hér á
Suðurnesjum, enda er hér
um að ræða skemmtilegan
leik og dágóðar vinnings-
upphæðir, ef menn eru
heppnir. Fyrir utan það er
þetta góður stuðningur við
íþróttafélögin“, sagði
Gunnar Valdimarsson,
einn af umsjónarmönnum
getrauna UMFK og KFK.
Nokkrir góðir vinningar
hafa komið hingað suður
með sjó í haust. I næst síð-
ustu viku vann kona
nokkur úr Garðinum rúm-
lega 100 þús. kr. Svo vann
einn harðasti getrauna-
spekingur á Suðurnesjum,
Olafur I. Hannesson, rúm
200 þús. fyrir skömmu, eins
og greint var frá hér í blað-
inu. - pket.
Ásta Sigurðardóttir:
„Nei. Af hverju? Ég hef
bara aldrei hugsað út í það?
Gísli Garðarsson:
„Já, ég reikna með því að
búið sé að ganga frá því“.
RÓFAN ROSALEGA
Nætursöluleyfið tekið af pylsuvagninum í Sandgerði:
Hætti með vagninn“
segir Guðjón Bragason
.Spumingin:.
____Ert þú_____
líftryggð(ur)?
Sala getraunaseðla hjá
UMFK og KFK í Keflavík
sló öll met um síðustu helgi.
Þá seldust 35 þúsund raðir.
Vikuna á undan hafði
Með fullfermi af loðnu
Á miðvikudagsmorgun í síðustu viku kom loðnuskipið Jöfur KE 17 með fullfermi, eða 460 tonn af loðnu
til hafnar í Njarðvík og var þá þessi mynd tekin af skipinu. Loðna þessi fór í meltu hjá Valfóðri í Njarð-
vík, en hún var veidd á svokölluðu norð-vestur svæði og tók heimsiglingin 30 klst. - epj.
„Ég hætti, það er alveg á
hreinu. Sel vagninn. Þeir eru
búnir að kippa grundvellin-
um undan rekstrinum”,
sagði Guðjón Bragason,eig-
andi Pylsuvagnsins í Sand-
gerði, en eins og greint var
frá í blaðinu hefur staðið yfir
hitamál vegna staðsetningu
vagnsins og ónæðis frá
honum um nætur.
Á hreppsnefndarfundi
Miðneshrepps á miðviku-
dag í síðustu viku var sam-
þykkt tillaga að fella niður
opnunartíma frá kl. 24 um
helgar á þeirri lóð sem hann
stendur. Tillagan var sam-
þykkt 5:1. Grétar Mar
greiddi atkvæði á móti.
Elsa Kristjánsdóttir odd-
viti sat hjá.
„Ég held að þetta sé eitt-
hvað persónulegt í minn
garð hjá sumum hrepps-
nefndarfulltrúunum. Þeir
sem hafa harðast unnið á
móti þessu hafa forðast að
ræða þetta við mig. Þeir
hlusta ekki á nema annað
sjónarmiðið, - hlusta ekki á
mín rök“.
Pylsuvagninn í Sandgerði. Fljótlega hættir hann rekstri.
Af hverju ætlar þú að
hætta með vagninn?
„Um það bil helmingur
af sölunni er eftir miðnætti
um helgar, sérstaklega eftir
böll“.
Hreppsnefnd bauð Guð-
jóni að kosta undir vagn-
inn hjólabúnað svo hann
gæti fært vagninn á annan
stað eftir miðnætti. Hug-
myndir voru uppi um stað-
setningu þar sem gamla
slökkvistöðin er.
„Þegar ég var með hug-
mynd um færanlegan vagn
þá átti sá vagn að vera
miklu minni og auðveldari
til slíks brúks. Auk þess
sem ég ætlaði að vera við af-
greiðsluna. Konan mín sér
aftur á móti alveg um þetta
núna og égætla mérekkiað
fara að láta hana standa í
einhverjum flutningum í
alls konar veðrum. Frekar
hætti ég, úr því ég fæ ekki
að hafa þetta áfram eins og
verið hefur“, sagði Guðjón.
pket.
Bílvelta á Reykjanesbraut
SL.mánudagsmorgun
var bifreið ekið útaf
Reykjanesbraut og valt
hún. Var ökumaður fluttur
á sjúkrahúsið í Keflavík, en
hann var einnig grunaður
um ölvun við akstur.
í síðustu viku voru 5
manns flutt á sjúkrahús
eftir að bifreið sem fólkið
var í hafði verið ekið á kyrr-
stæðan vörubíl sem var
ljóslaus og skagaði hálfur
út á akbrautina á Miðnes-
heiði. Hefur fólkið allt
fengið að fara af sjúkrahús-
inu. - epj.
Guðbjörg Pétursdóttir:
„Nei, Guð, þið eruð al-
veg ferlegir".
—
María Hafsteinsdóttir:
„Nei, ég hef aldrei pælt í
því“.