Morgunblaðið - 28.11.2015, Side 10
arinnar með hönd-
unum á borðið þar sem
blaðamaður sat og
ræddi við hljómsveit-
ina.
Nokkrir gesta-
söngvarar léðu plöt-
unni einnig krafta sína,
þ.e. Jónas Sigurðsson, María Huld
Pétursdóttir, Margrét Lára Þór-
arinsdóttir og Stefán Jakobsson.
Bakraddakórinn er einnig stjörnum
prýddur og var ekki vandamál að fá
þekkt tónlistarfólk eins og Magna
Ásgeirsson til liðs við sveitina. „Það
sagði enginn nei eða var of upptek-
inn,“ segir Ásþór en allir hafi verið
ánægðir með afraksturinn þegar
platan var tilbúin.
Nafn sveit-
arinnar byrjaði sem
vinnuheiti þegar
strákarnir hugðust
taka þátt í Músíktil-
raunum.
„Það festist svo
bara við okkur,“ segir Ásþór en lögin
sem þeir tóku í tilraununum enduðu á
nýútgefinni plötu í bland við mörg ný.
„Í staðinn fyrir að spila lagið á
plötunni eins og við höfum alltaf gert
á tónleikum kom svolítið nýtt lag á
plötuna sem við hermum svo eftir á
tónleikum,“ segir hann en gerð plöt-
unnar hafi þróað lögin þeirra mikið.
Ásþór semur öll lög sveitarinnar og
viðurkennir að sér finnist það einna
skemmtilegast við tónlistina.
Strákarnir koma þó allir að út-
setningu þeirra. „Albert útsetur
bassann og semur hann alveg. Við
Þórarinn búum svo til trommurnar.
Síðan samræma þeir trommur og
bassann,“ segir hann en öllum hug-
myndum frá strákunum að uppsetn-
ingu lagsins sé mjög vel tekið og þeir
prófi allt áður en lokaniðurstaðan lít-
ur dagsins ljós.
Vel gekk að safna styrkjum
Gerð plötunnar var fjámögnuð í
gegnum Karolina fund og eru allir
þeir sem lögðu henni lið tilteknir sér-
staklega í plötuumslagi Meistaranna.
og gengur í Hraunavallaskóla í Hafn-
arfirði. Þórarinn rekur svo lestina og
er yngstur, eða 12 ára. Bræðurnir
stunda einnig tónlistarnám hjá Tón-
listarskóla FÍH og er Þórarinn
yngsti nemandinn í sögu skólans.
„Fannst þetta bara gaman“
„Pabbar okkar þekkjast vel og
voru í hljómsveit saman þegar þeir
voru yngri. Svo komumst við að því
að Albert spilaði á bassann og þá
ákváðum við að stofna bara hljóm-
sveit,“ segir Ásþór um fyrstu skrefin
að myndun Meistara dauðans og
strákarnir taka undir með honum.
Foreldrar drengjanna þriggja
hafa leikið stórt hlutverk í tónlistar-
lífi þeirra. „Pabbi kenndi mér öll
grunnatriðin á bassann og ég hef ver-
ið að spila síðan ég var 9 ára. Ég var
ekkert að pæla í því að verða betri og
það gerðist bara sjálfkrafa, mér
fannst þetta bara gaman,“ segir Al-
bert.
Þá fengu bræðurnir sín hljóð-
færi á unga aldri og hafa spilað síðan.
Þórarinn hefur þannig trommað frá
því hann man eftir sér og er orðinn
afar fær eins og kom glögglega í ljós
þegar hann gerði sér lítið fyrir og tók
trommustefið úr einu lagi sveit-
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Við gerum í því að vera svolít-ið fjölhæfir og með fjölhæf-an metal,“ segir ÁsþórLoki Rúnarsson, söngvari
og gítarleikari þungarokkssveit-
arinnar Meistarar dauðans, en
hljómsveitin gaf út samnefnda plötu
á dögunum, Meistarar dauðans.
Er þetta fyrsta plata sveit-
arinnar sem er skipuð þremur ung-
um drengjum sem hafa óbilandi
áhuga á þungarokki og rokki al-
mennt, en til marks um það halda
þeir mikið upp á hljómsveitirnar Me-
tallica, Dimmu, Skálmöld og Iron
Maiden.
Bræðurnir Ásþór Loki og Þór-
arinn Þeyr Rúnarssynir manna gít-
arinn og trommurnar en Ásþór ljær
sveitinni einnig rödd sína. Albert Elí-
as Arason slær svo bassann af mikl-
um myndugleik og saman hafa þeir
náð fótfestu á sviði þungarokksins
svo um munar.
Ungur aldur drengjanna stend-
ur þeim ekki fyrir þrifum en Ásþór er
elstur, eða sextán ára, og gengur í
Menntaskóalnn við Hamrahlíð. Al-
bert er árinu yngri, eða fimmtán ára,
Meistarar
dauðans
stíga á svið
Meistarar dauðans er þungarokkssveit ungra drengja
sem eiga allir framtíðina fyrir sér á tónlistarsviðinu.
Þeir hafa nú gefið út sína fyrstu plötu og koma fram
á tónlistarhátíðinni Rokkjötnar í Vodafone-höllinni
í byrjun desember. Þungarokkið hefur tekið þeim
opnum örmum og margir hrósað vaskri framgöngu
þeirra og gæðum tónlistarinnar.
Rokk Meistara dauðans skipa (frá vinstri) Albert Elías Arason, Þórarinn Þeyr Rúnarsson og Ásþór Loki Rúnarsson.
„Við ætlum að
verða eins og
Rolling Stones,
eldgamlir að spila
á tónleikum“
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015
Í aðdraganda jólanna geta fjölskyldur
tekið sér ótal margt skemmtilegt fyr-
ir hendur til að auka verulega á jóla-
gleðina. Barna- og fjölskyldu-
viðburðir Borgarbókasafnsins eru
afar heppilegir til þess.
Skreytiglaðar fjölskyldur finna
eitthvað við sitt hæfi, en í dag, laug-
ardag, verður m.a. hægt að gera fal-
lega pappírsengla undir styrkri stjórn
Aspar Óttarsdóttur í Borgarbóka-
safninu í Norðlingaskóla kl. 14-16.
Allt efni er á staðnum og frítt inn.
Í dag verður einnig boðið upp á
upplestur úr skrímslabókunum á
fjölda tungumála í samstarfi við Móð-
urmál, félag tvítyngdra barna. Áslaug
Jónsdóttir, einn höfunda bókanna,
verður með upplestur úr bókinni
„NEI! sagði litla skrímslið.“
Á morgun, sunnudag, sýnir Mögu-
leikhúsið svo í Gerðubergi jóla-
leikritið Hvar er Stekkjastaur? „Jóla-
sveinarnir ákveða að koma ekki til
byggða, ysinn og þysinn er orðinn of
mikill en hvað gerist þá!“ segir um
leikritið en hægt er að panta miða í
síma 8971813.
Margt um að vera fyrstu aðventuhelgina
Fjölskyldufjör á aðventunni
í boði Borgarbókasafnsins
Aðventan Lítill lestrarhestur sökkvir sér ofan í Skrímslabók. Á Bókasafninu í
Norðlingaskóla verður lesið upp úr bókunum fyrir börnin.
Undirþrýstingur í miðeyra með vökva.
Eftir þrýstingsjöfnunmeðOtoventblöðru,
miðeyrað opið og engin vökvi.
Fæst í apótekum www.celsus.is
Meðferð við
eyrnabólgu og
vökva í miðeyra
– lagar og fyrirbyggir
• Um 70 % fá bót við fyrstu notkun
• Vel rannsökuð meðferð sem leiðréttir undir-
þrýsting í miðeyra, opnar kokhlustina svo að
vökvi eigi greiða leið.
• Getur dregið úr notkun sýklalyfja, ástungum
og rörum í eyrum.
• Góður árangur tengt flugi, köfun, sundi
og kinnholustíflum. Fyrir börn og fullorðna.
• CE merkt – Meðmæli lækna.