Morgunblaðið - 28.11.2015, Page 1
JólagjafiráratugannaEINU SINNI URÐU ALLIR AÐ FÁHELGARSLOPP RÁ Karla
SUNNUDAGUR
MEÐ ÓTAL ANDLIT
Í HEIMI HÁTÍSKUÍ ÁRATUGI
HVER HLUTUR Á SINNSTAÐ Á HEIMILINU
STEFÁN MÁNI 48
SVALA BJÖRGVINS 36
HELGA BJÖRNSSON 34
INNLIT HJÁ ARNARI GAUTA 22
SPENNTURFYRIRVONDUFÓLKI
29. NÓVEMBER 2015
ANN TELUR AÐ NÚ ÞURFI AÐ HORFAST Í AUGU VIÐ VANDA RÚV OG
ANN Í STAÐ ÞESS AÐ GERA SKÝRSLU UM VANDANN AÐ ÞRÆTUEPLI 40
LEYSA H
* Ö
STENDUR 100%VIÐ SKÝRSLUNA
10
L A U G A R D A G U R 2 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 280. tölublað 103. árgangur
NÆRANDI
ANDI Í NÝJU
PLÖTUNNI
EITT STÓRT
PERSÓNU-
LEIKAPRÓF
SÓMI ÞJÓÐAR 46EITT 49
Grunnskólar
» Skólastjórnendur segja
varla hægt að skera niður í
skólastarfi.
» Þeir segja að aðhaldið hafi
verið mikið í rekstri skóla
undanfarin ár.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Skólastjórnendur í Reykjavík eru
uggandi vegna niðurskurðar
Reykjavíkurborgar til skóla- og frí-
stundasviðs sem er um 669 milljónir
króna á næsta ári. Fjórir skóla-
stjórnendur sem rætt var við töldu
að ekki væri hægt að skera meira
niður til grunnskólanna án þess að
það kæmi niður á þjónustunni.
„Það verður ekki skorið meira nið-
ur í grunnskólunum nema stjórn-
málamenn fylgi því úr hlaði og til-
kynni íbúum í Reykjavík að það þýði
minni þjónustu. Við skólastjórnend-
ur sitjum uppi með svartapétur því
við eigum að uppfylla þjónustuloforð
Reykjavíkurborgar,“ segir Ómar
Örn Magnússon, skólastjóri Haga-
skóla.
Í sama streng tekur Guðlaug Erla
Gunnarsdóttir, formaður Félags
skólastjórnenda í Reykjavík. Hún
bendir á að frá hruni hefur verið
niðurskurður og hagræðing í grunn-
skólunum. Reykjavíkurborg þurfi að
leita annarra leiða til að ná fram
sparnaði í rekstri.
Skúli Helgason, formaður skóla-
og frístundasviðs Reykjavíkurborg-
ar, segir verkefnið krefjandi því að-
haldið hafi verið mikið undanfarið.
Skólastjórar fá svartapétur
Segja frekari niðurskurð koma niður á þjónustunni Verkefnið krefjandi, segir
formaður skóla- og frístundasviðs Skorið niður um 669 milljónir á næsta ári
MEkki hægt að skera meira … »4
Morgunblaðið/RAX
Líf Börn eru yndisleg en ekki er allt-
af auðvelt að koma þeim í heiminn.
Sumar konur upplifa fæðingu
sem svo slæma reynslu að þær fá
einkenni áfallastreituröskunar.
Mætti reikna með að allt að 200
íslenskar konur lendi í þessum
sporum ár hvert. Hildur Sigurð-
ardóttir, lektor við hjúkrunar-
fræðideild, vinnur að leiðum til
að skima eftir vandanum og grípa
inn í bæði fyrir og eftir fæðingu.
Hún sér fyrir sér þrepaskipt úr-
ræði þar sem fyrsta þrepið væri
sjálfsmat og fræðsla á netinu
með meiri aðstoð ef þess reynist
þörf.
Það flækir vandann að oft er
orsök áfallsins hulin heilbrigðis-
starfsmönnum og jafnvel að
sjálfsöryggi og væntingar móður-
innar til fæðingarinnar spili inn í.
Nýbakaðar mæður geta líka verið
hikandi við að leita sér aðstoðar
því þær skammast sín fyrir að
vera ekki fullkomlega hamingju-
samar, eins og þær héldu að þær
ættu að vera. „Hefur þeim þá
mögulega ekki bara verið innrætt
að fæðingin sjálf hefði átt að vera
á tiltekinn veg, áfallalaus og ynd-
isleg, heldur líka tímabilið sem
kemur í kjölfarið,“ segir Hildur.
Vandinn getur ágerst og smitað
út frá sér svo að hitt foreldrið
tekur að þróa með sér þunglyndi.
Fjallað er um málið í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins.
Í miklu áfalli eftir fæðinguna
Mögulegt að 5-10% kvenna sitji uppi með mjög neikvæða upplifun af fæðingu
Snjórinn býður upp á ýmsa skemmtun og sjálfsagt
er að taka myndir af gæðastundum í hvítri mjöll-
inni. Snjórinn hefur líka í för með sér ófærð og
erfiðleika og í fyrrinótt snjóaði talsvert á suðvest-
urhorninu. Sköfur og kústar voru því þarfaþing í
gærmorgun. Áfram eru norðlægar áttir í kort-
unum og víðast kalt í veðri. Í dag er spáð norðan
8-15 metrum og snjókomu eða éljum nyrðra.
Hægara verður og úrkomulítið syðra. » 4
Gæðastund í snjónum mynduð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Talsvert snjóaði í höfuðborginni og sköfur og kústar voru þarfaþing
Vaxandi áhyggjur eru nú í við-
ræðum samtaka á vinnumarkaði um
útfærslu Salek-rammasamkomu-
lagsins vegna þess að ríkisstjórnin
hefur enn ekki kynnt tillögur til að
uppfylla hlut stjórnvalda í sam-
komulaginu. Í viðræðum ASÍ og SA
er unnið að gerð kjarasamnings um
breytingar á gildandi samningum og
aðlögun forsenduákvæða að Salek-
samkomulaginu, en endurskoðun
samninga þarf að vera lokið fyrir 1.
febrúar.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir í leiðara
fréttabréfsins Af vettvangi í gær að
lækki tryggingagjaldið ekki á næsta
ári séu kjarasamningar fyrir tíma-
bilið 2016-2018 í uppnámi. »16
Strik í reikninginn
í Salek-viðræðum
Fundi í kjaradeilu fulltrúa
starfsmanna álversins í Straums-
vík og stjórnenda lauk á sjötta
tímanum í gær án þess að nið-
urstaða fengist. Fulltrúar hittast
að nýju á fundi á mánudag klukk-
an 11. Yfirvofandi er að verkfall
hefjist í álverinu á miðvikudag.
Kallað var til fundarins hjá
ríkissáttasemjara í gær með stutt-
um fyrirvara. Ólafur Teitur
Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio
Tinto Alcan, vildi ekki gefa neinar
upplýsingar um viðræðurnar þeg-
ar eftir því var leitað og sagðist
bundinn trúnaði.
Aftur fundað í ál-
versdeilu á mánudag
Í nefndaráliti meirihluta fjár-
laganefndar um frumvarp til fjár-
aukalaga kemur fram að þjóð-
kirkjan fær 370 milljóna króna
framlag. Miðast hækkunin við að
framlag ríkissjóðs verði reiknað
samkvæmt upphaflegu kirkjujarða-
samkomulagi og þar með að allar
aðhaldskröfur sem gerðar hafa ver-
ið til þjóðkirkjunnar frá og með
árinu 2009 verði afturkallaðar. For-
sendur þessarar tillögu eru að ríkið
gerir það að skilyrði að kirkjan
skuldbindi sig til þess að hefja þegar
samningaviðræður um endurskoðun
kirkjujarðasamkomulagsins sem feli
í sér endurskoðun allra fjárhags-
legra samskipta ríkis og kirkju.
„Með þessu er farið ofan í sam-
komulag frá 1997 þar sem ríkið fékk
nær allar jarðir gegn því að ríkið
myndi yfirtaka launagreiðslur til
presta,“ segir Vigdís Hauksdóttir,
formaður fjárlaganefndar. »2
Kirkja Framlag til þjóðkirkju er háð skil-
yrðum um endurskoðun samkomulags.
Skilyrði um endur-
skoðun kirkjujarða-
samkomulags