Morgunblaðið - 23.10.2015, Síða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015
✝ Sigríður HelgaAðalsteins-
dóttir fæddist 16.
febrúar 1927 að
Vígholtsstöðum í
Laxárdalshreppi í
Dalasýslu. Hún lést
á Heilbrigðis-
stofnun Vestur-
lands á Akranesi 4.
október 2015. For-
eldrar hennar voru
Aðalsteinn Guð-
mundsson bóndi að Vígholts-
stöðum, f. 1890, d. 1961, og
Steinunn Vilhelmína Sigurðar-
dóttir, f. 1884, d. 1973. Alsystur
Sigríðar voru þær Margrét Val-
gerður, f. 1922, d. 2012, og Jó-
hanna Sigurbjörg f. 1931, d.
2013. Sammæðra áttu þær fimm
systkin; Sigurð, Guðmund, Ás-
geir, Jóhann og Guðrúnu Guð-
mundsbörn, sem öll eru látin.
Eiginmaður Sigríðar var Þor-
steinn Bjarnason frá Fjósum í
Búðardal, f. 1917, d. 2003,
gengu þau í hjónaband árið
1997 eftir rúmlega 50 ára sam-
búð. Þau áttu fjóra syni: 1) Unn-
steinn, f. 1945, d. 1965. 2) Sig-
urður, f. 1949, kona hans er
Steinunn Pálsdóttir, f. 1950.
Synir þeirra eru a) Þórður, f.
1976, sambýliskona hans er
Um fermingaraldur fluttist
Sigríður í Búðardal og átti hún
tvo elstu syni sína þar. Haustið
1949 fluttist hún í Borgarnes,
þar sem Þorsteinn hafði búið í
nokkur ár og unnið sem bif-
reiðastjóri. Þar hófu þau sína
sambúð í húsi sem kallað var
Laxholt, nú við Þórólfsgötu.
Árið 1951 keyptu þau Stef-
ánshús, nú Egilsgata 8. Þor-
steinn gerði húsið upp og eign-
uðust þau tvo yngri syni sína
þar. Þau bjuggu við Egilsgötu í
16 ár þar til þau fluttu að Böðv-
arsgötu 9. Þar hafði Unnsteinn
eldri byrjað að byggja sér hús
en hann lést af slysförum árið
1965. Sigurður bróðir hans tók
þá við byggingunni og flutti fjöl-
skyldan inn haustið 1967. Við
Böðvarsgötuna bjuggu þau hjón
alla tíð eftir það. Eftir að Þor-
steinn lést bjó Sigríður á neðri
hæð hússins undir verndarvæng
Unnsteins yngri. Síðastliðið
sumar flutti Sigríður að Brák-
arhlíð og bjó þar þar til yfir
lauk. Sigríður vann hjá Kaup-
félagi Borgfirðinga upp úr 1960.
Þar vann hún bæði í kjötvinnsl-
unni í Brákarey og í verslun fé-
lagsins við Egilsgötu. Sigríður
hóf störf hjá Dvalarheimili aldr-
aðra í Borgarnesi um árið 1970,
þar sem hún starfaði við næt-
urgæslu og í eldhúsi. Lauk hún
starfsferli sínum við ræstingar á
sömu stofnun.
Útför Sigríðar Helgu fer
fram frá Borgarneskirkju í dag,
23. október 2015, klukkan 14.
Heiða Dís Fjeld-
sted, f. 1979, sonur
þeirra er Kristján,
f. 2012. Börn Þórð-
ar frá fyrra hjóna-
bandi eru Þórunn
Birta, f. 2001, Þor-
steinn Logi og Þóra
Sóldís f. 2008. Móð-
ir þeirra er María
Júlía Jónsdóttir, f.
1979. b) Sigur-
steinn, f. 1982, unn-
usta hans er Anna Sigríður Guð-
brandsdóttir, f. 1980, synir
þeirra eru Grétar Páll, f. 2008,
og óskírður drengur, f. 2015. 3)
Bjarni Kristinn, f. 1959, kona
hans er Guðrún Kristjánsdóttir,
f. 1962. Dætur þeirra eru Unnur
Helga, f. 1988, d. 2002, og Þor-
gerður Erla, f. 1990. 4) Unn-
steinn, f. 1965, kona hans er
Guðbjörg Guðjónsdóttir, f. 1965.
Synir þeirra eru Jón Steinar, f.
2002, og Þorsteinn Unnar, f.
2003. Börn Guðbjargar frá fyrra
hjónabandi eru a) Oddný Björk,
f. 1985, sambýlismaður hennar
er Marckus Andersson, f. 1983,
dóttir þeirra er Rebecka, f.
2012, b) Björn Viggó, f. 1988,
sambýliskona hans er Ragnheið-
ur Jónsdóttir, f. 1979, c) Krist-
jana Erla, f. 1990.
Allt í veröldinni á sér upphaf
og endi og eins er komið með
allt það sem lífsandann dregur
því hver manneskja fæðist og
hún að lokum deyr. Þannig er
það með þig, ástkæra móður
okkar, sem nú ert búin að segja
skilið við okkur og þína jarðvist
sem spannar nærri 89 árum.
Þú fæddist á Vígholtsstöðum
í Laxárdal í Dalasýslu í febr-
úarbyrjun árið 1927. Um ferm-
ingaraldur fluttist þú í Búð-
ardal ásamt foreldrum þínum
og systrum. Þar bjóst þú ásamt
því að vera vinnukona hjá bróð-
ur þínum Sigurði sem tekið
hafði við búskap að Vígholts-
stöðum.
Eignuðust þið pabbi tvo
elstu syni ykkar í Búðardal.
Haustið 1949 fluttust þið ásamt
sonum ykkar tveim í Borgarnes
þar sem pabbi hafði búið í
nokkur ár og starfað sem bif-
reiðastjóri. Þú starfaðir við
hinu ýmsu störf í Borgarnesi
Kaupfélaginu og á Dvalarheim-
ilinu, auk þess að hugsa um
heimilið.
Við höldum að við getum
sagt það með góðri samvisku að
aldrei sáum við þig vera öðru-
vísi en sívinnandi frá morgni til
kvölds er við vorum börn og
unglingar. Við sveitastörf vor-
um við bræður uppaldir og eitt
er víst að umgengni við skepn-
ur og vinna tengd þeim gerir
hvern mann að betri manni. Þú
varst ákaflega hreinlát, svo eft-
ir var tekið, við allt sem þú
tókst þér fyrir hendur og þoldir
það illa að umgengni okkar
bræðra um hús og húsbúnað
sem og aðra hluti væri ekki
eins og best væri á kosið. Röð
og regla skyldi vera á öllum
hlutum.
Við verðum ævarandi þakk-
látir þér og pabba heitnum fyr-
ir þá ást og umhyggju sem þið
bæði sýnduð okkur bræðrunum
í uppvexti okkar, þar sem
grunngildi voru í heiði höfð og
þau eru, vertu ætíð trúr og
tryggur, heiðarlegur og vinnu-
samur og gleymdu ekki þeim
sem eru minni máttar og hafa
farið halloka í lífinu, réttu þeim
hönd.
Þú og pabbi heitinn fóruð
ekki varhluta af miklum áföll-
um í lífinu og þung hefur sú
raun verið ykkur er þið misstuð
hann Unnstein, frumburð ykk-
ar, þá 20 ára, mikinn og elsk-
aðan sómapilt, í hörmulegu bíl-
slysi þann 11. desember 1965
fyrir tæpum 50 árum. Unn-
steinn var óvenjulega miklum
og góðum eiginleikum og gáf-
um gæddur og var öllum mikill
harmdauði er hann þekktu.
Sex dögum seinna eignuðust
þið annan son sem skírður var
Unnsteinn eftir þeim sem
genginn var og var hann ykkur
skært ljós og elskaður af öllum
í því mikla myrkri sem yfir
grúfði.
Og enn og aftur þurftuð þið
pabbi að upplifa sáran missi er
þið sáuð á eftir Unni Helgu
sonardóttur ykkar er lést úr
krabbameini fyrir þrettán ár-
um, þá fjórtán ára gömul.
En þú blessunin barst þinn
harm í hljóði eins og endranær,
lést ekki bugast og veittir
barnabörnum og barnabarna-
börnum þínum alla þá ást og
umhyggju sem þér var unnt
heilsu þinnar vegna og fylgdist
mjög vel með því sem þitt fólk
var að gera og fást við hverju
sinni alveg fram á síðasta dag.
Vertu nú kært kvödd, ástkær
móðir okkar, og berðu þeim
skyldmennum okkar sem geng-
in eru á undan í himnaríki okk-
ar bestu kveðjur.
Hvíldu í friði.
Þínir synir,
Sigurður, Bjarni Kristinn
og Unnsteinn.
Elsku amma,
„Það þýðir ekki að gráta
verk skaparans þó að við séum
ósátt við þau, hann er með
þetta allt saman ákveðið fyrir
fram“.
Þetta sagðir þú við mig þeg-
ar ég var að velta fyrir mér til-
gangi lífsins á vaskborðinu á
Böðvarsgötunni fyrir mörgum
árum.
Frá þeim litla útsýnispalli
sem vaskborðið var fengum við
eldri barnabörnin að fylgjast
með þér þar sem þú þeyttist
um eldhúsið ýmist að hræra
slátur, baka smákökur, skrúbba
hausa, gera að laxi, skreyta
hnallþórur, steikja kleinur eða
eins og ansi oft kom fyrir,
steikja kótelettur fyrir syni
þína.
Hver einasta hreyfing var
nóteruð hjá okkur meðfram því
sem þú söngst vísur, sagðir
sögur úr Dölunum eða deildir
með okkur lífsspeki þinni. Afi
var svo alltaf visst kennileiti
fyrir innan eldhúsborðið með
kaffi í bolla eða með útvarpið
undir vanga inni á bekk, dygg-
ur sendisveinn fyrir þig og
smakkari. Hann beið álengdar
og sagði sinn skerf ef þess
þurfti með.
Frá þessum stundum okkar í
eldhúsinu á ég ótal minningar
sem hafa nýst mér vel og yljað
um hjartarætur í gegnum tíð-
ina og munu gera áfram.
Hvernig gerði amma þetta aft-
ur? er spurning sem kemur oft
upp í hugann við hið ólíklegasta
stúss.
Að fá að alast upp hjá þér er
eins og að hafa alist upp í stöð-
ugri einkakennslu í húsmæðra-
skóla.
Hvort sem það er að sauma
gardínur, prjóna, hekla, stoppa
í sokka, baka, elda fyrir tvo eða
200, það skiptir ekki máli, mað-
ur reddar þessu eins og þú
kenndir manni. Og ekki má
gleyma þrifunum! Böðvarsgat-
an var þitt krúnudjásn, þú
varst ekki í rónni nema hver
einasti hlutur væri kominn á
sinn stað og Ajax-ilminn legði
um húsið. Þvílík húsmóðir sem
þú varst alla tíð, ég vona að ég
hafi erft þó ekki sé nema snefil
af þessum myndarskap frá þér.
Dálæti þitt og afa á sauðfé
smitaðist líka í mig snemma og
alltaf varstu jafn hrifin af
myndunum sem ég sýndi þér af
hrútnum mínum, lömbunum og
kindunum.
Þú sagðir mér til hvernig
ætti að þekkja góða skepnu frá
öðrum og varst sannfærð um að
þær kindur sem við Unnsteinn
ættum væri afburða skepnur.
Ég sagði nú oft við þig og
stend við það enn að ef þú hefð-
ir verið kind værir þú líklegast
afurðamesta ær landsins ef litið
væri á meðalvigt lamba.
Elsku amma, stundir okkar
verða víst ekki fleiri saman í
þessu lífi en við eigum þær sem
liðnar eru.
Ég veit að þið afi, amma
María og afi Diddi, Unnur syst-
ir, Snúðurinn minn, Unni
frændi og allir hinir lítið eftir
mér og þeim sem ykkur var
annt um sama hvar við erum.
Við hittumst svo aftur þegar
röðin kemur að mér.
Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást,
að hugir í gegnum dauðann sjást.
- Vér hverfum og höldum víðar,
en hittumst þó aftur – síðar.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Þín ömmustelpa,
Þorgerður Erla.
Hún amma Sigga er látin og
er hún sú síðasta í sínum systk-
inahópi sem fer yfir móðuna
miklu.
Amma var trúuð á að okkar
biði önnur tilvera, þar sem ást-
vinir bíða með opinn faðm og
taka á móti manni við andlátið.
Hún hafði megna ástæðu til
að trúa því, því að á hennar
langa lífshlaupi horfði hún á
eftir ástvinum kveðja í blóma
lífsins. Ég kýs að trúa því að
miklir fagnaðarfundir hafi átt
sér stað þetta októberkvöld,
allur jarðneskur sársauki hafi
gleymst í einni svipan og aðeins
gleði og hamingja tekið við.
Hamingjunnar naut ekki allt-
af við; sorgin knúði allt of oft
dyra og amma fékk að kynnast
því að missa barn og barna-
barn. Það er sársauki sem eng-
in getur ímyndað sér nema
upplifa hann á eigin skinni.
Þess vegna finnst mér að amma
hafi unnað börnum eins heitt
eins og hún gerði. Við sem
fengum að kynnast ömmuhlýju
hennar gleymum því aldrei. Ég
er þakklátur fyrir að hún náði
að veita sonum mínum lang-
ömmuhlýju, sérstaklega þeim
yngri sem er bara nokkurra
vikna gamall og hefur ekki
hlotið nafn.
Á síðasta fundi okkar var
þetta kornabarn óvært og grét
þegar ég lagði hann í kjöltu
hennar en hún tók einhvern
veginn á honum þannig að hann
hætti undir eins að gráta og
horfði í augu langömmu sinnar.
Þetta var til marks um þá um-
hyggju sem hún bar til barna
og lagið hafði lærst frá því að
hún fór fyrst að gæta barna –
þá barn sjálf.
En jafnframt og þau tvö
brostu til hvors annars og
kynntust, þá kvöddust þau líka
því að amma var öll nokkrum
dögum síðar.
Hennar verður því minnst
fyrir barngæsku sinnar en líka
fyrir dugnað. Hún vann erf-
iðisvinnu frá æsku. Ég fékk
aldrei nóg af sögum frá göml-
um tímum og í þeim var auk
annarra frásagna lýst erfiðis-
vinnu í frosti þar sem gegn-
blautar ullarflíkur frusu upp
við hörundið, eilífum þrifum,
matseldum og þeirri baráttu
sem kynslóð hennar þurfti að
heyja til að hafa í sig og á. Strit
frá morgni til kvölds og slitinn
líkaminn á efri árum bar vott
um það.
Hún varð móðir ung og flutti
með afa í Borgarnes úr Döl-
unum sem þau unnu bæði heitt.
Í Borgarnesi byggðu þau upp
nýja lífið sitt og kynntust
mörgu góðu fólki sem átti eftir
að verða samferðamenn þeirra.
Nágrannagæska var mikil í
Borgarnesi þeirra ára og allir
voru tilbúnir að aðstoða þegar
svo bar undir. Þar voru amma
og afi engin undantekning og ef
fréttist af „konulausu“ heimili
af einhverjum ástæðum munaði
ekki um nokkra auka munna að
metta.
Sama átti við um gesti og
mátti enginn fara svangur frá
ömmu. Á matmálstímum var
gjarnan tví- eða þríréttað og
aldrei mátti það henta að ekki
væru færri en þrjár sortir
heimalagaðar með kaffinu.
Jólakakan, hjónabandssælan,
kleinurnar og kanilsnúðarnir
sem voru svo góðir með
ískaldri mjólk.
Nú hefur amma horfið til
fólksins sem hún saknaði svo
sárt. Eins og henni einni var
lagið kveður maður hana sadd-
ur af þeim góðgerðum sem hún
veitti alla tíð.
Það eru góðgerðir sem
byggja mann upp sem góðan
mann.
Anna Sigga mín minnist
hennar af hlýju og með þakk-
læti fyrir allt það góða sem
Amma Sigga – nafna hennar –
veitti henni.
Sigursteinn, Anna Sigríður
og synir.
Sigríður Helga
Aðalsteinsdóttir
✝ Kristgeir Há-konarson,
fæddist í Reykjavík
28. janúar 1956.
Hann var sonur
hjónanna Helgu
Steinunnar Lut-
hersdóttur, f. 3.
júlí 1919, d. 27.
apríl 1996 og Há-
konar Kristgeirs-
sonar, f. 17. nóv-
ember 1923, d. 24.
febrúar 1994. Kristgeir var
yngstur fimm systkina. Systkini
hans eru: Reynir, Finnbjörg
Konný, Steinunn Helgu og
Kristborg.
Fyrri eiginkona Kristgeirs
var Elínborg Chris Argabrite.
Dóttir þeirra er
Berglind, f. 1. júní
1978. Sambýlis-
maður hennar er
Arnar Már Guð-
mundsson. Synir
Berglindar eru
Arnór, f. 1996 og
Nói Þór, f. 2009.
Seinni eiginkona
Kristgeirs var Sig-
ríður Brynja Pét-
ursdóttir, f. 29. jan-
úar 1956, d. 18. febrúar 1994.
Kristgeir var sjómaður nán-
ast alla sína starfsævi, lengst af
á Hafnarbergi RE.
Útför hans fer fram frá Nes-
kirkju í dag, 23. október 2015,
klukkan 13.
Elsku pabbi minn. Það er
svo erfitt að þurfa að kveðja
þig svona snemma. Þú varst
svo góður og hjartahlýr maður.
Ég á eftir að varðveita hlýjar
og góðar minningar sem við
áttum saman, eins og þegar við
fórum í útilegur og þú kenndir
mér að veiða.
Þú áttir líka góðar stundir
með barnabörnunum þínum, þú
varst svo stoltur og góður afi.
Eftir að ég flutti til Kaup-
mannahafnar áttum við góð og
löng samtöl símleiðis, það var
alltaf svo gott og gaman að
heyra í þér og hláturinn þinn
svo skemmtilegur. Þú spurðir
mikið um barnabörnin og hafð-
ir mikinn áhuga á hvað var að
gerast í okkar lífi.
Við áttum gott samband og
gátum talað um allt milli him-
ins og jarðar. Síðast þegar við
töluðum saman ræddum við
það að þú myndir koma til
Kaupmannahafnar næsta sum-
ar til að sjá nýju prinsessuna
þína, eins og þú orðaðir það.
En nú trúi ég því að þú sjáir
hana og vakir yfir henni og
okkur öllum. Nú ertu kominn
til Siggu þinnar.
Hvíldu í friði, elsku pabbi
minn. Elska þig.
Þín dóttir,
Berglind.
Kristgeir var yngstur okkar
systkina. Það kemur í hlut okk-
ar eldri að fylgja honum til
grafar. Það kýs enginn. Þar
sem við Kristgeir vorum yngst
systkinanna átti ég meiri sam-
leið með honum í æsku en þeim
eldri. Það var ekki alltaf friður
þar sem fóru saman stelpa og
strákur. Þrátt fyrir að gáraði
stundum á yfirborðinu vorum
við vinir og áttum síðan sam-
leið, eða kannski er réttara að
segja samskipti, allt til þess að
hann lést.
Kristgeir var uppátækjasam-
ur krakki og fyrirferðarmikill.
Meira að segja svo að við sem
stóðum honum næst höfðum oft
áhyggjur af hvert hann fór og
hvert hann stefndi.
Þrátt fyrir meiningarmun á
stundum fór aldrei á milli mála
að Kristgeir var góður, bæði
sem drengur og eins eftir að
hann varð eldri. Hann var mér
oft vinur í raun. Ég mun sakna
heimsóknanna til mín, sem
voru margar síðustu mánuðina,
og eins bíltúranna sem við fór-
um í saman. Þá var talað í trún-
aði. „Ég segi þér þetta, en eng-
um öðrum,“ endaði hann oft
frásögnina þegar hann vildi
treysta mér fyrir sínum dýpstu
hugsunum.
Eftir því sem Kristgeir varð
eldri átti hann erfiðara með að
stunda sjóinn. Skrokkurinn
hafði slitnað í átökunum sem
fylgja sjómennskunni. Fáum
hef ég kynnst sem hafa haft
eins mikla ástríðu fyrir sjó-
mennsku og Kristgeir bróðir
minn.
Kæri bróðir. Ég hugsa stöð-
ugt til þín. Ég sakna þín en ég
treysti að það hafi orðið fagn-
aðarfundir þegar þú komst í
þína friðarhöfn og að móttök-
urnar hafi verið góðar.
Mamma, pabbi og Sigga hafa
eflaust faðmað þig og tekið þér
höndum tveim.
Ég harma ótímabær ævilok
míns kæra bróður og sendi
Berglindi dóttur hans og henn-
ar fjölskyldu, systkinum mínum
og þeirra fjölskyldum og öllum
sem syrgja bróður minn mínar
bestu samúðarkveðjur.
Kristborg Hákonardóttir.
Kristgeir bróðir minn er lát-
inn. Ég minnist þess svo vel
þegar mamma kom með hann
heim af fæðingardeildinni.
Hann var pakkaður inn í sæng,
þá voru burðarrúmin ekki kom-
in til sögunnar. Mamma lagði
hann í efri kojuna, ég klifraði
upp í hana og viti menn, þarna
sá ég gullfallegan, búttaðan
dreng.
Það voru sjö ár á milli okkar
og kom því oft í minn hlut að
passa hann. Þær voru ófáar
ferðirnar með hann niður að
Tjörn eða upp á Landakotstún
með nesti sem samanstóð af
mjólk í glerflösku og rúgbrauði
pökkuðu í smjörpappír. Og allir
göngutúrarnir með hann í kerr-
unni um Vesturbæinn, margar
húsmæðurnar með innkaup-
anetin stoppuðu til að skoða
þennan gullfallega dreng sem
sat í kerrunni. Kristgeir var
mikill fjörkálfur. Hann klifraði
til dæmis gjarnan upp renn-
urnar á húsunum, upp á vöru-
bílapalla og stillansa á nýbygg-
ingum.
Hann var sendur í sveit 10
ára gamall og strauk þaðan því
að heimþráin var svo gífurleg.
Kristgeir stundaði svo sjóinn
frá 16 ára aldri og undi því vel.
Ég á margar góðar minningar
um Kristgeir sem ég mun
geyma í hjarta mínu.
Elsku Berglind, ég votta þér
og fjölskyldu þinni dýpstu sam-
úð mína.
Steinunn Helgu
Hákonardóttir.
Ég hugsa mikið til þín. Þær
minningar sem ég á, og mun
alltaf eiga um þig, eru góðar.
Alltaf varst þú mér góður og
stundum leitaði ég til þín til að
fá ráð þegar ég var ekki viss
um hvernig ég ætti að gera eitt
og annað.
Mér er ofarlega í minni þeg-
ar ég var í heimsókn hjá ömmu
og afa á Hjarðarhaganum og
þú ætlaðir að kenna mér að
hlusta á David Bowie og lést
mig horfa á heilan Skonrokks-
þátt um hann, sem mér fannst
vara í heila eilífð. Ekki get ég
sagt að ég sé aðdáandi hans
þrátt fyrir ágæta tilraun þína
til þess.
Ég minnist allra heimsókn-
Kristgeir
Hákonarson