Morgunblaðið - 13.11.2015, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 3. N Ó V E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 267. tölublað 103. árgangur
LÍKIR LÖGUNUM
VIÐ HEIMTU-
FREK BÖRN
SÝNING UM
KONUR OG
KYNVITUND
HORFÐUST Í
AUGU VIÐ DAUÐ-
ANN Í 72 TÍMA
REYKJANESBÆR 30 ÚTKALL Í HAMFARASJÓ 4MARKÚS OG FÉLAGAR 33
Morgunblaðið/Eggert
Bankarnir Hagnaðurinn á fyrstu níu mán-
uðunum í ár er meiri en allt árið 2013.
Samanlagður hagnaður við-
skiptabankanna þriggja, Íslands-
banka, Landsbankans og Arion
banka, nam 66,5 milljörðum króna
á fyrstu níu mánuðum ársins.
Bankarnir hafa nú allir birt upp-
gjör sín fyrir tímabilið. Þannig
hefur Arion banki hagnast um
25,4 milljarða, Landsbankinn um
24,4 milljarða og Íslandsbanki um
16,7 milljarða.
Hagnaður þeirra yfir allt árið í
fyrra nam 81 milljarði króna og
því þurfa þeir að skila 14,5 millj-
örðum í hagnað það sem eftir lifir
af árinu eigi þeir að skila jafn
miklum hagnaði og í fyrra. Árið
2013 var samanlagður hagnaður
þeirra hins vegar 64,6 milljarðar
og því hafa þeir nú þegar skilað
meiri hagnaði en allt það ár. »16
Hagnaður stóru
bankanna kominn
í 66,5 milljarða
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tveir karlmenn, báðir flugkennarar
við Flugskóla Íslands, fórust þegar
lítil kennsluflugvél frá skólanum
brotlenti í úfnu hrauni sunnan
Hafnarfjarðar um miðjan dag í gær.
Aðdragandi slyssins var óljós í gær-
kvöld, samkvæmt upplýsingum lög-
reglu, en Rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa og lögregla unnu að
rannsókn á vettvangi fram á kvöld. Í
yfirlýsingu Flugskólans segir að
þetta hafi verið hörmulegt slys.
Tilkynning barst klukkan 15.10
um að saknað væri tveggja sæta
kennsluflugvélar frá Reykjavíkur-
flugvelli. Fjölmennt lið björgunar-
sveita, lögreglu, slökkviliðs og
Landhelgisgæslu var sent á vett-
vang og svipast var um eftir vélinni
úr lofti. Fannst hún tæpum hálftíma
síðar, nokkra kílómetra suðvestur af
Hafnarfirði. Slysið varð skammt frá
Krýsuvíkurvegi. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar flutti björgunarsveitar-
menn og rannsóknarmenn að flak-
inu. Lögregla lokar vettvangi á
meðan rannsókn stendur yfir, bæði
á landi og í lofti.
Mennirnir voru úrskurðaðir látnir
á vettvangi. Þeir voru á þrítugs- og
fertugsaldri. Ekki er hægt að birta
frekari upplýsingar um þá að svo
stöddu, skv. upplýsingum skólans.
Kennurum og nemendum Flug-
skóla Íslands sem og Tækniskólans,
sem flugskólinn tilheyrir, var boðin
áfallahjálp. Ákveðið var að fella nið-
ur allt skólastarf í báðum skólunum
í dag.
Nýjar flugvélar
Flugvélin var ein af fimm nýjum
kennsluflugvélum sem Flugskóli Ís-
lands tók í notkun í sumar og haust.
Þær eru ítalskrar gerðar, Tecnam.
Flugkennararnir flugu nokkra
hringi yfir höfuðborgarsvæðið eftir
flugtak frá Reykjavíkurflugvelli áð-
ur en vélin tók stefnuna út á
Reykjanesskagann þar sem hún
brotlenti.
Tveir flugkennarar fórust
Kennsluflugvél brotlenti í hrauni við Hafnarfjörð Tildrög slyssins eru óljós
Kennurum og nemendum Flugskóla Íslands og Tækniskólans boðin áfallahjálp
Morgunblaðið/Þórður
Á vettvangi Fjölmennt lið kom á vettvang við Krýsuvíkurveg þegar tilkynnt var um hvarf flugvélarinnar. Á innfelldu myndinni eru nýju kennsluvélarnar.
Hér brot-
lenti vélin
Kleifarvatn
Keilir
Loftmyndir ehf.
×
Flugslys við Hafnarfjörð
Ljósmynd/Baldur Sveinsson
svæðinu. Til samanburðar áætla SI
að 3.000-3.600 íbúðir þurfi að vera í
byggingu á svæðinu til að anna
eftirspurn. Er þá ekki verið að
ganga á uppsafnaða þörf fyrir
íbúðir.
Þrýstir upp verðinu
Telja samtökin að vegna lítilla
framkvæmda undanfarin ár hafi
skapast þörf fyrir 2.500-3.000 íbúðir
á höfuðborgarsvæðinu. Sú þörf
verði ekki uppfyllt næstu misserin.
Bjarni Már Gylfason, hagfræð-
ingur hjá SI, segir eina birtingar-
mynd þessa vanda að ungt fólk búi
lengur en áður í heimahúsum og að
skortur á húsnæði þrýsti upp íbúð-
arverði. Þá sé ekki hægt að útiloka
að erfiðleikar á fasteignamarkaði ýti
undir að ungt fólk flytji úr landi
vegna erfiðleika við að fá húsnæði
sem hæfir þörfum og greiðslugetu.
Þróunin í sérbýli vekur athygli.
Aðeins 278 sérbýli eru í byggingu á
höfuðborgarsvæðinu, skv. talningu
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Færri íbúðir eru nú í byggingu á
höfuðborgarsvæðinu en árið 2013.
Að óbreyttu mun skortur á íbúðar-
húsnæði á svæðinu því aukast.
Þetta er mat sérfræðinga Sam-
taka iðnaðarins (SI) sem vísa til
nýrrar talningar á íbúðum sem eru í
byggingu á höfuðborgarsvæðinu.
Leiðir talning SI í ljós að nú er
verið að byggja um 2.400 íbúðir á
SI., eða 28 færri en í mars 2014.
Friðrik Á. Ólafsson er forstöðu-
maður byggingarsviðs hjá SI.
Þróunin kemur mjög á óvart
Hann segir það hafa komið sam-
tökunum mjög á óvart að í mars sl.
voru færri íbúðir í byggingu en í
október 2014. Ný talning SI bendir
til að orðið hafi óveruleg breyting í
þessu efni á síðari hluta ársins.
Nýjar íbúðir mæta ekki eftirspurn
Minna byggt af íbúðum á höfuðborgarsvæðinu en 2013 Lítið byggt af sérbýli
Samtök iðnaðarins telja að vegna lítils framboðs verði aukin spenna á markaði
MMinna byggt … »6
Alls verða 34
tegundir jóla-
bjórs og 43 vöru-
númer í hillum
ÁTVR í ár en úr-
val jólabjórs hef-
ur aldrei verið
meira. Salan
hefst í dag en
undanfarin ár
hafa selst um 100
þúsund lítrar
fyrstu helgina. Á síðasta ári seldust
tæpir 670 þúsund lítrar af jólabjór.
Þegar bjór var leyfður árið 1989
seldust 10 þúsund lítrar. Sé litið tíu
ár aftur í tímann þá seldust 268
þúsund lítrar. »14
Jólabjórinn kemur í
hillur ÁTVR í dag
Margir bíða eftir
jólabjórnum.
Gunnar Svav-
arsson, formaður
stjórnar Nýs
Landspítala ohf.,
segir að áætlanir
frá 2013 um
verklok við nýjan
Landspítala og
kostnaðaráætlun
upp á 49 millj-
arða króna, mið-
að við verðlag í mars sl., standi
óhaggaðar. „Öll útboð sem við höf-
um framkvæmt á grundvelli þess-
arar kostnaðaráætlunar hafa fallið
þannig að það er allt verulega und-
ir kostnaðaráætlun,“ segir Gunnar
m.a. í samtali við blaðið. »12
Áætlun um verklok
spítalans stendur
Gunnar Svavarsson