Morgunblaðið - 28.11.2015, Side 14

Morgunblaðið - 28.11.2015, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 1. desember í Snæfelli, Hótel Sögu klukkan 20:00-22:00 Allir velkomnir Heimssýn Hátíðarávörp, upplestur, söngur, tónlist og kaffiveitingar. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er mat sérfræðinga Hagstofu Ís- lands að aukinn fjöldi brottfluttra ís- lenskra ríkisborgara sé „ekki um- fram það sem telja má eðlilega sveiflu miðað við fyrri ár“. Sú niður- staða eigi við „hvort sem horft er til búferlaflutninga hjá einstaklingum eða kjarnafjölskyldum“. Greint er frá þessari niðurstöðu í nýrri skýrslu en tilefnið er að líkind- um umræða að undanförnu um brottflutning ungra íslenskra ríkis- borgara fyrstu 9 mánuði ársins. Sú umfjöllun hófst með frétt í Morgunblaðinu 11. nóvember um að rúmlega 1.100 fleiri íslenskir ríkis- borgarar fluttu frá landinu en til þess fyrstu 9 mánuði ársins. Þannig fluttu 3.120 íslenskir ríkisborgarar frá landinu, en 1.990 til landsins á tímabilinu. Voru þá ekki tiltækar upplýsingar hjá Hagstofunni um aldursskiptingu fólksins. Hér til hliðar má sjá graf sem sýn- ir fjölda brottfluttra íslenskra ríkis- borgara umfram aðflutta á tíma- bilinu frá 1961-2015. Eins og sjá má hafa brottfluttir íslenskir ríkisborg- arar umfram aðflutta sjaldan verið fleiri á heilu ári en á fyrstu 9 mán- uðum þessa árs. Getur verið oftúlkað Violeta Calian, sérfræðingur á mannfjöldadeild Hagstofunnar, seg- ir mikilvægt að setja búferlaflutn- inga til og frá landinu í sögulegt sam- hengi. Þannig skipti miklu máli að fjöldi brottfluttra umfram aðflutta sé settur í samhengi við íbúafjölda landsins. Landsmönnum hafi til dæmis fjölgað mikið síðan 1986. Calian telur því ekki rétt að ein- blína á mismun þessara tveggja stærða og bera hann svo saman við tölur fyrri ára. Það sé tölfræðilega ekki góð aðferðafræði. Slík nálgun geti leitt til oftúlkunar á náttúruleg- um sveiflum. Telur Calian, sem er sérfræðingur í tölfræði, því ekki rétt að einblína á þessa tölfræði. Hagvöxtur hefur áhrif Hún segir fylgni milli búferla- flutninga og efnahagsástands á Ís- landi. „Aðflutningur íslenskra ríkisborg- ara aftur til Íslands ræðst af hag- vexti, atvinnuleysi og fjölda útskrif- aðra stúdenta, en brottflutningur íslenskra ríkisborgara fylgir fjölda útskrifaðra stúdenta,“ segir Calian og tekur fram að báðar breytur séu með tímatöf. Hún vísar svo til tveggja grafa sem hér eru endurgerð með hennar leyfi. Sýna þau aldurs- skiptingu í brottflutningi íslenskra ríkisborgara árin 1986-2015. Í tilefni af þessari greiningu Hag- stofunnar kannaði blaðamaður hlut- fall brottfluttra íslenskra ríkisborg- ara umfram aðflutta sem hlutfall af íbúafjöldanum, á tímabilinu 1961- 2015. Skal tekið fram að flutnings- jöfnuðurinn er niðurstöðutala hvers árs og miðast því við stöðuna í árs- lok. Íbúafjöldinn miðast hins vegar við 1. janúar ár hvert. Þessi þróun er hér sýnd á grafi. Var markmiðið að sjá hver brottflutningurinn væri í sögulegu samhengi síðustu 55 ár. Eins og sjá má hefur flutningsjöfn- uðurinn verið neikvæður flest árin. Aðeins hærri í 11 skipti Samkvæmt þessari nálgun er árið 2015 – þ.e.a.s. fyrstu 9 mánuðir árs- ins – í 12. sæti á þessum lista. Það þýðir að á 11 af 55 árum frá 1961 hef- ur hlutfall brottfluttra íslenskra ríkisborgara umfram aðflutta af íbúafjöldanum verið hærra en í ár. Síðasti fjórðungur þessa árs er ekki inni í þessum tölum og gæti árið 2012 því endað ofar á þessum lista. Það einkennir öll árin sem eru fyr- ir ofan árið 2015 á listanum að þau komu í kjölfar erfiðleikaára í ís- lensku efnahagslífi. Margir voru án atvinnu og leituðu tækifæra erlendis. Þess ber að geta að á tíu árum af þessum 55, á tímabilinu 1961-2015, voru aðfluttir íslenskir ríkisborgarar fleiri en brottfluttir, eða samtals 2.453 á þessum tíu árum. Það er um það bil fjöldi brottfluttra umfram að- flutta á kreppuárinu 2009. Brottflutningurinn „eðlileg sveifla“  Hagstofan greinir brottflutning íslenskra ríkisborgara  Brottflutningur fyrstu 3 ársfj. í ár einn sá mesti frá 1961 Heimild: Hagstofa Íslands. Úr nýrri skýrslu sem birt var í gær. Aðfluttir íslenskir ríkisborgarar umfram brottflutta -1.380 -1.167 -1.148 -1.637 -1.020 -2.466 -1.703 -1.311 Á tímabilinu 1961-2015 1.000 500 0 -500 -1.000 -1.500 -2.000 -2.500 1961 1966 1971 1976 1981 1991 20061986 20011996 2011 2015* *Fyrstu þrír ársfjórðungar. -1.130-1.038 Hæsta hlutfall brottfluttra umfram aðflutta íslenska ríkisborgara af mannfjöldanum árin 1961-2015* *Miðað við íbúafjöldann 1. janúar ár hvert. Heimild: Hagstofa Íslands. Útreikningar eru blaðsins. Ár % Ár % 1 2009 0,77% 7 1989 0,46% 2 1970 0,68% 8 1976 0,45% 3 1995 0,61% 9 2011 0,41% 4 2010 0,54% 10 1996 0,39% 5 1977 0,53% 11 2002 0,36% 6 1969 0,47% 12 2015 0,34% Hlutfall aðfluttra einstaklinga eftir aldri af heildarfjölda aðfluttra fyrstu 3 ársfjórðunga 1990-2015, íslenskir ríkisborgarar 0-4 5-9 10-14 20-24 30-34 40-44 50-54 60-6415-19 25-29 35-39 45-49 55-59 65-69 70-74 75-79 80-84 85+ 20 15 10 5 0 20152009-20142001-20081990-2000 Hlutfall brottfluttra einstaklinga eftir aldri af heildarfjölda brottfluttra fyrstu 3 ársfj. 1990-2015, íslenskir ríkisborgarar 0-4 5-9 10-14 20-24 30-34 40-44 50-54 60-6415-19 25-29 35-39 45-49 55-59 65-69 70-74 75-79 80-84 85+ 25 20 15 10 5 0 20152009-20142001-20081990-2000 Morgunblaðið/Ómar Reykjavík séð frá Höfðatorgi Búferlaflutningar hafa verið til umræðu. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Í umfjöllun Morgunblaðsins 11. nóv- ember um búferlaflutninga var haft eftir Ásgeiri Jónssyni, dósent í hag- fræði við Háskóla Íslands, að rann- sóknir bendi til að það sé einkum ungt fólk sem hleypi heimdrag- anum og leiti betri kjara er- lendis. „Ísland hefur lengið búið við mjög neikvæðan flutningsjöfnuð ungs fólks,“ segir Ásgeir og vísar til nýbirtra talna Hagstofunnar um aldursdreifingu búferlaflutninga. Greindi hann gögn sem Morgun- blaðið fékk afhent frá Hagstofunni í gær, en þau eru hluti nýrrar rann- sóknar Hagstofunnar. Óvenjuleg þróun á þessu ári „Ef litið er til síðustu samdráttar- skeiða í íslensku efnahagslífi þá hafa þau öll leitt til þess að ungt fólk hef- ur hleypt heimdraganum og leitað tækifæra annars staðar. Það sem er óvenjulegt er að við skulum sjá fjölg- un í hópi brottfluttra á sama tíma og það er uppsveifla í efnahagslífinu og mjög lítið atvinnuleysi. Að öðru leyti sýna tölur Hagstof- unnar að eðli búferlaflutninga er svipað og áður; það er ungt fólk sem er nú að flytja af landinu þrátt fyrir vaxandi hagsæld heima fyrir. Samhengið við hagsveifluna sést vel ef innlendur flutningsjöfnuður er skoðaður aftur í tímann og fólkinu er skipt í þrjá aldurshópa, þau sem eru á aldrinum 0-35 ára, 35-65 og síðan þau sem eru eldri en 65 ára,“ segir Ásgeirs og vísar til grafs sem er endurgert hér fyrir ofan. „Atvinnuástand hefur haft ráð- andi áhrif á búferlaflutninga til og frá landinu í gegnum tíðina og hefur hallinn einkum snúið að fólki yngra en 35 ára,“ segir Ásgeir. Unga fólkið er í meirihluta brottfluttra Íslendinga Búferlaflutningur íslenskra ríkisborgara Árin 1986-2015 eftir aldurshópum Heimild: Útreikningar Ásgeirs Jónssonar.  Dósent í hagfræði greinir búferlaflutninga síðan 1986 Ásgeir Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.