Morgunblaðið - 18.11.2015, Side 1
Krakkarnir í 3. flokki karla og kvenna í Völsungi
æfðu saman síðdegis í gær á gervigrasinu á Húsa-
vík undir stjórn bræðranna Jónasar Halldórs og Að-
alsteins Jóhanns Friðrikssona. Ágætis veður var
miðað við árstíma, nánast logn og hiti um frost-
mark. Smávegis éljagangur truflaði ekki áhuga-
sama fótboltakrakka sem spörkuðu boltanum á
milli sín eftir kúnstarinnar reglum. Veturinn mun
væntanlega minna betur á sig fyrir norðan næstu
daga með aukinni snjókomu og harðara frosti.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Tæknin æfð eftir kúnstarinnar reglum
Grænklæddir Völsungar á gervigrasinu á Húsavík
M I Ð V I K U D A G U R 1 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 271. tölublað 103. árgangur
GLAMÚR-
DROTTNING
Í KARLAVÍGI
ZLATAN
GERÐI
GÆFUMUNINN
FRAMÚRSKARANDI
HÖNNUNAR-
VERKEFNI
SVÍAR Í LOKAKEPPNI EM ÍÞRÓTTIR HÖNNUNARVERÐLAUN 33MEÐ SVEINSPRÓF Í MÚRSMÍÐI 10
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Flughermir Icelandair í Hafnarfirði, sem
var tekinn í notkun í ársbyrjun, er notaður
við þjálfun flugmanna félagsins nær allan
sólarhringinn auk þess sem tímar eru leigð-
ir til erlendra félaga. Á morgun verður nýtt
kennslurými í sama húsnæði tekið í notkun
og fá flugfreyjur og -þjónar þar þjálfun.
„Þetta er í fyrsta sinn sem Icelandair
býður upp á þjálfun í flughermi sem er ná-
kvæmlega eins og flugstjórnarklefinn í vél-
um félagsins,“ segir Guðmundur Örn Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri félagsins sem á
flugherminn.
Nú annast 22 kennarar og eftirlitsflug-
menn þjálfun og kennslu í flugherminum en
þeir verða 26 á næsta ári auk þess sem tíu
manns til viðbótar koma að fræðslunni. Hjá
Icelandair starfa nú 364 flugmenn og 42
bætast við fyrir næsta sumar, en rúmlega
1.000 flugfreyjur og -þjónar verða hjá félag-
inu á næsta ári.
„Þjálfunin í flugherminum nær til allra
þátta flugsins frá því að hreyflar eru settir í
gang þar til þeir eru stöðvaðir aftur við
flugstöð,“ segir Steinar Steinarsson
þjálfunarflugstjóri. Þ. Haukur Reynisson,
yfirflugstjóri Icelandair, segir herminn
hafa breytt miklu. »12-13
Flughermir
Icelandair í
fullri notkun
Eigin þjálfunarstöð
hefur breytt miklu
Morgunblaðið/RAX
Á ferðinni Steinar Steinarsson, þjálfunar-
flugstjóri Icelandair, í flugherminum.
Leikvangurinn í Hannover, þar sem
vináttulandsleikur Þýskalands og
Hollands í knattspyrnu átti að fara
fram í gær, var rýmdur vegna gruns
um yfirvofandi sprengjuárás.
Þýski innanríkisráðherrann, Thom-
as de Maiziere, sagði á blaðamanna-
fundi í gærkvöldi að engin sprengiefni
hefðu fundist til þessa og enginn verið
handtekinn. Það hefði verið erfið
ákvörðun að aflýsa leiknum en hún
hefði verið tekin eftir margar vísbend-
ingar um möguleg voðaverk. Angela
Merkel kanslari átti að vera viðstödd
leikinn en hún hélt til Berlínar um leið
og honum var aflýst.
Níunda tilræðismannsins leitað
Nú er níunda tilræðismannsins
sem á að hafa tekið þátt í árásunum á
Frakkland síðastliðinn föstudag leit-
að, en áður var talið að þeir hefðu ver-
ið átta. Franska lögreglan fann í gær
yfirgefinn bílaleigubíl í átjánda hverfi
Parísar og telur að hann hafi verið
notaður í árásunum.
Bíllinn var leigður af Salah Abdes-
lam, sem fram til þessa var talinn eini
tilræðismaðurinn sem komst lífs af en
lögreglu grunar nú að annar tilræðis-
maður hafi komist undan.
Óljóst er enn hvort hann er einn
þeirra sem eru nú í haldi lögreglu í
Belgíu eða hvort hann er enn á flótta.
Landamæraeftirliti ábótavant
Landamæraeftirliti innan Evrópu
er ábótavant að því er fram kemur í
The Telegraph. Einungis einn af
hverjum hundrað sem ferðist frá Sýr-
landi til Evrópu sæti eftirliti þar sem
vegabréf séu borin saman við lista
Evrópusambandsins yfir meinta
hryðjuverkamenn.
Að minnsta kosti þrír árásarmann-
anna sem tóku þátt í árásunum á Par-
ís eru taldir hafa komið frá Sýrlandi
með evrópsk vegabréf.
laufey@mbl.is »17
Sprengju-
hótun á
landsleik
Mikill viðbúnaður
lögreglu í Hannover
Útgerðarstjóri Björgunar telur
ekki útlit fyrir að hægt verði að nota
dæluskipið Perlu aftur. Skipið náðist
í fyrrakvöld af botni Gömlu hafn-
arinnar í Reykjavík þar sem það
hafði legið frá byrjun mánaðarins.
Jóhann Garðar Jóhannsson
útgerðarstjóri segir að á þessari
stundu sé ekki hægt að segja til um
hvað gert verði við skipið að lokinni
hreinsun og rannsókn lögreglu. Það
sé í höndum tryggingafélags Björg-
unar.
Ekki útlit fyrir að
Perla verði notuð á ný
Á floti Perla við Ægisgarð í gær.
„Það er því ljóst að þessum tveim-
ur milljörðum hefur að mestu leyti
verið ráðstafað nú þegar og ekki er
mikið svigrúm til að bæta við um-
fram þann fjölda flóttamanna sem
þegar hefur verið ákveðið að taka á
móti,“ segir Kjartan.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri telur kostnað borgarinnar
vegna komu hælisleitenda og flótta-
manna í ár ekki verða umfram áætl-
anir.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þeim tveimur milljörðum sem rík-
isstjórnin samþykkti í haust að veita
í aðstoð til flóttamanna og hælisleit-
enda hefur nú þegar verið ráðstafað
að miklu leyti. Má því reikna með
frekari fjárþörf í þessum málaflokki.
Þetta er mat Kjartans Magnús-
sonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, sem telur málið brýnt úr-
lausnarefni fyrir sveitarfélögin.
Kjartan segir að reikna megi með
að um helmingur þessara tveggja
milljarða, eða um einn milljarður,
fari til innanríkisráðuneytisins
vegna móttöku og uppihalds hælis-
leitenda á þessu ári og næsta.
Þá sé áætlað að utanríkisráðu-
neytið ráðstafi um 500 milljónum
króna til hjálparstarfs í flóttamanna-
búðum og annars staðar á vettvangi
átaka þar sem þörfin er mjög brýn.
Þá megi ætla að verja þurfi minnst
250-300 milljónum á næsta ári til
móttöku á 55 kvótaflóttamönnum,
sem koma til landsins í desember.
Fé til flóttafólks uppurið
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir 2 milljarða framlagi þegar ráðstafað
Reikna þurfi dæmið til enda áður en tekið sé á móti fleira flóttafólki til landsins
290 hafa sótt um hæli
» Í gær höfðu samtals 290
sótt um hæli á Íslandi í ár og
höfðu þar af 13 fengið vernd.
» Rauði krossinn býst við að
talan hækki á næstu vikum
vegna umsókna Sýrlendinga.
» Alls 67 kvótaflóttamenn
koma í ár og tugir á næsta ári.
MYfir 600 gætu sótt … »9