Morgunblaðið - 18.11.2015, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2015
Laugavegur 59, 2. hæð • Sími 551 8258 • storkurinn.is
Opið:
Mán.-F
ös.
11-18
Lau. 12
-16
prjónaþerapían
hefst hjá okkur
Það er líklega ekki
tilviljun hve margir ís-
lenskir stúdentar
ákveða að leggja stund
á háskólanám á er-
lendri grundu. Að vera
háskólanemi í útlönd-
um eru mikil forrétt-
indi. Burtséð frá hinu
formlega námi sem er
auðvitað nauðsynlegt
þá er ekki síður mik-
ilvæg reynsla að kynnast nýrri
menningu og fólki frá ólíkum heims-
hornum og læra að heimurinn er að-
eins stærri en alheimsnaflinn okkar
góði.
Þrátt fyrir að ég líti ekki á há-
skólanám erlendis sem sjálfsögð
mannréttindi, þá finnst mér mik-
ilvægt að sem flestir hafi aðgang að
því. Ástæðan er sú að ég tel að slíkt
nám sé bæði góð fjárfesting fyrir
viðkomandi einstakling og sam-
félagið í heild. Háskólanám erlendis
er þó yfirleitt nokkuð kostnaðarsöm
fjárfesting og því er
lykilatriði að sterkt
námslánakerfi sé til
staðar sem greiði leið
þeirra sem annars
hefðu ekki fjárhagsleg
tök á því.
Mikið hefur verið
rætt um fjárframlög til
LÍN á síðustu miss-
erum, einkum í
tengslum við skert
framfærslulán lána-
sjóðsins. Sú umræða
þarf ekki að koma á
óvart, enda liggur í augum uppi að
fáir námsmenn erlendis geta lifað
sómasamlegu lífi á framfærsluláninu
einu saman. Miklar og skyndilegar
skerðingar á námslánum hljóta bæði
að draga úr tækifærum til að hefja
nám og ógna námsferli þeirra sem
hafa þegar hafið nám á ákveðnum
forsendum. Full ástæða er til þess að
vera vakandi yfir þróuninni, einkum
vegna þess að tölur frá LÍN sýna að
námsmönnum erlendis hefur fækkað
jafnt og þétt á síðustu árum. Hins
vegar þykir mér miður að umræða
um LÍN virðist á löngum köflum ein-
skorðast við niðurskurð og úthlut-
unarreglur, fáir virðast setja spurn-
ingarmerki við námslánakerfið í
heild.
Íslenska námslánakerfið hefur
þróast, nokkurn veginn stefnulaust,
út í það að vera lánakerfi með inn-
byggðu styrkjakerfi, eins skrýtið og
það kann að hljóma. Styrkurinn er til
kominn vegna þess að LÍN fjár-
magnar lánin sín á hærri vöxtum en
leggjast á lán til námsmanna, sem og
vegna affalla. Áætlað er að hátt í
helmingur útlána stofnunarinnar sé í
formi opinbers styrks!
Hvernig er hægt að halda því fram
að þetta sé slæmt kerfi? Megin-
ástæðan er sú að styrkurinn hækkar
eftir því sem námslán hækka. Á
meðan þeir sem taka tiltölulega lág
námslán þurfa að borga stærstan
hluta þeirra til baka, þá fá þeir sem
taka námslán upp á 10 milljónir
króna ríflega 50% í eftirgjöf að jafn-
aði. Þá nemur opinber styrkur, sem
hlutfall af 20 milljóna króna náms-
láni, um 80% að jafnaði. Það er sem
sagt hvati í kerfinu til þess að taka
sem hæst námslán. Það þarf því ekki
að koma á óvart að staða lánasjóðs-
ins fari versnandi, námslán hafa
hækkað og vanskil aukist, og mun sú
þróun að óbreyttu halda áfram.
Hvort þeir sem taka hæstu náms-
lánin eru í mestri þörf fyrir opinber-
an styrk er umdeilanlegt. Sá grunur
læðist þó að manni að þeir sem eyða
mörgum árum í háskólanám við dýr-
ustu háskóla heims séu ekkert endi-
lega á flæðiskeri staddir.
Eitt helsta hlutverk LÍN, sam-
kvæmt lögum um sjóðinn, er að
tryggja námsmönnum jöfn tækifæri
til náms óháð efnahag. Margt bendir
til þess að illa gangi að uppfylla þetta
hlutverk. Vegna þess hve miklum
fjármunum er varið í að styrkja þá
sem taka hæstu námslánin virðist
ekki vera svigrúm til að bjóða lán-
þegum upp á sómasamleg fram-
færslulán. Þetta er vaxandi vanda-
mál sem verður ekki leyst með
auknum fjárframlögum einum sam-
an.
Ef stjórnvöld vilja stuðla að því að
íslenskir námsmenn nái sér í mennt-
un og reynslu á erlendum vettvangi,
þá verður að búa til betri umgjörð en
þá sem nú er við lýði. Í því samhengi
er nauðsynlegt að endurskoða náms-
lánakerfið. Til að mynda hafa verið
uppi hugmyndir um að koma á sann-
gjarnara styrkjakerfi við hlið lána-
kerfis sem gæti staðið undir sér til
lengri tíma. Slíkum hugmyndum ber
að veita athygli og menntamála-
ráðherra hefur reyndar sagst vera
tilbúinn að skoða breytingar í þá
veru. Mikilvægast af öllu er þó að
stjórnvöld móti stefnu í þessum
málaflokki og ákveði hvaða leið eigi
að fara. Ef ekki, og þróunin fær að
halda áfram, þá er hætt við því að
háskólanám, einkum kostnaðarsamt
háskólanám erlendis, verði bara val-
kostur fyrir afmarkaðan hóp.
Bólumyndun á námslánamarkaði
Eftir Jón Þór
Kristjánsson » Það er sem sagt
hvati í kerfinu til
þess að taka sem hæst
námslán.
Jón Þór Kristjánsson
Höfundur er meistaranemi í opinberri
stefnumótun við Edinborgarháskóla.
Hvar verður mjölvi
(eða kolhýdröt) til?
Öll lífræn efni í nátt-
úrunni eru byggð úr
glúkósa. Olíuborkallar
leita að kolvetnum.
Kolhýdröt eru oftast
langar glúkósakeðjur,
eða fjölglúkósar, og
eru stundum með
hóp, sem kallaður er
tréni. Oft eru tengi á
milli alfakeðjanna.
Kolhýdröt eru meginorkugjafi
matar heims. Í töflu 1 má sjá
heildarorku (úr mjölva) í fæði
þjóða. – Talan fyrir Ísland er
mjög lág. Skýring er sú, að í ís-
lenskum mat er mjög mikið um
mjólkurafurðir, sem leggja til pró-
tein og fitu. Prótein er dýrasti
þátturinn og því er hlutfall þess í
mat þjóða miklu lægra en á Ís-
landi. Við höfðum ódýran fisk og
mjólkurafurðir. Í Afríku er neysl-
an aðallega korn og plöntur, en
það hækkar hlutfall mjöls og
plantna sbr. tafla 1. Í ríkum þjóð-
um er mikið af kjöti (sbr. Arg.,
BNA). Í töflunni má sjá, að korn
er stærstur hluti af orku matar
alls heimsins.
Tafla 1
Hluti af orku í kolhýdrötum,
% eftir löndum.
Ísland 45
Bandaríkin 49
Evrópa (Mið-Evrópa) 50-55
Brasilía 59
Kína 61
Túnis 64
Nígería 69
Kambódía 76
Búrúndí 82
Greinilegt er, að megnið af orku
matar er kolhýdröt. Nokkuð er af
súkrósa (borðsykur) og laktósa
(mjólkursykur), en þessi efni eru
líka kolhýdröt. Þar sem fram-
leiðsla á dýraafurðum er ódýr
(Bandaríkin, Argentína) er mikils
neytt af þeim og þá verður minna
frá kolhýdrötum. Í öllum öðrum
löndum er hlutfallið mun hærra.
Það byggist á því, að framleiðsla
plöntuafurða er ódýrust alls stað-
ar. Þar er framleitt korn ásamt
grænmeti og ávöxtum og lítið af
dýraafurðum. En orkan kemur frá
kolhýdrötum víðast hvar.
Orka í matvælum
Orka í matvælum er eftirfar-
andi: Prótein: 4,1 kcal/g, fita: 9,0
kcal/g, kolhydröt, 4,0
kcal/g. Þessar tölur
eru nægilega ná-
kvæmar til að fara
eftir þeim við mat-
argerð. Gildin eru
breytileg eftir aðferð-
um. Ef reiknuð er út
heildarorka mat-
arflokka er ljóst, að
kolhýdröt eru stærsti
þátturinn. Og mat-
arorkan er ódýrust í
kolhýdrötum. Með
iðnbyltingunni jókst
framleiðsla á korni í Evrópu og
Ameríku og síðar í Suður-Ameríku
og Ástralíu. En prótein eru lífs-
nauðsynleg. Þau brotna niður í 20
amínósýrur, en helmingur þeirra
er lífsnauðsynlegur. Fitan nýtist
sem orkugjafi.
Við lifum í glúkósaheimi.
Fjölglúkósakeðjur með beta-
tengingum meltast ekki í mögum
okkar. Næstum allur grasgróður á
landi nýtist fyrir grasbíta, sem
gætu nýtt tré ef það væri rifið
niður nægilega smátt. Stærstur
hluti plantna er fjölglúkósakeðjur,
en þær tengjast beta-tengingum.
Timbur er byggt upp efnafræði-
lega af glúkósa með beta-
tengingum. Við borðum glúkósann
með alfa-tengingum!
Samsetning helstu
kolhýdratamatvæla
Kolhýdröt (mjölvi) eru töluvert
mismunandi að gerð í matvælum.
Þau eru stærsti hluti matvæla
mannsins (tafla 1) og þau matvæli,
sem leggja mest af kolhýdrötum
að mörkum má sjá í töflu 2. Öll
helstu kolhýdratamatvæli eru
korntegundir og kartöflur. En
efnainnihald þeirra er svipað.
Mjölvi er rétt um 2⁄3 af korni. Í
kartöflum er mikið vatn, en þegar
það er tekið burt sést að kartöflur
eru næstum eins og kornið með
mjölva að tveimur þriðju. Neðst í
töflu 2 má sjá heildarframleiðslu
korns eftir tegundum hver fyrir
sig. Þá sést, að hveitið er ein
helsta tegundin og jöfn á við maís
og hrísgrjón. Maísinn fer hér-
lendis að mestu leyti í dýrafóður,
en hann er notaður í matvæli, að-
allega í Bandaríkjunum, þar sem
hann er notaður á margvíslegan
hátt og ekki bara í poppkorn og
kornflögur. Hann er notaður í
brauð og ýmis unnin matvæli eða
iðnaðarmatvæli eða hitasprengt
morgunkorn. Hrísgrjón eru aðal-
matvæli fjölda þjóða í Asíu. Hér á
landi er hveitið aðaluppspretta
mjölva. Ef farið er út í bakarí má
sjá, að flestar vörur þar eru
byggðar á hveiti að meira eða
minna leyti. Þó má einnig sjá
dökkt rúgbrauð af ýmsu tagi.
Hveitivörurnar líta mjög mismun-
andi út. Þær eru t.d. unnar úr fín-
asta hvítu hveiti, heilhveiti af
ýmsu tagi með mismunandi mikl-
um ytri lögum hveitikornsins og
möluðu klíði og sigtuðu (misstór
sigtunarop). Og reyndar eru fjöl-
margar tegundir af hveitikorni
auk þess sem hveitikornið sjálft er
mismunandi. – Þó má sjá, að bygg
er líka framleitt í umtalsverðu
magni og notað í matvæli til dag-
legs brúks. Þá er stuðst við bygg-
mjöl aðallega og það notað í
blöndur af mjöli, sem notað er til
brauðframleiðslu. Bakarar þekkja
ýmsar hliðar á bygginu. – Frá því
ég var barn man ég vel eftir svo-
kölluðu bankabyggi, sem notað
var í grauta.
En síðar verður hinu ótrúlega
lýst. Glúkósamatur (mjölvamatur)
hefur mismunandi orku eftir því
hvernig hann er matreiddur!
Hverjum gæti dottið það í hug?
Getur fólk þá dundað við að
minnka orku í matnum sínum?
Tafla 2
Prótein %
Hveiti 11,7
Rúgur 11,6
Bygg 10,6
Maís 9,2
Hrísgrjón 7,4
Hafrar 12,6
Kartöflur 2,0
Flögur 7,8
„Mjölvi“ og önnur kolhýdröt%
Hveiti 69,3
Rúgur 69,0
Bygg 71,6
Maís 71,0
Hrísgrjón 75,0
Hafrar 62,9
Kartöflur 17,8
Kartöfluflögur 69,4
Offita fólks og
efnafræðilegar orsakir
Eftir Jónas
Bjarnason »Mjölvi er meginupp-
spretta orku matar.
Hann byggist á glúkósa
og kemur úr korni. Það
er stærsti hluti mat-
arins. Orkan er breyti-
leg eftir matreiðslu.
Jónas Bjarnason
Höfundur er efnaverkfræðingur.
Herra Cameron reyndist svo sem
vænta mátti heldur rýr í roðinu, enda
sást í gegnum hann, þar sem hann
fann ekki hjá sér ástæðu til að biðjast
afsökunar fyrir hönd stjórnar sinnar
á ruddaskap fyrrverandi forsætisráð-
herra þeirra, er sá lýsti því yfir að Ís-
lendingar færu lóðbeint á hausinn og
væru hryðjuverkamenn og setti í
gildi bresk lög til varnar gegn hinni
íslensku hryðjuverkaþjóð sem hann
taldi að væri gjaldþrota.
Evrópa, öll nema Færeyingar og
Pólverjar, tók mark á þessum
öskrandi forsætisráðherra stórveld-
issæmdarinnar, sem ver heiður sinn
með hryðjuverkum. Setti Evrópa því
undir sig hausinn eins og spánskur
boli við rauðri dulu, enda fyrirmyndin
breskur forsætisráðherra. Herra
Cameron svaraði því aðspurður að
Icesave væri að baki og þar með lokið
og svo kann að vera fyrir illa siðuðum
eins og honum og selskapslega gest-
gjafanum. En það eru ekki allir svo
vankaðir að muna ekki eftir hryðju-
verkadómi bresku ríkisstjórnarinnar
á þessum tíma, þegar við lágum vel
við höggi breska ruddans, en Sig-
mundur Davíð er líkast til of ungur til
að muna það.
Þegar ærlegir átta sig á því, að
ærumeiðingar og skemmdarverk hafi
verið framin, nánast handarhögg án
tilefnis, þá biðjast þeir að minnsta
kosti afsökunar. Í þessu máli er ekk-
ert við breskar þjóðir að sakast, það
eru bresk stjórnvöld sem hér eru með
allt niðurum sig og herra Cameron
bætir þar um betur. Þeir herramenn,
Cameron og Brown, eiga sér ljóslega
nokkra samnefnara. Þó hefði verið
einfalt fyrir einlægan að losa um
þetta mál og afla sér virðingar, en
flókið fyrir andstæðuna, sérlega sé
hún illa upplýst.
Hrólfur Hraundal
vélvirki.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Það hefði verið svo einfalt
Afsökunarbeiðni Eru einhverjir búnir að gleyma Icesave?