Morgunblaðið - 23.10.2015, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.10.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015 Í fyrradag funduðu þrír ráð-herrar með almenningi um hús- næðismál og hvernig auka mætti hagkvæmni bygginga. Þetta var vel til fundið enda brýnt að finna leiðir til að draga úr óþörfum byggingar- kostnaði og auðvelda fólki að reisa sér og sínum þak yfir höfuðið.    Ekki skal undra að byggingar-reglugerðin hafi átt hug fundarmanna, því að sú sem sett var fyrir nokkrum árum er ákaf- lega íþyngjandi og hafa margir fært skynsamleg rök fyrir því að hún auki byggingarkostnað að óþörfu.    Eðlilegt er að í byggingar-reglugerð sé kveðið á um at- riði á borð við öryggi, en núgild- andi reglugerð gengur miklu lengra en það og setur kröfur um ýmislegt sem eðlilegt er að hver og einn ráði fyrir sig.    Það er ekki ríkisins að ákveðastærð geymslunnar eða skipu- lag íbúðar, íbúarnir hljóta sjálfir að vera fullfærir um að ákveða slíkt og þeim ætti að vera heimilt að spara byggingarkostnað með því að hag- ræða slíkum hlutum ef þeir ógna ekki öryggi eða öðrum hagsmunum annarra.    Ýmislegt annað en byggingar-reglugerðin, svo sem skipulag og lóðaframboð, skiptir máli þegar kemur að því að auðvelda fólki að reisa hagkvæmar byggingar.    Sumt af því er verkefni sveitar-stjórna, ekki síst Reykjavíkur sem hefur lengi dregið lappirnar í þessu sambandi, en eitt fyrsta verk- efni ráðherranna hlýtur að vera að ráðast á reglugerðafrumskóginn. Ofvaxin reglugerð STAKSTEINAR Veður víða um heim 22.10., kl. 18.00 Reykjavík 4 alskýjað Bolungarvík 2 skýjað Akureyri 2 alskýjað Nuuk -3 léttskýjað Þórshöfn 9 skýjað Ósló 11 léttskýjað Kaupmannahöfn 12 skýjað Stokkhólmur 12 skýjað Helsinki 8 skúrir Lúxemborg 10 skýjað Brussel 13 skýjað Dublin 12 léttskýjað Glasgow 12 skýjað London 13 alskýjað París 12 alskýjað Amsterdam 12 skýjað Hamborg 12 skýjað Berlín 10 súld Vín 10 léttskýjað Moskva 2 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 21 heiðskírt Barcelona 18 heiðskírt Mallorca 18 léttskýjað Róm 16 heiðskírt Aþena 22 þrumuveður Winnipeg 6 heiðskírt Montreal 12 skýjað New York 20 heiðskírt Chicago 14 skýjað Orlando 26 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 23. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:42 17:43 ÍSAFJÖRÐUR 8:56 17:39 SIGLUFJÖRÐUR 8:40 17:21 DJÚPIVOGUR 8:14 17:10 Skjár 1 opnaði dagskrá sína fyrsta október. Stöðin hefur alltaf verið vinsæl meðal ungs fólks frá stofnun hennar og hafa áhorfendur stöðvarinnar tekið The Voice opnum örm- um. Er þátturinn langvinsælasti föstudags- þátturinn í aldursflokknum 12-49 ára. Þátt- urinn er stærsta verkefni sem Skjár 1 hefur ráðist í og tók 18 mánuði að undirbúa birt- ingu hans á skjám landsmanna. „Áhorfið hefur verið umfram þó miklar væntingar,“ segir Pálmi Guðmundsson, forstöðumaður ljósvakamiðla Símans, sem brosir yfir nið- urstöðunum. Hann segir að þjálfararnir skipi veigamikinn sess í því hve vinsæll þátt- urinn sé en þær Salka Sól, Svala Björgvins og þeir Helgi Björns og Unnsteinn Manuel munu þjálfa þá keppendur sem komast áfram. „Við höfðum ekki mikinn tíma til að velja þjálfara en við vorum aldrei í vafa að þarna færi góður hópur.“ The Voice er til víða annars staðar en á Ís- landi, meðal annars í Afganistan, Kanada, Síle, Danmörku, Frakklandi og Bandaríkj- unum. „Við erum með fáa þætti en stóra. Það er okkar stefna og við höfum hallað okkur að þáttum að erlendri fyrirmynd því þá höfum við erlenda útgáfu til samanburðar og mark- aðssetningar. Þá er auðveldara að gera ís- lenska útgáfu,“ segir Pálmi en nú standa yfir tökur á Biggest Looser-þáttunum í Ásbrú, sem Pálmi kallar Litla-Hollywood. „Eftir að við opnuðum dagskrána þá eigum við eftir að sýna fyrstu þáttaröðina af Biggest Loos- er fyrir stórum hópi. Það verður spennandi og skemmtilegt,“ segir sjónvarpsstjórinn. Færri þættir en þeim mun stærri Pálmi Guðmundsson  Skjár 1 slær í gegn meðal ungs fólks  Bandarísk form virka á Íslandi Fyrirtækinu Ice Lagoon ehf. hefur verið bannað að gera út báta með ferðamenn á Jök- ulsárlóni frá landi jarðarinnar Fells. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm þar að lútandi í gær. Eigandi fyrirtæk- isins Jökulsárlóns ehf., Einar Björn Einarsson, fór fram á bannið, en fyrirtæki hans hef- ur verið með ferðaþjónusturekstur á Jökulsárlóni í 15 ár með samningi við landeigendur um starfsemina frá því árið 2000. Sagði hann að nýr samningur landeigenda árið 2012 við Ice Lagoon um ferðaþjónusturekst- ur á svæðinu bryti á réttindum sín- um. Féllst héraðsdómur á það. Ingvar Þórir Geirsson, eigandi Icelagoon ehf., sagði í samtali við mbl.is að niðurstöðunni yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Þá sagði hann að ef niðurstaðan yrði staðfest myndi það gera út af við starfsemina en hjá fyr- irtækinu starfa 10 manns. Bannað að gera út á lóninu  Dómi verður vísað til Hæstaréttar Jökulsárlón Dómnum verður áfrýjað. AT H YG LI -O kt ób er 20 15 Klettagörðum5 | 104 Reykjavík | stolpigamar.is ÍtölskuMABER vinnulyfturnar hafa reynst vel við íslenskar aðstæður á undanförnumárum. MABERvinnulyftur ÝMSAR TEGUNDIR AF VINNULYFTUM, S.S. VÖRU-, FÓLKS- OG VINNUPALLALYFTUR. Hafðu samband 5680100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.