Morgunblaðið - 18.11.2015, Page 6

Morgunblaðið - 18.11.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2015 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Ljós og hiti TY2007X Vinnuljóskastari ECO perur 2x400W tvöfaldur á fæti 6.590 TY2007K Vinnuljóskastari m handf 400W ECO pera, 1,8m snúra 3.290 T38 Vinnuljós 4.990 Rafmagnshitablásari 5Kw 3 fasa 12.830 Rafmagnshitablásari 2Kw 1 fasa 6.890 TY2007W Vinnuljóskastari á telescope fæti 400W ECO pera 5.390 Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ SHA-2625 Vinnuljóskastari Rone 28W m. innst. blár. 1,8m snúra 6.990 SHA-8083 3x36W Halogen 16.990 Telescopic þrífótur fyrir halogen lampa 6.790 Þær bækur sem hafa þegar komið út sem rafbók hjá Bjarti verða til sölu á Amazon. Í fyrstu verða til sölu ríf- lega 50 titlar, um fimmtungur þeirra verður nýjar íslenskar bækur. Fyrir skemmstu samdi Forlagið, stærsta íslenska bókaútgáfan, einnig við Amazon og er þegar fjöldi ís- lenskra rafbóka til sölu þar. Bókatíðindi á heimilin Byrjað verður að dreifa Bókatíð- indum á öll heimili landsins í dag. Þau eru prentuð í 125 þúsund eintökum. Þess má geta að 25 tonna pappírs- sparnaður er í útgáfunni í ár sé miðað við Bókatíðindi árið 2009. Hægt er að skoða þau rafrænt á vefsíðu Félags íslenskra bókaútgefenda. „Þetta er rosalega sterkt ljóða- bókaár. Ég man ekki eftir öðru eins. Ég vona að fólk leiði hugann að því að kaupa ljóðabók því þær eru á svipuðu verði og blómvöndur og konfektkassi. Ljóð eru persónuleg gjöf,“ segir Bryndís. Hún bendir á að kannski megi rekja áhuga fólks á ljóðagerð til knapps forms samfélagsmiðla. Rafbækur fyrir jól á Amazon „Við erum búin að semja við Ama- zon og erum að ganga frá samn- ingnum um þessar mundir,“ segir Pétur Már Ólafsson hjá bókaútgáf- unni Bjarti. Hann væntir þess að les- endur geti keypt íslenskar rafbækur á Amazon, netbókabúðinni, að minnsta kosti fyrir jól. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ríkisstjórnin hefur ákveðið að grípa til samþættra aðgerða til að styðja byggð í Grímsey. Þær felast í að styrkja stöðu útgerðar, bæta sam- göngur, athuga með lækkun húshit- unarkostnaðar og sérstöku byggða- átaki á vegum Byggðastofnunar. „Mér líst ágætlega á þetta. Finnst þetta gott skref og jákvætt að stjórn- völd skuli sýna þessu áhuga,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjar- stjóri á Akureyri, en Grímsey tilheyr- ir Akureyrarbæ. Vinnuhópur nokk- urra ráðuneyta hefur verið að fjalla um tillögur sem aðgerðahópur þing- manna kjördæmisins, Akureyrar- bæjar, Atvinnuþróunarfélags Eyja- fjarðar og fleiri aðila gerðu. Eiríkur segir að samþykkt ríkisstjórnarinnar grundvallist á tillögum hópsins. Semja við bankann Skuldir hafa verið að sliga útgerð- ina í Grímsey. Í tillögum heima- manna var lagt til að Grímsey fengi 400 tonna byggðafestukvóta. Sam- hliða myndu forsvarsmenn útgerða og Íslandsbanki gera með sér sam- komulag um sölu eigna og niðurfell- ingu dráttarvaxta og lengingu lána þannig að hægt verði að tryggja framtíðarrekstur útgerðanna og verja sem mest af veiðiheimildum eyjarinnar. Í sömu tillögum er lagt til að veitt verði fé til að Grímseyjarferjan Sæ- fari geti farið fjórar ferðir á viku allt árið, í stað þriggja, og oftar yfir sum- arið. Þá er lagt til að athugaður verði möguleiki á því að fjölga flugferðum allt árið, meðal annars hvort hægt sé að fljúga tvisvar á dag yfir sumar- mánuðina. Einnig að teknar verði upp viðræður um niðurgreiðslur á samgöngum fyrir íbúa Grímseyjar. Hitaveita verði lögð Orkusetur hefur gert úttekt á hag- kvæmni hitaveitu í Grímsey. Miðað er við að hún verði kynt með olíukatli auk þess sem notaður verði varmi úr kælivatni og afgasi rafstöðvar. Veitan kostar um 80 milljónir og er talin hagkvæm. Í tillögum heimamanna er lagt til að hafinn verði undirbúningur að því að hrinda þessu verkefni í framkvæmd. Byggðastofnun hefur þegar tekið Grímsey inn í verkefnið Brothættar byggðir. Aukinn kvóti og betri samgöngur  Ríkisstjórnin grípur til aðgerða til að styðja byggð í Grímsey  „Gott skref,“ segir bæjarstjóri Morgunblaðið/ÞÖK Grímsey Byggðin á undir högg að sækja vegna erfiðleika útgerðar. Sogið eftir Yrsu Sigurðardóttur og Þýska húsið eftir Arnald Indriðason seljast vel ef marka má upplýsingar frá Pennanum Eymundsson, þótt sölutölur fylgi ekki með. „Við höfum aldrei selt jafn mikið af bók eftir Yrsu fyrstu helgina sem hún hefur komið í búðir,“ segir Margrét Jóna Guðbergsdóttir, vörustjóri íslenskra bóka hjá versluninni. Hún segir marga kaupa glæpasöguna fyrir sig en ekki endilega til að gefa í jólagjöf. Þá hefur bók Arnaldar einnig selst vel. Líklega munu þessi tvö halda áfram að bítast um efsta sætið á bók- sölulistanum að loknu jólabókaflóði eins og undanfarið. Sogið eftir Yrsu var prentað í 19 þúsund eintökum, þar af eru nokkur þúsund kiljur, sem eingöngu eru seldar á Keflavíkurflugvelli. Um fimm þúsund eintökum hefur þegar verið dreift en unnið er að því að dreifa bókinni frekar. Þýska húsið eftir Arnald var prentað í á þriðja tug þúsunda eintaka. Um 6.500 til 8 þúsund eintökum hefur þegar verið dreift í verslanir en bókin kom út 1. nóvember. Sogið og Þýska húsið GLÆPASÖGURNAR FARA VEL AF STAÐ Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Alls eru 652 bókartitlar í nýjustu Bókatíðindum sem Félag íslenskra bókaútgefenda gefur árlega út. Í fyrra voru titlarnir 637 talsins sem komu út á prenti. Bókunum fjölgar því í ár. Fleiri rafbækur eru skráðar í ár en þær eru alls 74 á móti 56 í Bóka- tíðindum árið áður. Fleiri nýjar bæk- ur koma því samhliða út sem rafbók og innbundin. Flestar rafbækurnar eru skáldverk. Þá koma álíka margar hljóðbækur út og í fyrra. Fleiri ungmennabækur Mikil gróska er í útgáfu íslenskra og þýddra barna- og ungmennabóka milli ára. Íslenskar ungmennabækur eru fleiri en þýddar í ár. Í fyrra voru þær íslensku sex talsins en eru 23 í ár. Þá fjölgar einnig skáldverkum, ís- lenskum og þýddum. Færri skáldsög- ur koma út eftir konur í ár en fyrir síðustu jól en konur eru fyrirferðar- meiri í barna- og ungmennabókum. „Mér sýnist þetta vera sterkasta kvennaárið í fræðibókum,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi ís- lenskra bókaútgefenda og vísar til kvenhöfunda fræðibóka. Svipaður fjöldi fræðibóka kemur út milli ára. Sterkt ljóðabókaár Ljóðabækur sækja í sig veðrið og segja má að þær séu fyrirferðarmeiri en undanfarin ár. Gæði ljóðabókanna eru nefnd í sömu andrá. Af ljóðabóka- höfundum má t.d. nefna Gyrði Elías- son, Lindu Vilhjálmsdóttur og Sjón. Morgunblaðið/Styrmir Kári Bækur Bóksalan fyrir jólin er þegar farin af stað enda er gróska í útgáfu og fleiri titlar gefnir út í ár en í fyrra. Gróska og gæði í útgáfu ljóðabóka  Fleiri bókartitlar gefnir út nú en 2014  Rafbækur í sókn Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Sveitarfélagið er með samning við heilsugæsluna um að veita þjónustu alla virka daga sem ekki er staðið við. Við erum mjög óánægð með þessa skertu starf- semi,“ segir Ísólfur Gylfi Pálma- son, sveitarstjóri Rangárþings eystra. Heilsugæslan var lokuð í sumar en til stóð að opna hana 1. sept- ember. Af því varð ekki vegna fyrirhugaðra endurbóta, sem til stóð að gera á húsnæðinu. Af þessum framkvæmdum varð ekki og nú hefur heilsugæslan verið opnuð á ný, en aðeins þrjá daga í viku í stað fimm daga áður. Þjónustu sinnt frá Hellu Á meðan lokað var hefur allri þjónustu verið sinnt frá heilsu- gæslustöðinni á Hellu. Í sumar- leyfum hefur þjónustan á Hvols- velli einnig flust yfir til Hellu. Á heimasíðu HSU stendur m.a.: „Tilgangur með breytingu á þeim tíma sem opið er er að bæta enn frekar þjónustu við íbúa Rangárþings með því að nýta enn betur þann mannafla og fagmenn sem veita heilbrigðisþjónustu hjá HSU í Rangárþingi. Með þessari breytingu er hægt að bjóða upp á betri og meiri þjónustu, s.s. í heimahjúkrun og fjölda annarra verkefna sem heilbrigðisstarfs- menn sinna.“ SS með heilsugæslusamning Sláturfélag Suðurlands á Hvols- velli er með samning við heilsu- gæsluna um að veita starfsfólki sínu þjónustu alla virka daga. „Þetta kemur okkur í opna skjöldu. Við höfum sýnt þessu skilning í sumar og í haust en þetta er mikil afturför og metn- aðarleysi. Ég er líka íbúi á svæð- inu og er mjög ósáttur við þetta,“ segir Guðmundur Svavarsson, framleiðslustjóri Sláturfélags Suð- urlands. Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur óskað eftir frekari fundum með HSU. Líklega verður haldinn opinn íbúafundur 7. des- ember nk. Ekki náðist í Herdísi Gunnars- dóttur, forstjóra Heilbrigðisstofn- unar Suðurlands, við vinnslu frétt- arinnar. Óánægja með þjónustuna  Heilsugæsla á Hvolsvelli opin 3 daga í viku  Segja ekki staðið við samninga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.