Morgunblaðið - 23.10.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015
Eva Björk Ægisdóttir, ljósmyndari
Morgunblaðsins, var á leið upp
Reykjanesbraut í fyrradag eftir að
hafa myndað naut og kvígur í girð-
ingu skammt frá, þegar hún tók eftir
nauti utan girðingar. „Mér brá mikið
enda á maður síst von á því að mæta
nauti við fjölfarnasta veginn á
Reykjanesi,“ segir Eva.
Eva segir að fyrstu viðbrögð hafi
verið að hringja í lögregluna. „Ef
þetta hefði verið kvíga hefði ég reynt
að reka hana aftur inn í girðinguna
en þar sem þetta var naut tók ég
enga áhættu, því maður veit aldrei
hverju naut taka upp á,“ segir hún.
Skömmu síðar hafi maður komið frá
byggðinni og hann hafi greinilega
kunnað vel til verka. „Hann var með
nagla í dós, hristi dósina, gekk á
undan nautinu inn í girðinguna, þar
sem fleiri gripir voru, og nautið elti.
Skömmu síðar kom eigandinn og fór
vel á með honum og nautinu.“
Eva segir að vissulega hefði getað
farið illa ef nautið hefði farið út á
þjóðveginn en það hafi verið hið ljúf-
asta. „Það hlýddi manninum eins og
vel þjálfaður hundur, en stundum
virðist grasið vera grænna hinu-
megin við lækinn og þessu nauti
þótti greinilega gaman að krafsa í
grasið hinumegin við girðinguna.“
Grasið grænna hinumegin girðingar
Morgunblaðið/Eva Björk
Í alfaraleið Nautið Skuggi var á beit nokkra metra frá Reykjanesbraut, þar sem bílar brunuðu í báðar áttir.
Hlýðni Karl Herbertsson var ekki lengi að koma nautinu aftur á sinn stað.
Fagnaðarfundur Freyr Karlsson, eigandi nautsins, gefur því brauðbita.
Davíð Þór Magnússon,
verkfræðingur hjá Alcoa Fjarðaáli
Ég nýt lífsins
til fulls
jafnt í leik
og starfi