Morgunblaðið - 23.10.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015
Síðumúla 13 | 108 Reykjavík | Sími 571-3566
Opið:
Þri. - föst. 10-18
laugardaga 11-16
facebook.com/biumbiumstore
Instagram: @biumbiumstore
Vönduð
falleg
föt frá
...útiföt
...ullarföt
...hversdagsföt
...spariföt
...fyrir mikilvægasta fólkið
Vefjagigt
Losnaði við
verki og bólgur
á 3 vikum
Umboðsaðili: Celsus
Fæst í apótekum, heilsubúðum, stórmörkuðum og Fríhöfninni.
Ásdís Ómarsdóttir þjáðist af verkjum vegna
vefjagigtar í 14 ár og var hjá sjúkraþjálfara
reglulega. Með Lifestream AstaZan losnaði hún
við festumein, bólgur og verki. Hún þakkar
AstaZan betri líðan, betri svefn og meira úthald
sem skapar fleiri gæðastundir með fjölskyldunni.
Sjúkraþjálfarar og íþróttafólk
mæla með AstaZan frá Lifestream
• Lagar og fyrirbyggir bólgur,
stirðleika og eymsli.
• Eykur styrk, hreyfigetu
og endurheimt.
Astaxanthin 4mg, Lutein 4mg, lífrænt E-vítamín 10mg
Töflu vantaði í grein Sveins Óskars
Sveinn Óskar Sigurðsson ritaði greinina Sósíalisminn í Sjálfstæðisflokknum í
Morgunblaðið í gær. Þau mistök áttu sér stað að tafla, sem átti að fylgja
greininni og vísað var til, birtist ekki.
Taflan er birt hér og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar.
LEIÐRÉTT
Lykiltölur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Grunnskólar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Skuldir
af tekjum
A-hluta
Skuldir
af tekjum
A+B-hluta
Veltufjhl A
hluta
Börn á
stöðugildi
Stöðugildi ef
1000 börn
Skortur á
stöðugildum
m.v. RVK
Skortur á
stöðugildum
m.v. Stjnes
Reykjavík 77% 216% 1,31 10,0 100 0 11
Kópavogsbær 160% 186% 0,41 10,5 95 5 16
Seltjarnarnes-
kaupstaður 49% 48% 3,74 9,0 111 0 0
Garðarbær 98% 93% 0,76 10,5 95 5 16
Hafnafjarðar-
kaupstaður 185% 202% 0,24 10,0 100 0 11
Mosfellsbær 141% 144% 0,31 10,6 94 6 17
Heimild: Notaðu lykiltölur við stjórnun - Þekktu sveitarfélagið þitt - Samband íslenskra sveitarfélaga, hag- og
upplýsingasvið, september 2015
Rangt eftir haft í viðtali
Í viðtali við Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í
sérblaði um nýsköpun í Morgunblaðinu í gær var rangt eftir henni haft orðið
fyrirbrigði. Hið rétta er að hún talaði um fyrirtæki.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Árbæjarsafn er lokað
Ranghermt var í frétt í gær um fjölbreytta dagskrá í vetrarfríi að Árbæj-
arsafn væri opið. Árbæjarsafn er alltaf lokað á veturna fyrir utan leiðsögn
kl.13.
Gunnar Sigurðsson,
fyrrverandi bóndi í
Seljatungu í Gaulverja-
bæjarhreppi, lést í
gærmorgun. Hann varð
91 árs. Gunnar var mik-
ill félagsmálamaður.
Einar Gunnar Sig-
urðsson fæddist í Selja-
tungu 16. júlí 1924.
Foreldrar hans voru
hjónin Sigurður Ein-
arsson bóndi þar og
Sigríður Jónsdóttir
ljósmóðir.
Gunnar ólst upp í
Seljatungu og tók við
búi af foreldrum sínum. Hann varð
ungur virkur í félagsmálum. Tók
meðal annars þátt í störfum ung-
mennafélaganna. Hann ritaði 40 ára
starfssögu Ungmennafélagsins
Samhygðar. Þá var hann frá unga
aldri virkur í starfi Sjálfstæðis-
flokksins. Var einn af stofnendum
Félags ungra sjálfstæðismanna á
Suðurlandi og sjálfstæðisfélagsins
Trausta í Flóanum. Gunnar var lengi
fulltrúi hrepps síns í sýslunefnd Ár-
nessýslu. Hann var í
stjórn Sjúkrahúss Ár-
nessýslu og stjórn
Áburðarverksmiðju
ríkisins. Hann var
lengi formaður sókn-
arnefndar Gaulverja-
bæjarsóknar og stóð
að endurbyggingu
kirkjunnar. Gunnar
var fréttaritari Morg-
unblaðsins um árabil.
Eiginkona Gunnars
var Vilhelmína Valdi-
marsdóttir frá Stokks-
eyri. Hún lést fyrir
tveimur árum. Dætur
þeirra eru Guðný Vilborg, Sigrún
Sesselja, Margrét Kristín og Laufey
Sigríður. Þau ólu einnig upp að
stórum hluta dótturson sinn, Einar
Gunnar Sigurðsson.
Gunnar brá búi 1984 og vann eftir
það hjá sýslumanninum á Selfossi
við umboð Tryggingastofnunar rík-
isins. Þau hjónin fluttu í Kópavog
2001. Gunnar lést á hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ þar sem hann dvaldi
síðustu mánuðina.
Andlát
Gunnar Sigurðsson
Fyrsti rjúpnaveiðidagurinn er í dag og vöknuðu skytt-
ur snemma í morgun til að halda til veiða. Leyfilegt er
að veiða næstu fjórar helgar, föstudag til sunnudags.
Dúi Landmark, formaður SKOTVÍS, segir að hugur
sé í skotveiðimönnum og -konum. Sjálfur ætlar hann að
skella sér í veiðitúr þessa fyrstu helgi.
„Veiðimenn eru í eðli sínu bjartsýnir. Spáin er ekkert
sérstök fyrir helgina, það er veðrið sem ræður miklu í
þessari veiði. Eins og spáin er núna er líklegt að skyttur
á Austurlandi og suðvesturhorninu fái skárra veður.“
Hann er ekki hrifinn af kvótaögun eins og nú er við
lýði því veðurspáin er slæm, sérstaklega á Vestfjörðum,
Verið sé að reka skyttur af stað til fjalla. „Það er okkar
skoðun í SKOTVÍS að þessa fáu dagar sem við fáum að
fara þá fari fólk í allskonar veðrum og vindum. Í fyrra
var hægt að fara með góðu móti tvo heila daga. Áhætt-
an er of mikil og það er verið að þrælast á fjöll af því að
skyttur vilja ná í jólamatinn.“
Farsímavæðing skyttna
Útköllum björgunarsveita vegna rjúpnaveiðimanna
hefur fækkað til muna síðustu ár og er það almennt að
þakka betri undirbúningi veiðimanna fyrir veiðar
ásamt aukinni gps- og farsímavæðingu. Slysavarna-
félagið Landsbjörg ásamt SKOTVÍS sendi frá sér til-
kynningu þar sem þessum niðurstöðum er fagnað um
leið og félögin hvöttu veiðimenn að fara varlega á veið-
um.
Hugur í rjúpnaveiðimönnum
Morgunblaðið/Golli
Skytta Rjúpnaveiði hófst í dag og veiða má til 15. nóvember.
Veðrið ræður för Skyttur almennt bjartsýnar
Áhorf á Útsvarið 24,2%
Í frétt blaðsins í gær þar sem bornir voru saman þrír sjónvarpsþættir á
föstudagskvöldum, Vikan með Gísla Marteini, Logi í beinni og The Voice var
fyrirsögn fréttarinnar The Voice langvinsælast á föstudögum. Þátturinn er
vissulega vinsælasti þátturinn af þeim sem bornir voru saman en Útsvar var
vinsælast á þessum kvöldum með 24,2% áhorf eða tveimur prósentustigum
meira en The Voice. Þeir þrír þættir sem ákveðið var að bera saman eru allir
í opinni dagskrá og á svipuðum tíma.
ÁRÉTTING