Morgunblaðið - 23.10.2015, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015
„Við reynum að
svara eftir bestu
getu og okkur ber
ávallt skylda til að
svara,“ segir El-
liði Vignisson,
bæjarstjóri Vest-
mannaeyja, um þá
stöðu sem komin
er upp hjá stjórn-
völdum þar í bæ,
að mikill fjöldi
beiðna um aðgengi að fyrirliggjandi
gögnum um mál streymir inn frá ein-
um bæjarbúa, en hann hefur sent um
126 erindi það sem af er ári. Íbúinn
kærir svo gjarnan alla úrskurði til úr-
skurðarnefndar um upplýsingamál,
sem nýlega úrskurðaði í sex kærum á
hendur Vestmannaeyjabæ.
Bærinn íhugar að ræða við þing-
heim um mögulegar lagabreytingar á
upplýsingalögum til að hægt verði að
hafna ómálefnalegum erindum og
þeim sem send eru í svo miklum
mæli. „Engum er greiði gerður með
því að stífla stjórnsýsluna.“
Oddur Þorri Viðarsson, ritari úr-
skurðarnefndar um upplýsingamál,
segir að lögin kveði á um að stjórn-
völd hafi heimild til að hafna meðferð
erindis ef meðferð þess sé tímafrek
og það gæti einnig átt við varðandi
fjölda erinda frá einum aðila. „Mál
þar sem stjórnvöld hafna erindi á
þessum grundvelli hafa ekki enn bor-
ist nefndinni.“ laufey@mbl.is
Stjórn-
sýslan
stífluð
Bæjarbúi leitar
ítrekað upplýsinga
Elliði
Vignisson
Sigrún Magnús-
dóttir, settur for-
sætisráðherra í
málinu, hefur fall-
ist á tillögu Minja-
stofnunar Íslands
frá 24. september
sl. um að friðlýsa í
heild sinni hafn-
argarð sem þver-
ar lóðina Aust-
urbakka 2 í
Reykjavík. Forsætisráðuneytið mun
á næstunni kalla saman hagsmuna-
aðila málsins til að kanna hvort
ásættanleg lausn finnst í málinu.
Á umræddri lóð eru tvennar minj-
ar; annars vegar svokallað bólverk í
suðausturenda lóðarinnar hlaðið ár-
ið 1876 og hins vegar umræddur
hafnargarður hlaðinn árið 1913.
Hvorar tveggja minjarnar eru eldri
en 100 ára og eru því friðaðar sam-
kvæmt lögum.
Fallist á tillögu um
friðun hafnargarðsins
Sigrún
Magnúsdóttir
Glæný bók með
gamansögum
úr Kópavogi!
Hér stíga fjölmargir Kópa-
vogsbúar fram í sviðsljósið
og segja sögur af sér og
öðrum. Að sjálfsögðu fylgir
smellinn kveðskapur með!
Útgáfuteiti í Bókasafni
Kópavogs, Hamraborg 6a,
föstudaginn 23. okt.
klukkan 16–17.
Kaffi og kleinur.
Allir velkomnir! www.holabok.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þjóðskjalavörður telur vísbendingar
um að reglur um skilaskyldu á opin-
berum gögnum hafi verið brotnar á
síðustu árum.
Eins og fram
hefur komið í
Morgunblaðinu
fékk Rekstrar-
félag Stjórnar-
ráðsins beiðni frá
efnahags- og við-
skiptaráðuneyt-
inu um eyðingu
pósthólfa 11 fyrr-
verandi starfs-
manna, þ.m.t. hjá
Jónínu S. Lárusdóttur, fv. ráðu-
neytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu.
Guðmundur H. Kjærnested, fram-
kvæmdastjóri rekstrarfélagsins,
staðfesti í tölvupósti til blaðsins að
hvorki upprunalegu pósthólfin né
afrit þeirra eru til. Jónína var ráðu-
neytisstjóri árin 2007-2009.
Fram kom að tölvupóstum Jónínu
hefði verið eytt þegar sérstakur sak-
sóknari kannaði hvort lögáskilið
samþykki ráðherra væri fyrir gjald-
eyrisreglum Seðlabankans.
Guðmundur svaraði ekki fyrir-
spurn blaðsins í gær um hvort það
eigi almennt við öll ráðuneyti að afrit
séu tekin af tölvupósthólfum, sam-
kvæmt afritunaráætlun Stjórnar-
ráðsins, og varðveitt í 9 mánuði eftir
starfslok, áður en þeim er eytt.
Eiríkur G. Guðmundsson, þjóð-
skjalavörður, segir Stjórnarráðið
heyra undir ný lög um opinber
skjalasöfn frá árinu 2014, sem tóku
við af eldri lögum um þjóðskjalasafn.
Að sögn Eiríks var ekki kveðið á
um viðurlög í gömlu lögunum, ef
skilaskylda á gögnum var ekki virt. Í
nýju lögunum sé hins vegar kveðið á
um viðurlög og refsingar og varða
brotin sektum og fangelsi allt að
þremur árum.
Vísbendingar um brot
„Vísbendingar um brot á lögun-
um hafa komið fram. Slík mál verða
athuguð,“ segir Eiríkur, sem kveðst
aðspurður líta svo á að hver sem er
geti kært meint brot á lögunum. Þó
megi gera ráð fyrir því að það verði
oftast opinbert skjalasafn, Þjóð-
skjalasafn eða héraðsskjalasafn.
„Öll stjórnsýslan notar meira og
minna rafræn skjöl og þyrftu því all-
ir opinberir aðilar að hafa rafrænt
skjalastjórnarkerfi, en á því er mis-
brestur. Skjalastjórnarkerfi þarf að
fá samþykkt hjá Þjóðskjalasafni.
Slíkri beiðni fylgja margvíslegar lýs-
ingar á skipulagi kerfisins og hvern-
ig unnið skuli með það. Stjórnvöld
þurfa að sækja um heimild til að
eyða gögnum, ef ekki liggur fyrir
regla eða önnur heimild sem leyfir
eyðingu gagna.
Af því að lögin eru nýtilkomin eig-
um við eftir að setja talsvert af
reglum um skjalavörslu. Með nýju
lögunum frá 2014 kemur fyrst al-
mennilega fram að hlutverk okkar sé
að setja reglur um rafræna skjala-
stjórn og skjalavörslu. Síðan eigum
við að setja reglur um eyðingu
gagna. Þeirri vinnu er ekki lokið.
Fyrir nokkrum árum voru settar
reglur á sveitarstjórnarstiginu og er
í undirbúningi að setja sambæri-
legar reglur hjá ríkinu.“
Þurfa leyfi til að eyða gögnum
„Segja má að nú sé millibils-
ástand meðan unnið er að innleið-
ingu nýju laganna. Þau eru talsvert
ýtarlegri og öflugri en áður var.
Meginreglan er sú að ekki megi
eyða gögnum nema fyrir hendi sé
leyfi frá Þjóðskjalasafni, eða að til
séu reglur sem Þjóðskjalasafnið
hefur gefið út og ráðuneytið sam-
þykkt.“
Þjóðskjalasafnið heyrir undir
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið. Ekki náðist í Illuga Gunnars-
son, mennta- og menningarmálaráð-
herra, vegna málsins.
Athugar hvort ráðuneyti
hafi ekki virt skilaskyldu
Þjóðskjalavörður segir vísbendingar um brot á reglum um gagnaskil í athugun
Eiríkur G.
Guðmundsson
Fái rafræn gögn
» Árið 2009 er sett í lög um
Þjóðskjalasafn að það sé m.a.
hlutverk þess að taka við raf-
rænum gögnum.
» Áður var miðað við skil
gagna, pappírsgagna, þegar
þau voru 30 ára.
» Árið 2009 kom inn reglan
um 5 ár fyrir rafræn gögn.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Íbúðir eldri borgara í Mörk ehf. og
ÞG verktakar ehf. undirrituðu í gær
samning um byggingu 74 íbúða fyrir
60 ára og eldri á lóðunum Suður-
landsbraut 68-70, austan megin við
hjúkrunarheimilið Mörk.
Verkefni upp á tvo milljarða
Að sögn Gísla Páls Pálssonar,
forstjóra Markar, er samningurinn
upp á rúma tvo milljarða króna og er
búist við því að byggingu verði lokið
í byrjun árs 2018.
Í fréttatilkynningu frá Mörk
segir að ákveðið hafi verið að velja
verktaka og semja beint við hann um
verkið og mun hann skila af sér full-
kláruðu verki. Þá verða Gláma Kím
arkitektar hönnuðir að íbúðunum og
deiliskipulagsbreyting á ofan-
greindum lóðum er í ferli í borgar-
kerfinu.
Íbúðirnar eru frá 72 fermetrum
upp í 100 fermetra. Langflestar eru
við minni stærðarmörkin enda hefur
eftirspurn eftir slíkum íbúðum verið
mest hjá Grund-Mörkinni. „Með
þessum byggingum erum við að
bregðast við mikilli eftirspurn eftir
minni íbúðunum, enda eru rúmlega
120 manns á biðlista eftir slíkum
íbúðum,“ segir í tilkynningu.
Júlíus G. Rafnsson og Gísli Páll
Pálsson undirrituðu samninginn fyr-
ir hönd Markar en Þorvaldur Giss-
urarson fyrir hönd ÞG-verktaka.
74 íbúðir rísa í Mörkinni
Ljósmynd/Mörk
Samið Júlíus G. Rafnsson, Þorvaldur Gissurarson og Gísli Páll Pálsson.
Íbúðir fyrir
60 ára og eldri
Mikið var að gera á Hjólbarðaverk-
stæði Sigurjóns í Hátúni í gær og
mynduðust langar biðraðir þegar
mest var. Margir eru orðnir meðvit-
aðir um það, af biturri reynslu, að
kulda fylgi gjarnan hálka og betra
er að skarta djúpum rákum eða
nöglum á hjólbörðunum þegar
undirlagið er svikult. Á morgun,
fyrsta vetrardag, er búist við frosti
víða um land og því ekki seinna
vænna að undirbúa fararskjótana.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barðarnir gerðir klárir fyrir veturinn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók í gærkvöldi mann sem
grunaður er um að hafa átt aðild að
ráni í skartgripaversluninni Gull-
smiðjunni í Hafnarfirði í gær. Við
handtökuna skaut hinn grunaði úr
loftbyssu í átt að lögreglu, en að að-
gerðum komu lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislög-
reglustjóra og lögreglan á
Suðurnesjum. Hinn grunaði var í
kjölfarið fluttur til Reykjavíkur.
Annar ræningi ófundinn
Annars manns var enn leitað í
gærkvöldi vegna ránsins, en ræn-
ingjarnir tveir brutust inn í versl-
unina, ógnuðu starfsmanni með bar-
eflum og brutu upp hirslur í
versluninni. Starfsmann verslunar-
innar sakaði ekki. Þeir sem búa yfir
upplýsingum um málið eru beðnir að
hafa samband við lögregluna á
höfuðborgarsvæðinu.
Skaut í átt
að lögreglu
við eftirför
Rán í Hafnarfirði