Morgunblaðið - 13.11.2015, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 13.11.2015, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015 höfuðið. Að koma aftur á landa- mæraeftirliti getur hjálpað okkur.“ Búist við 190.000 flóttamönnum 80 þúsund flóttamenn hafa komið til landsins í september, næstum því jafn margir og komu allt árið 2014. Svíþjóð, þar sem um 9,8 milljónir manns búa, hefur tekið á móti flest- um flóttamönnum miðað við höfða- tölu af öllum löndum Evrópu. Gert er ráð fyrir að í lok ársins hafi landið tekið á móti alls 190 þúsund flótta- mönnum í ár. í veg fyrir að fólk komi til Svíþjóðar í hælisleit. Þvert á móti. Fólkið mun fá áheyrn en við þurfum að ná stjórn á aðstæðum,“ sagði Anders Daniels- son, forstjóri Flóttamannastofnunar Svíþjóðar. „Fólk neyðist til að sofa í tjöldum, skrifstofum og rýmingarmið- stöðvum sem eru vanalega notaðar í náttúruhamförum,“ sagði Mikael Hvinlund, samskiptastjóri Flótta- mannastofnunar Svíþjóðar, og bætti við: „Við uppfyllum ekki skyldu okk- ar sem er að bjóða öllum þak yfir „Að bjarga Schengen-samstarfinu er kapphlaup við tím- ann og það kapphlaup ætlum við að vinna,“ sagði Don- ald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, í gær þegar tveggja daga fundi um 60 fulltrúa Evrópu- og Afríkulanda lauk á Möltu. Markmið fundarins var að reyna að leysa flóttamannavandann. Tusk sagði ennfremur að ástæðan fyrir mikilvægi landamæraeftirlits innan Schengen-svæðisins væri sú að löndin væru komin á ystu nöf. Svíþjóð bættist í hóp annarra Schengen-ríkja sem hafa tekið upp landamæraeftirlit. Þau eru: Austurríki, Þýskaland, Ung- verjaland og Slóvenía. Hingað til hefur verið hægt að ferðast innan Schengen-svæðisins án vegabréfs. Kapphlaup að bjarga Schengen FUNDUR LEIÐTOGA Í AFRÍKU OG EVRÓPU Á MÖLTU Donald Tusk Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Þetta er ekki girðing. Við þurfum að tryggja að við höfum stjórn á að- stæðum og vitum hverjir eru að koma inn í landið,“ sagði Stefan Löf- ven, forsætisráðherra Svíþjóðar, við AFP. Svíþjóð tók upp tímabundið landamæraeftirlit á hádegi í gær sem mun að minnsta kosti standa í tíu daga. Þetta er gert til að ná taumhaldi á stöðugum straumi flóttamanna til landsins. Að störfum í ferjum og lestum Lögreglan og landamæraverðir stóðu vaktina í gær og óskuðu eftir að sjá vegabréf og skilríki þeirra sem komu til landsins, m.a. með lest yfir Eyrarsundið sem liggur á milli Danmerkur og Svíþjóðar. Sænska lögreglan kannaði einnig skilríki þeirra sem komu með ferjum til Suður-Svíþjóðar frá Danmörku og Þýskalandi. Þetta eru algengustu leiðir sem flóttamenn nota. Sænska ríkisstjórnin hefur jafn- framt farið fram á það við fyrirtæki sem gera út ferjur milli Þýskalands og Svíþjóðar að farþegar verði krafðir um að sýna vegabréf eða skilríki en ríkisstjórnin getur ekki neytt fyrirtækin til að taka þá venju upp. „Landamæraeftirlitið kemur ekki AFP Landamæraeftirlit Lögreglumenn við eftirlitsstörf á lestarstöð í Malmö við Eyrarsundsbrúna. Svíar reyna að ná stjórn á aðstæðum  Landamæraeftirlit hefur verið tekið upp í Svíþjóð Lögregla á Ítalíu tilkynnti í gær að liðsmenn íslamistasamtaka hefðu haft áform um að frelsa íslamistaleiðtog- ann múlla Krekar úr fangelsi í Nor- egi. Hann afplánar þar fangelsisdóm fyrir hótanir. Alls voru þrettán manns, flestir Kúrdar, handteknir í nokkrum Evr- ópulöndum í tengslum við málið, þar af þrír í Noregi. Krekar var einn þeirra, en grunur leikur á að hann hafi stýrt samtökunum, sem nefnd eru Rawti Shax, úr fangaklefa sínum í Kongsvinger. Nokkrir úr hópnum hafa barist undir merkjum Ríkis ísl- ams í Írak og Sýrlandi. Fram kom í gær að fylgst hafði ver- ið með hópnum síðan 2011. Giovanni Governale, sem leiðir sérsveit ítölsku lögreglunnar, sagði við blaðamenn að hryðjuverkasamtökin hefðu notað „undirdjúp“ netsins til að skipuleggja hryðjuverkaárásir, þar á meðal sjálfsmorðsárásir, í þeim tilgangi að frelsa Krekar. Múlla Krekar er 59 ára gamall Kúrdi frá Norður-Írak, sem hefur dvalið í Noregi frá árinu 1991 en þangað kom hann upphaflega sem kvótaflóttamaður frá Írak. Hann hef- ur ítrekað verið handtekinn í Noregi vegna undirróðursstarfsemi og árið 2003 átti að vísa honum úr landi vegna þess að hann var talinn ógna þjóðaröryggi Noregs. Samkvæmt norskum lögum má þó ekki senda hann til Íraks vegna þess að hann á yfir höfði sér dauðadóm þar. Norskir fjölmiðlar segja að norsk stjórnvöld hafi undirbúið með leynd að framselja hann til Ítalíu þar sem hann er eftirlýstur vegna gruns um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásir. Ætluðu að frelsa múlla Krekar úr norsku fangelsi  Þrettán handteknir vegna gruns um hryðjuverkaáform AFP Íslamistaleiðtogi Múlla Krekar af- plánar nú fangelsisdóm í Noregi. SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 04.11.15 - 10.11.15 1 2 5 6 7 8 109 43 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson Þýska húsið Arnaldur Indriðason Endurkoman Ólafur Jóhann Ólafsson Litlar byltingar Kristín Helga Gunnarsdóttir Vikkala Sól Kristín Margrét Kristmannsdóttir Munaðarleysinginn Sigmundur Ernir Rúnarsson Víga - Anders og vinir hans Jonas Jonasson Matreiðslubókin mín og Mikka Walt Disney Vín - Umhverfis jörðina á 110 flöskum Steingrímur Sigurgeirsson Hundadagar Einar Már Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.