Morgunblaðið - 16.10.2015, Side 1

Morgunblaðið - 16.10.2015, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 6. O K T Ó B E R 2 0 1 5 Stofnað 1913  243. tölublað  103. árgangur  ÞAR SEM HEIMURINN BRÁÐNAR ERFIÐASTA ARÍA SEM ÉG HEF SUNGIÐ AKIÐ VEL UNDIRBÚIN ÚT Í VETURINN RAKARINN FRÁ SEVILLA 30 VETUR LIFUNNORÐURSLÓÐIR BLAÐAUKI Grænlandsjökull minnkar um einn tíunda hluta af Vatnajökli á ári, 350 rúmkílómetra. Það þýðir að ef Vatnajökull bráðnaði jafnhratt og Grænlandsjökull hyrfi hann á tíu árum. Þetta kem- ur fram í máli Tómasar Jóhannessonar, hópstjóra jöklarann- sókna á Veðurstofu Íslands, í blaðauka um norðurslóðir, Sjötta skilningarvitið, sem fylgir Morgunblaðinu í dag. „Það er slá- andi,“ segir Tómas en bráðnun íss á Grænlandi er þrjátíu sinn- um meiri en á Íslandi. Í blaðinu getur að líta fjölmargar nýjar ljósmyndir Ragnars Axelssonar, teknar á norðurslóðum. Kevin Anderson, prófessor í orkumálum og loftslagsbreyt- ingum við Háskólann í Manchester, lýsir áhyggjum sínum af hlýnandi loftslagi. „Við erum í „uppbótartíma“ þegar kemur að hlýnun upp á 2 °C – og útlitið er ekki gott. Hvað sem því líður mun lífið halda áfram, jafnvel þótt við klúðrum kolefnisáætl- uninni upp á 2 °C, og við verðum bara að leggja enn harðar að okkur við að draga úr losun ásamt því að búa okkur undir áhrif staðbundinnar hlýnunar upp á 4, 5 eða jafnvel 6 °C í framtíð- inni,“ segir hann. orri@mbl.is Vatnajökull hyrfi á tíu árum Morgunblaðið/RAX  „Enn eru talsverðir fordómar gagnvart offitu og meðferðarúrræði hefur skort,“ segir Erla Gerður Sveinsdóttir, heimilislæknir, lýð- heilsufræðingur og formaður Félags fagfólks um offitu. Hún er önnur tveggja lækna sem nýlega fengu leyfi frá Sjúkratryggingum til að sinna þeim einstaklingum sem stríða við alvarlega offitu. Hún segir að hingað til hafi sjúk- dómurinn ekki verið meðhöndlaður eins og aðrir langvinnir sjúkdómar þótt hann hafi verið skilgreindur sem slíkur í áratugi. 59.000 Íslend- ingar eru taldir þjást af offitu, 55.000 fullorðnir og 4.000 börn. »18 59.000 Íslendingar taldir þjást af offitu  „Við erum enn að skoða þessa að- ferðafræði, eins og hún var lögð fyrir okkur. Við erum ekki komin á neinn leiðarenda í því,“ sagði Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, í gærkvöldi um stöðu kjaraviðræðna SFR, sjúkra- liða og lögreglumanna við ríkið. Boðað hefur verið til nýs fundar klukkan 10.30 í dag, að loknum samstöðufundi við stjórnarráðið. „Ef vel gengur eigum við von á að vinna áfram að þessu,“ segir Árni Stefán en tekur fram að það geti brugðið til beggja vona. »2 Áfram fundað um hugmyndir ríkisins Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Seðlabankinn verður að veita slita- búum föllnu viðskiptabankanna þriggja svör fyrir lok næstu viku varðandi þær undanþágubeiðnir sem bankinn hefur haft til meðferðar í þrjá mánuði. Að öðrum kosti mun slitastjórnunum ekki takast að ljúka við gerð nauðasamninga fyrir áramót eins og þeim er uppálagt að gera, ætli þær að komast hjá því að slitabúin þurfi að greiða 39% stöðugleikaskatt til ríkissjóðs. Þetta hefur Morgun- blaðið eftir áreiðanlegum heimildum. Slitastjórnirnar hafa stefnt að því að boða til fundar með kröfuhöfum búanna upp úr miðjum nóvember og miðast sú tímasetning við að hægt verði að leggja samþykkta samninga fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur til staðfestingar viku síðar. Ferlið fyrir dómstólum getur tekið nokkrar vik- ur, ekki síst ef kærur berast í tengslum við samningana eða málinu er skotið til Hæstaréttar. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins telja slitastjórnirnar að ekkert megi út af bera í ferlinu fram að áramótum og ólíklegt sé að nauðasamningar fáist endanlega staðfestir fyrir dómstólum verði samþykkt þeirra skotið til Hæstaréttar eða aðrar kærur lagðar fram meðan á meðferð Héraðsdóms stendur. Heimildir herma að dragist málsmeðferð fyrir dómstólum á lang- inn sé með öllu útilokað að nauða- samningar nái í gegn fyrir áramót. Slitastjórn gamla Landsbankans er sú eina sem lýst hefur yfir því formlega hvenær hún stefnir að fundi þar sem nauðasamningur verður bor- inn upp til atkvæðis og miðar hún við að fundurinn verði haldinn 17. nóv- ember næstkomandi. Hún þarf þó fjórar vikur til að boða til fundarins, rétt eins og í tilviki Kaupþings. Slita- stjórn Glitnis getur boðað til kröfu- hafafundar með þriggja vikna fyrir- vara. Morgunblaðið reyndi að ná tali af seðlabankastjóra vegna þeirrar stöðu sem upp er komin við frágang nauða- samninga en ekki náðist í hann. Sam- kvæmt upplýsingum frá Seðlabank- anum er hann staddur í leyfi erlendis og væntanlegur aftur til landsins á fimmtudaginn kemur. Sjö dagar til stefnu hjá slitabúunum MSlitastjórnir telja »16  Svars Seðlabankans vegna undanþágna frá höftum er beðið Morgunblaðið/Golli Slit 76 dagar eru nú eftir af árinu. Áberandi lægð sést á yfirborði Vatnajökuls suð- ur úr Eystri Skaftárkatli. Tal- ið er að aukinnar jarðhitavirkni gæti þar og að jarðhitasvæðið hafi teygt sig á nýjan stað undir jöklinum. Vatnið safnaðist fyrir í Eystri Skaftárkatli á lengri tíma en venju- lega. Yfirleitt höfðu liðið um þrjú ár á milli hlaupa en nú voru þau fimm. Ekki er vitað hvað olli því að hlaupið kom ekki fyrr en nú. Talið er að umfang Skaftár- hlaupsins hafi verið 400-500 gígalítr- ar (400-500 milljónir rúmmetra). Það samsvarar um fjórðungi af vatnsmagninu í Hálslóni. Rennslið í hlaupinu er talið hafa verið 3-4 þús- und m3/s þegar mest var. Tölurnar eru áætlaðar á grundvelli fyrirliggj- and gagna. Almannavarnir hafa aflýst hættu- stigi vegna Skaftárhlaupsins. »6 Ketillinn hefur stækkað Hlaupið Óvenju langur aðdragandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.