Morgunblaðið - 28.11.2015, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 28.11.2015, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 ingu og góða stjórnarhætti. Þeir sem eru ekki með innri end- urskoðanda voru spurðir hvort fyrir- tækið hygðist ráða slíkan og svöruðu 25% því játandi. Flestir svarenda, eða 41%, telja að eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits sé mikilvægasta hlutverk endurskoðunarnefnda. 24% telja eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila vera mikilvægast og 22% telja eftirlit með endurskoðun ársreiknings og samstæðureiknings mikilvægast. Fæstir, eða einungis 2%, sögðu að tillaga til stjórnar um val á endurskoðanda eða endurskoð- unarfyrirtæki væri mikilvægast. Flestir, eða 35%, segja að framlag þeirra í endurskoðunarnefnd felist í sérþekkingu á starfsemi einingar- innar. Færri nefna sérþekkingu á fjármálum, reikningsskilum, ytri endurskoðun eða lögum. 50% þeirra sem hafa verið til- nefndir í endurskoðunarnefnd sitja þar vegna þessa að þeir eru í stjórn fyrirtækisins. Könnun Deloitte byggist á svör- um 90 einstaklinga sem sitja í end- urskoðunarnefndum. Telja endurskoðunar- nefndir auka gagnsæi  Óvíst hvort þær auka traust, samkvæmt könnun Deloitte Endurskoðunarnefndir 72,73% 43,33% 23,86% 52,22% 3,41% 4,44% Já Nei Ekki viss 80 70 60 50 40 30 20 10 0 Telur þú að með tilkomu endurskoðunarnefnda þá aukist gagnsæi í reikningsskilum, fjármálum og endurskoðun viðkomandi fyrirtækja, stofnana og sjóða? Telur þú að með tilkomu endurskoðunarnefnda hafi traust á fjármálamarkaði aukist meðal fjárfesta og almennings? % Heimild: Deloitte ? ? BAKSVIÐ Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is Flestir eða 73% þeirra sem sitja í endurskoðunarnefndum telja að með tilkomu slíkra nefnda hafi auk- ist gagnsæi í reikningsskilum, fjár- málum og endurskoðun. Þetta kem- ur fram í nýrri könnun sem Deloitte framkvæmdi meðal þeirra sem sitja í endurskoðunarnefndum. Meirihluti svarenda, eða 52%, er ekki viss þeg- ar spurt er hvort tilkoma endur- skoðunarnefnda hafi aukið traust á fjármálamarkaði meðal fjárfesta og almennings. 43% svöruðu spurning- unni játandi og 4% neitandi. Í lögum um ársreikninga er kveð- ið á um að stjórn skipi endurskoð- unarnefnd hjá þeim fyrirtækjum sem tengjast almannahagsmunum. Þar á meðal eru fyrirtæki á verð- bréfamarkaði, lífeyrissjóðir, lána- stofnanir og vátryggingafélög. End- urskoðunarnefndir eru eftirlitsnefndir og ætlað að tryggja gæði ársreikninga og annarra fjár- málaupplýsinga. Innra eftirlit bætir stöðuna Í niðurstöðunum kemur einnig fram að 72% fyrirtækjanna eru með innri endurskoðun og tæplega 80% þeirra telja að innri endurskoðunin hafi bætt innra eftirlit, áhættustýr- lánum, umfram nýjar lántökur, um 129 milljörðum á síðustu sjö árum. Þrátt fyrir það hafi skuldsetning fyrirtækjanna aukist á síðasta ári og segir bankinn að það bendi til þess að þau fjármagni sig í auknum mæli með skammtímalánum. Samhliða bættri skuldastöðu í sjávarútvegi hefur geta fyrirtækj- anna til nýfjárfestinga aukist. Á ár- unum eftir bankaáfallið hafi fjár- festing verið lítil en að það sé nú að breytast. Þannig hafi fjárfestingar sem hlutfall af EBITDA verið 44% á árinu 2014 og aukningin, sé miðað við það hlutfall, hafi aukist um 26 prósentustig frá fyrra ári. Í fyrra nam fjárfesting sjávar- útvegsfyrirtækja 27 milljörðum króna og var það aukning um 145% frá fyrra ári. Til samanburðar nefnir Íslandsbanki að meðalfjár- festing í greininni hafi síðastliðinn áratug verið um 8 milljarðar á hverju ári. Skuldastaða fyrirtækja í sjávar- útvegi hefur batnað á síðustu árum eftir að hafa náð hámarki 2009. Það ár fóru skuldir útgerðarinnar í 494 milljarða króna. Í lok síðasta árs voru þær komnar niður í 363 millj- arða króna en höfðu þó vaxið frá árinu 2013 þegar þær stóðu í 341 milljarði króna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka um ís- lenskan sjávarútveg. Í skýrslunni segir að þegar fjár- mögnunarhreyfingar sjávarútvegs- félaga eru skoðaðar, sjáist að batn- andi afkoma þeirra hafi gert þeim kleift að greiða niður langtíma- skuldir. Þannig nemi afborganir af Skuldastaða sjávarútvegsins fer batnandi  Greitt niður 129 milljarða á 7 árum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sjávarútvegur Skammtímafjármögnun eykst en langtímaskuldir lækka. ● Niðurfelling tolla á fatnaði og skóm er meðal þess sem gæti haft áhrif á að halda aftur af verðbólgu til skamms tíma litið. Það er mat Landsbankans sem seg- ir að það muni þó ekki gerast nema lækkunaráhrifin af tollabreytingunum skili sér að fullu til neytenda. Hagfræði- deild bankans gerir ráð fyrir því að verð- bólgan verði að jafnaði nálægt 2,5% fram á mitt næsta ár. Þó segir hún að miklar launahækkanir í tengslum við kjarasamninga ársins muni óhjákvæmi- lega valda aukinni verðbólgu, jafnvel þó gert sé ráð fyrir áframhaldandi lágu verði á olíu og annarri hrávöru. Þá muni krón- an einnig styrkjast nokkuð en að það, ásamt öðrum erlendum áhrifum muni ekki duga til að halda aftur af áhrifum launahækkana. Bankinn segir margt benda til að fram til ársloka 2018 muni launakostnaður allra hópa hafa hækkað um 32% frá árslokum 2013. Verðbólguhorfur til skamms tíma góðar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leggur til að tekjuskattshlutfall verði lækk- að hér á landi og persónuafsláttur verði hækkaður. Á móti leggur AGS til að vaxtabætur verði felldar niður í áföngum og að barnabótakerfið verði einfaldað og bótum beint í rík- ari mæli að lágtekjuheimilum. Tillögurnar eru settar fram í út- tekt sem sérfræðingar Aþjóðagjald- eyrissjóðsins hafa gert á tekjuskatt- lagningu einstaklinga og barna- og vaxtabótakerfunum hér á landi, að beiðni fjármála- og efnahags- ráðherra. Skýrslan er birt á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins en hún er liður í vinnu við að einfalda íslenska skattkerfið. Í tilkynningu ráðuneyt- isins segir að hugmyndir sérfræð- inga AGS um mögulegar breytingar tekjuskatts- og bótakerfanna séu nokkuð róttækar miðað við gildandi kerfi. Sérfræðingar AGS mæla með því að persónuafsláttur verði hækkaður og greiddur út til þeirra sem náð hafa 18 ára aldri, nýtist hann ekki að fullu á móti álögðum skatti. Þá verði ein föst fjárhæð barnabóta reiknuð fyrir hvert barn undir 18 ára aldri, óháð fjölskyldugerð, en skerðingarhlutfall barnabóta verði eitt og hækki töluvert frá því sem nú er AGS legg- ur til lægri tekjuskatt  Persónuafsláttur verði hækkaður Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á                                     ! !!  "" "#   !"! !!$ $ $ %&'() '*'     +,%-%*./ ,&*'0'12% 34*'1.4 5  " " !5! "" "5$ ! 5 $ !5# $# #  5 "$ !!! "5 "! !5" !# ! $""  $$# ● Það eru vonbrigði að engin áform séu um að lækka tryggingagjaldið árið 2016 þrátt fyrir að atvinnuleysi sé hverfandi, segir í fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins. Atvinnuleysi hefur verið 3% síðustu 12 mánuði en trygginga- gjaldið er svipað og þegar atvinnuleysi var 8-9% á árunum 2009-2010. SA segir að árlegt gjald sé um 20-25 millj- örðum króna hærra en það ætti að vera miðað við stöðuna á vinnumarkaði. SA fyrir vonbrigðum með óbreytt tryggingagjald ● Arion banki hefur lokið útboði á tveimur útistandandi flokkum sér- tryggðra skuldabréfa. Heildareftirspurn í útboðinu var 3,26 milljarðar króna. Tveir flokkar voru stækkaðir, annar um 500 milljónir króna með ávöxtunarkröf- unni 3,1% og hinn um 1,2 milljarða króna með 3,08%. Arion lýkur útboði á sér- tryggðum skuldabréfum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.