Morgunblaðið - 13.11.2015, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.11.2015, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2015 Evrópukeppni landsliða í skák hefst í dag, en þar verður Jón L.Árnason stórmeistari meðal þátttakenda. Íslendingar standaað mótshaldinu og eiga því rétt á að senda tvær sveitir til leiks. Var ákveðið að önnur sveitin yrði skipuð Friðriki Ólafssyni og gömlu „fjórmenningaklíkunni“ en aldrei hafa Íslendingar staðið eins framarlega í skákinni og þegar hún var upp á sitt besta. „Við erum allir hættir að tefla sem atvinnumenn fyrir margt löngu og búumst ekki við að gera miklar rósir á þessu móti. Við erum 27. í styrkleika af 36 þátttökuþjóðum í opnum flokki.“ 30 lið keppa í kvennaflokki. Jón L. tefldi á Íslandsmótinu í ár í fyrsta sinn í 24 ár og einnig á opnu móti á eyjunni Ródos og deildi þriðja sæti í báðum þess- um mótum. „Jú, ég hef aðeins verið að rifja upp mannganginn. Mér gekk bara vel og þótt ótrúlegt sé þá náði ég nokkrum stigum þótt það sé ekki markmiðið. Manni fer fram eftir því sem maður eldist og þroskast. Þótt ég hafi lítið teflt í áratugi þá fylgist ég með öðru aug- anu með skákinni, er ekki alveg laus við bakteríuna en svo hefur golfið sótt á seinni árin. Ég mun væntanlega fara í Laugarsdalshöllina síðdegis í dag eins og Fischer og Spasskí forðum og það var vel til fundið hjá Skáksamband- inu að stefna bestu skákmönnum Evrópu til landsins í tilefni af afmælinu mínu.“ Jón L. er framkvæmdastjóri Lífsverks lífeyrissjóðs. „Ég hóf þar störf í sumar og það leggst bara mjög vel í mig. Okkur er falið það mikilvæga verkefni að taka við fjármunum sjóðfélaga, ávaxta þá eins og skynsamlegast er hverju sinni og greiða út lífeyri. Það má segja að það komi sér vel í þessu starfi að sjá nokkra leiki fram í tímann en að sjálfsögðu er ekki æskilegt að tefla í tvísýnu.“ Jón L. er kvæntur Þórunni Guðmundsdóttur, gæðastjóra hjá Kaup- höllinni. „Við eigum þrjár dætur og fyrsta barnabarnið kom í heiminn fyrir rúmum tveim vikum. Er mikil hamingja með það í fjölskyld- unni.“ Morgunblaðið/Ómar Fjórmenningaklíkan og Friðrik Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson, Friðrik Ólafsson, Jón L. Árnason og Jóhann Hjartarson, sem skipa gull- aldarlið Íslands á Evrópumóti landsliða í skák sem hefst í dag. Sest að tafli í dag Jón L. Árnason er 55 ára í dag I ngibjörg fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði 13.11. 1965 og átti heima í Hafnarfirði til fimm ára aldurs er fjöl- skyldan flutti í Garðabæ. Hún var í Flataskóla og Garðaskóla, stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og lauk þaðan stúdents- prófi af tónlistarbraut 1984. „Öll grunnskólaárin söng ég með Skólakór Garðabæjar sem var ein af merkari tónlistarstofnunum þess tíma, stjórnað af Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur. Um fermingaraldur hóf ég píanó- nám sem heillaði mig frá fyrstu nótu og var þá staðráðin í að gerast píanó- leikari. Söngurinn varð þó yfirsterk- ari því á sautjánda ári byrjaði ég í söngnámi hjá Snæbjörgu Snæbjarn- ardóttur í Tónlistarskóla Garða- bæjar og þá varð ekki aftur snúið.“ Ingibjörg lauk burtfararprófi tví- tug að aldri frá Tónlistarskóla Garðabæjar en ári áður, 1985, vakti hún töluverða athygli þegar hún Ingibjörg Guðjónsdóttir, söngkona og kórstjóri – 50 ára Hamingjan fólgin í söng Kampakát fjölskylda Ingibjörg og Andri ásamt syninum, Daníel Guðjóni. Með foreldrum og systkinum Talið f.v.: Óskar, afmælisbarnið, foreldrarnir, Anna og Guðjón, Kristín og Ómar. Daníel Bæring Grétarsson, Jón Gauti Grétarsson og Kolbrún Helga Grétars- dóttir voru á Barðaströnd í sumar og seldu skeljar og steina til styrktar Rauða krossinum. Fleiri krakkar tóku þátt, þau Emil Aron, Steinunn, Ásgeir Elí og Snæ- dís Birta. Alls söfnuðust 6.098 krónur. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.