Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 Brandur Fasteignasali 897 1401 Haukanes Borg fasteignasala 519-5500 kynnir til sölu einstaka eign á Arnarnesi í Garðabæ. Um er að ræða lóð þar sem framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 660 fermetra einbýilishúsi á sjávarlóð við Haukanes í Garðabæ. Lóðin er 1.467 fermetra eignarlóð með einstöku útsýni til sjávar. Óhætt er að fullyrða að þetta er ein allra fallegasta lóð höfuðborgarsvæðisins. Búið er að teikna 660 fermetra hús á tveimur hæðum með bílskúr. Pálmar Kristmundsson arkitekt hannaði og teiknaði húsið sem telst fullhannað en þó eru miklir möguleikar varðandi endalegar útfærslur í herbergjaskipan og nýtingu einstakra rýma Einstakt tækifæri fyrir fjölskyldu að sérhanna hús fyrir sig. Nánari upplýsingar og teikningar veitir. Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu 897-1401 eða brandur@fastborg.is Fólk á fjarlægum slóðum flýr nú heim- kynni sín vegna óbæri- legs stríðsástands heima fyrir. Flóttafólk- ið, einstaklingar og fjöl- skyldur með börn, legg- ur á sig langt og stórhættulegt ferðalag til að freista þess að komast þangað sem hugsanlega má byrja nýtt og betra líf. Aleigan rúmast í ein- um plastburðarpoka. Bátar úti á rúmsjó yfirfullir af flóttafólki, lík í köldum sjó, margra kílómetra langar raðir gangandi fólks, illt ástand í flóttamannabúðum, matarskortur, óöryggi, skelfing og hræðsla. Við fáum agnarsmáa nasasjón af erf- iðleikum flóttafólksins í gegnum fjöl- miðla en getum samt á engan hátt skilið líðan þess og angist til fulls. Fjórir hópar fólks í leit að betra lífi Nú á næstu vikum eða mánuðum er hér von á hópi flóttafólks sem hef- ur verið á slíkum hrakningum. Hér í Reykjavík verður þá því um að ræða þrjá hópa fólks sem óska eftir að fá hér skjól og möguleika á að hefja hér nýtt og betra líf, þ.e. kvótaflóttafólk, hælisleitendur og flóttafólk. Í raun er einnig fjórði hópurinn, „útlendingar í neyð“, efnalítið erlent fólk sem er bú- sett hér á landi og þarf að treysta á t.d. matargjafir og ýmsa þjónustu eða fyrirgreiðslu frá Reykjavíkurborg. Hvernig hlúum við að þessu fólki og búum því möguleika til betra lífs? Þetta er allt svo nýtt fyrir okkur hér á Íslandi að við höf- um vafalítið mörg átt það til að rugla saman hugtökum og skilgrein- ingum. Kvótaflóttamaður er einstaklingur sem hefur flúið upprunaríki sitt og fengið viðurkenningu á stöðu sinni sem flótta- maður hjá Flótta- mannastofnun Samein- uðu þjóðanna í öðru ríki en fær svo boð frá t.d. stjórnvöldum á Íslandi um að koma hingað til lands. Ríkið hefur styrkt þjónustuna í um eitt ár en reynslan sýnir að þörf er á að lengja ríkisstyrkinn talsvert. Einstaklingar og fjölskyldur sem koma til Íslands í leit sinni að al- þjóðlegri vernd hafa hingað til verið nefndir hælisleitendur. Oft verða eig- inkonur og börn eftir í heimalandinu en ef eiginmaðurinn er samþykktur hér sem flóttamaður getur hann sótt um að sameinast fjölskyldunni, þ.e. að fá eiginkonu og börn sín hingað til lands. Ef fólkið fær stöðu flótta- manna fellur fjárstuðningurinn frá ríkinu niður og þar með flyst allur kostnaður vegna nauðsynlegrar þjón- ustu á Reykjavíkurborg. Ef umsókn er synjað er venjan að senda fólkið úr landi, sem er afar erf- itt og tilfinningalega viðkvæmt mál. Það er ekki hvað síst erfitt fyrir börn- in sem hafa þá fengið inni í leikskóla eða grunnskóla og eru jafnvel rétt að- eins að aðlagast eftir nokkurra mán- aða dvöl á Íslandi. Flóttamannabörnin En hvað með börnin sem koma brátt til landsins úr hópi þeirra flótta- manna sem hafa flúið stríðshrjáðu svæðin, börnin sem koma hingað mögulega eftir margra ára dvöl við erfiðar, jafnvel hrikalegar aðstæður í flóttamannabúðum, börn sem hafa þrátt fyrir ungan aldur upplifað hræðilegri hörmungar en okkur get- ur órað fyrir? Hvernig ætlum við að taka á móti þessum börnum og fjöl- skyldum þeirra? Höfum við þekk- inguna og nauðsynlega sérfræðiað- stoð? Hvernig ætlum við hér í Reykjavík að auðvelda þeim að aðlag- ast „eðlilegu“ lífi, hjálpa þeim til að ná andlegu og líkamlegu jafnvægi, hjálpa þeim til smám saman að blómstra sem einstaklingar, veita þeim mannvirðingu og jafnrétti, byggja upp sjálfstraust þeirra, að- stoða þau til mennta í íslensku menn- ingarsamfélagi? Erum við tilbúin til þess? Þann 14. október sl. lögðu Fram- sókn og flugvallarvinir fram ítarlegar fyrirspurnir í skóla- og frístundaráði um þjónustu Reykjavíkurborgar við börn kvótaflóttafólks, hælisleitenda og flóttafólks og kom þá í ljós að gríð- arlega umfangsmikil undirbúnings- vinna er enn óunnin áður en við get- um með sanni sagt að við séum með allt tilbúið til að taka á móti hópum barna flóttafólks sem er að koma hingað eftir miklar hörmungar og hrakninga. Nokkuð hefur borið á háværum röddum í ýmsum fjölmiðlum þar sem bæði einstaklingar og hópar hafa hrópað hátt um að við Íslendingar ættum nú þegar að bjóða hingað til okkar talsverðum fjölda flóttafólks. Þó margir vilji rétta hjálparhönd og aðstoða fólkið eftir því sem þeir best geta, þá verðum við að vanda hér mjög til verka því þjónustan sem hér verður þörf á er ekki á hvers manns færi. Vissulega þurfum við hér á landi að leggja okkar af mörkum, gera það sem við getum til að auðvelda flótta- fólki lífið og tilveruna – en hvað höf- um við aðstæður til að hjálpa mörg- um nú í ár og á t.d. næsta ári? Ég ætla að biðjast undan því að fá nú þann stimpil á mig að ég sé að setja verðmiða á fólk – það er ekki tilgang- urinn. Hér er tilgangurinn að við ger- um okkur grein fyrir þeim kostnaði sem mun óhjákvæmilega fylgja bráð- nauðsynlegum þjónustuúrræðunum og að við leitum þá þeirra leiða sem til þarf til að finna tekjuliði sem má nýta til að greiða þann kostnað áður en farið er af stað. Við verðum að gera ráðstafanir til að þjónustan verði til staðar, að mörgu er að hyggja og því brýnt að allir hlutaðeigandi aðilar sameinist í samheldni og samstöðu um vandaða og vel ígrundaða mót- töku, umönnun og þjónustu. Flýtum okkur hægt, vöndum til verka. Móttaka erlendra flóttamanna, þjónusta við börn þeirra Eftir Jónu Björg Sætran »Mikil undirbúnings- vinna, varðandi þjónustu við börn flótta- manna, er óunnin. Jóna Björg Sætran Höfundur er varaborgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Lögfræðistofan vann Lögfræðistofa Íslands vann 1. deild deildakeppninnar en sveitin sigraði sveit Grant Thornton í úr- slitaleik 167-93. Þrír frakkar unnu 2. deildina með 96,76 stigum en í 2. sæti varð sveit Frímanns Stefánssonar með 89,26. Í 3. sæti varð sveit JE Skjanna með 87,68. Þessar þrjár sveitir færast upp í 1. deild að ári. Íslandsmót í parasveitakeppni Næsta mót hjá Bridssambandinu er Íslandsmótið í parasveitakeppni, en það mót fer fram 5.-6. desember. Hægt er að skrá sig á bridge- @bridge.is og í s. 587 9360 en skráningu lýkur á hádegi 4. des- ember. Spilagjaldið er 18.000 fyrir sveitina. Íslandsmeistarar fyrra árs eru sveit SVANNA-GK. Þá loksins gekk rófan – Góð mæting á Suðurnesjum Fjögurra kvölda Butler-tvímenn- ingur hófst sl. miðvikudag og var mæting vonum framar eða 12 pör. Þeirra á meðal voru feðgarnir úr Grindavík, Guðjón Einarsson og Ingvar Guðjónsson. Heiðursfélagi Munins, Karl Ein- arsson, mætti til leiks með ungan mann, Ara Gylfason, og gerðu þeir sér lítið fyrir og verma efsta sætið með 39 impa ásamt Gunnlaugi Sæv- arssyni og Arnóri Ragnarssyni. Garðar Garðarsson og Óli Þór Kjartansson eru þriðju með 30 og Guðjón Svavar Jensen og Svala Páls- dóttir fjórðu með 15. Byrjað verður að spila stundvís- lega kl. 19 nk. miðvikudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.