Morgunblaðið - 23.10.2015, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 3. O K T Ó B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 249. tölublað 103. árgangur
MATUR OG
HUGGULEG-
HEIT UM JÓL
GEFA ÚT Á NETINU DVERGURINN
ÓLÖF ESKIMÓI
KVEIKJAN
PLATAN KAFARAR FRÁ LOCKERBIE 41 LISTAKONUR 10JÓLAHLAÐBORÐ 16 SÍÐUR
„Sænska þjóðin er í losti,“ sagði Karl
16. Gústaf Svíakonungur í yfir-
lýsingu eftir árás 21 árs gamals
manns í skóla í bænum Trollhättan í
gærmorgun. Árásin vekur mikinn
óhug meðal Svía, enda er þetta
fyrsta mannskæða árásin í sænskum
skóla frá 1961. „Þetta var ekki aðeins
árás á skólann, heldur alla Svíþjóð,“
hafði fréttastofan TT eftir Gustaf
Fridolin, menntamálaráðherra
landsins.
Kennari lét lífið í árásinni og 11
ára piltur og árásarmaðurinn létust
síðar af sárum sínum á sjúkrahúsi.
Annar kennari og 15 ára nemandi
voru í lífshættu í gærkvöldi.
Fregnir hermdu að fyrir árásina
hefði árásarmaðurinn sett mynd-
skeið á YouTube þar sem hann hefði
lofsamað Adolf Hitler og þýska nas-
ista en gagnrýnt íslam og innflytj-
endur í Svíþjóð. Maðurinn var svart-
klæddur, með grímu sem minnti á
Svarthöfða í Stjörnustríðsmyndun-
um. „Við héldum að þetta væri
hrekkjavökugrín,“ sagði stúlka sem
sá árásarmanninn í skólanum. »19
„Sænska þjóðin í losti“
Árás í skóla vekur mikinn óhug meðal Svía Þrír létu lífið
AFP
Svíþjóð Sænski fáninn í hálfa stöng
við ráðhúsið í Trollhättan í gær.
Landsfundur Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs verð-
ur haldinn um helgina og settur
í dag. Ekki er búist við framboði
gegn sitjandi formanni flokksins
en í ljós á þó enn eftir að koma
hvort Daníel Haukur Arnarsson,
starfsmaður Vinstri grænna, gefi
kost á sér til embættis varafor-
manns.
Mjög hefur verið þrýst á Daní-
el Hauk að gefa kost á sér til
embættisins. „Þetta sýnir, að ég
held, fyrst og fremst hversu mik-
ið líf og gróska er í hreyfing-
unni,“ segir Daníel Haukur, en
frestur til framboðs rennur út í
kvöld. » 16
Mögulegt framboð
til varaformanns VG
Guðni Th. Jóhannesson, dósent í
sagnfræði við Háskóla Íslands og
formaður stjórnarnefndar Þjóð-
skjalasafns Íslands, segir það alvar-
legt mál ef rafænum gögnum emb-
ættismanna er eytt.
„Þetta er ljótt ef satt reynist.
Lögfróðari menn en ég myndu taka
undir að þetta væri lögbrot. Svo er
það skyldan gagnvart þeim sem á
eftir okkur koma. Það hvílir sú
skylda á fólki að halda til haga
heimildum. Það má ekki eyða op-
inberum gögnum af þessu tagi,“
segir Guðni.
Tilefnið er umfjöllun Morgun-
blaðsins um eyðingu allra tölvu-
pósta 11 fyrrverandi starfsmanna
viðskiptaráðuneytisins, að beiðni
efnahags- og viðskiptaráðuneyt-
isins. Engin afrit eru til af póst-
unum.
„Ef þetta hefur verið venjan vona
ég að menn hætti því hið snarasta
að eyða tölvupóstum og öðrum raf-
rænum gögnum,“ segir Guðni.
Hann telur það munu torvelda
uppgjör sagnfræðinga í framtíðinni
á árunum eftir hrunið ef ráðuneytin
láta eyða tölvupóstum. »4
Alvarlegt
mál að
gögnum
sé eytt
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Kjaraviðræður SFR, Sjúkraliða-
félags Íslands og Landssambands
lögreglumanna annars vegar og
ríkisins hins vegar eru langt á veg
komnar og hefur samkomulag
náðst um grundvallaratriðin.
Að sögn Árna Stefáns Jónsson-
ar, formanns SFR, hafa samninga-
nefndirnar sammælst um kostn-
aðarramma nýs kjarasamnings og
viðræðurnar snúist nú um að fylla
inn í hann.
Samninganefnd ríkisins hefur
verið svifasein síðustu daga, en
dráttur hefur verið á svörum
hennar við hugmyndum hinum
megin borðsins. Nokkurrar óþol-
inmæði hefur því gætt innan raða
samflotsins vegna seinna svara, en
að sögn Árna hefur hægagangi
verið misvel tekið, menn séu mis-
þolinmóðir. Þrátt fyrir að sam-
komulag sé um grundvallaratriðin
gætir enn efnislegs ágreinings
meðal samningsaðilanna um sér-
málin. Treystir Árni sér því ekki
til að fullyrða hvenær kjaravið-
ræðum ljúki og skrifað verði undir
samning. Fundað var fram eftir
kvöldi í gær og halda á áfram í
dag.
Kjaraviðræður langt komnar
Samkomulag um kostnaðarramma samnings Tekist er á um sérmálin
Rofar til í viðræðunum
» Samkomulag er um kostn-
aðarramma kjarasamninga
BSRB-félaganna.
» Enn er eftir að semja um
sérmál félaganna og verður því
fundað áfram næstu daga.
MMenn misþolinmóðir »2
Grunur leikur á að manndráp hafi
verið framið í búsetukjarna fyrir
geðfatlaða við Miklubraut í Reykja-
vík í gærkvöldi.
Samkvæmt fyrstu fregnum var
um að ræða áflog á milli íbúa í hús-
inu en Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirmaður rannsóknardeildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
staðfesti í samtali við Morgunblaðið
á tólfta tímanum í gærkvöldi að mað-
ur hefði látist og að annar maður
hefði verið handtekinn, grunaður um
verknaðinn.
Mikill viðbúnaður var á vettvangi.
Þrjár sjúkrabifreiðar voru kallaðar
til auk fjölda lögreglubifreiða, sam-
kvæmt upplýsingum frá slökkvilið-
inu á höfuðborgarsvæðinu.
Frekari upplýsingar lágu ekki
fyrir þegar Morgunblaðið fór í
prentun á miðnætti og voru rann-
sóknarlögreglumenn enn á vettvangi
og búnir að girða hann af.
Mann-
dráp við
Miklu-
braut
Einn grunaður
um verknaðinn
Morgunblaðið/Júlíus
Miklabraut Lögreglan handtekur manninn við Miklubraut í gærkvöldi, grunaðan um manndráp eftir áflog í húsinu.