Morgunblaðið - 28.11.2015, Page 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015
✝ GuðmundurGuðmundsson
fæddist í Hnífsdal
11. apríl 1916, og
ólst þar upp. Hann
lést á Landspít-
alanum 13. nóv-
ember 2015.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Stefán Guðmunds-
son formaður í
Hnífsdal, f. 7.12.
1877, d. 22.2. 1936, og Jóna Sal-
ómonsdóttir húsmóðir, f. 5.5.
1885, d. 22.11. 1952. Þegar faðir
hans lést kom í hlut Guðmundar
að sjá fyrir móður sinni og yngri
bróður, tvítugur að aldri.
Systkini: Þorgeir, f. 4.7. 1904,
d. 12.12. 1924, Ingibjörg, f.
27.10. 1912, d. 7.8. 2009, og
Marías Þórarinn, f. 13.4. 1922, d.
17.3. 2010.
Eiginkona Guðmundar var
Guðrún Jónsdóttir húsmóðir,
fædd á Langeyri í Álftafirði
12.12. 1916, d. 15.11. 1981. Þau
gengu í hjónaband 1942. For-
eldrar Guðrúnar voru Jón
Bjarnason trésmiður, f. 2.1.
1881, d. 3.6. 1929, og Daníela
Jóna Samúelsdóttir húsmóðir, f.
17.9. 1888, d. 17.6. 1940. Fóstur-
foreldrar Guðrúnar: Ólafur
Andrésson húsasmiður, f. 27.8.
ar Hafdísi ÍS. Guðmundur var
hafnsögumaður á Ísafirði um
árabil.
Árið 1954 sneri hann sér að
útgerð og fiskvinnslu og stofn-
aði síðan Hrönn hf. ásamt Ás-
geiri Guðbjartssyni skipstjóra
og fleirum. Guðmundur var
lengi í forsvari fyrir útgerð
Guðbjargar ÍS en Hrönn hf.
gerði út mörg skip með þessu
nafni. Guðmundur starfaði við
útgerðina fram á níræðisaldur.
Hann var formaður Útvegs-
mannafélags Vestfjarða 1963-87
og í stjórn Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna um langt
árabil. Hann var lengi stjórn-
armaður í Kaupfélagi Ísfirð-
inga, Íshúsfélagi Ísfirðinga hf.,
Olíusamlagi útvegsmanna og
Vélbátaábyrgðarfélagi Ísfirð-
inga.
Guðmundur var áhugamaður
um menningar-, atvinnu- og
stjórnmálasögu og lét til sín
taka í tónlistarlífi Ísafjarðar.
Hann starfaði mikið að slysa-
vörnum og björgunarmálum. Í
áratugi var hann formaður
karladeildar SVFÍ á Ísafirði.
Hann tók virkan þátt í starfi Frí-
múrarareglunnar á Ísafirði og í
Reykjavík í hartnær 60 ár.
Viðurkenningar: Heiðursfé-
lagi Sjómannafélags Ísfirðinga.
Heiðursfélagi SVFÍ. Heiðurs-
merki Frímúrarareglunnar.
Riddarakross Hinnar íslensku
fálkaorðu.
Útför Guðmundar fer fram
frá Ísafjarðarkirkju í dag, 28.
nóvember, klukkan 14.
1891, d. 6.8. 1968,
og Margrét Þór-
arinsdóttir hús-
móðir, f. 7.8. 1888,
d. 16.10. 1971.
Guðmundur var
síðar í sambúð með
Margréti Helgu
Gísladóttur frá
Höfn í Hornafirði,
f. 3.4. 1924, d. 28.6.
2009. Dætur Guð-
mundar og Guðrún-
ar eru: 1) Bryndís, f. 22.6. 1943,
maki Kristján Ólafsson. Þau
skildu. Þeirra synir Ólafur
Helgi, f. 1968, og Hrafnkell, f.
1975, d. 2009. 2) Jóna Margrét,
f. 12.7. 1945, maki Valdimar
Óskar Jónsson, d. 2008. Þeirra
börn eru Guðmundur Stefán, f.
1966, Ragnheiður, f. 1967, Katr-
ín, f. 1970, d. 1970, Davíð Þór, f.
1973, og Margrét f. 1974. 3)
Ingibjörg, f. 3.7. 1950, maki
Snorri Sigurjónsson. Barna-
barnabörnin eru sautján.
Ævistarf Guðmundar var
bundið sjósókn og útgerð. Hann
fór ungur til náms í Héraðsskól-
ann á Laugarvatni.Vélstjóra-
réttinda aflaði hann sér á Ísa-
firði og skipstjórnarréttinda frá
Sjómannaskólanum í Reykjavík.
Kornungur varð hann skip-
stjóri, fyrst á Bryndísi ÍS og síð-
Mikill höfðingi er fallinn frá.
Hann ætlaði að verða 100 ára, en
líkaminn gaf sig þegar fimm mán-
uði vantaði í það markmið. Hann
hafði alla tíð verið stórhuga og
kom mörgu góðu í verk á langri
ævi.
Þegar ég hitti tengdaföður
minn fyrst óraði mig ekki fyrir því
að við ættum eftir að verða sam-
ferðamenn næstu 30 árin. Kynni
mín af Guðmundi Guðmundssyni
voru mér sem öðrum einstök.
Hann var lágvaxinn, en samt svo
stór, rómsterkur og ákveðinn. Ég
fékk strax á tilfinninguna að það
væri hann sem hélt um stjórnvöl-
inn, en um leið fann ég hlýjuna
sem frá honum streymdi. Þetta
var á heimili hans í Silfurgötu 7 á
Ísafirði, húsi sem hann keypti ung-
ur með eiginkonu sinni Guðrúnu
Jónsdóttur. Þetta hús varð svo
heimili hans í 60 ár. Þar fæddust
og ólust upp dætur þeirra, Bryn-
dís, Jóna Margrét og Ingibjörg,
sem voru honum mjög kærar.
Segja má að á Ísafirði hafi Guð-
mundur verið allt í öllu. Meðfram
sjómennsku og umfangsmiklum
atvinnurekstri var hann stjórnar-
maður í mörgum félögum, oftast
formaður. Hann lét sér hag ein-
staklinga og félaga miklu varða,
vann mikið sjálfboðastarf, alltaf
ósérhlífinn og gaf mikið af sér í
þágu samfélagsins. Hann var bak-
hjarl margra og fólk treysti á
hann. Því trausti brást hann aldrei
og alltaf var það hans einlæga ósk
að allir gengju sáttir frá borði.
Þessum heiðarlega manni var
ýmis sómi sýndur og sem dæmi má
nefna að bækistöðvar Björgunar-
félags Ísafjarðar voru nefndar eft-
ir honum og kallast Guðmundar-
búð. Þar inni er Guðrúnarstofa
nefnd eftir eiginkonu hans, en þau
unnu lengi saman að slysavarna-
og björgunarmálum á Ísafirði. Því
miður fékk ég aldrei að hitta Guð-
rúnu, þá merku konu. Hún lést
nokkrum árum fyrir samfundi
okkar Guðmundar.
Nú hef ég kynnst mörgum sem
hafa verið Guðmundi samferða um
ævina. Allir bera þeir til hans mik-
inn hlýhug. Sérstaklega eru mér
hugstæðir þeir fallegu straumar
sem lágu á milli þeirra Ásgeirs
Guðbjartssonar skipstjóra og Guð-
mundar. Greinilegt var að þar ríkti
gagnkvæm virðing og traust.
Barnabörn og barnabarnabörn
Guðmundar voru honum afar
hjartfólgin og hið sama gilti um af-
komendur Margrétar H. Gísla-
dóttur, sem hann var samvistum
við á efri árum.
Að tengdaföður mínum látnum
er mér efst í huga sú góðvild sem
einkenndi hann og vænst þykir
mér um það trúnaðartraust sem
hann sýndi mér síðustu árin því
hann var ekki vanur að bera eigin
tilfinningar eða áhyggjur á torg.
Honum var þá sem jafnan mikið í
mun að réttlæti næði fram og allir
færu sáttir frá borði. Hann var enn
við stjórnvölinn daginn fyrir and-
látið og sagði þá meðal annars eftir
stutta tölu: „Orðið er laust.“
Far þú í friði, kæri vinur, og
þökk fyrir „þá dýrstu gjöf sem gef-
in verður “ þína yngstu dóttur.
Snorri Sigurjónsson.
Afi Guðmundur er dáinn.
Ég vissi nú alveg að það kæmi
að því einn daginn. Hann var orð-
inn 99 og hálfs árs gamall sem telst
nú bara nokkuð gott.
Mér fannst afi alltaf vera merki-
legur maður, hann vissi svo ótrú-
lega margt og hafði reynt ýmis-
legt. Hann átti ljómandi góða
útgerð ásamt fleirum og þeir áttu
eitt aflahæsta skip landsins til ein-
hverra ára. Ég varð nú pínu mont-
in með hann afa minn þá og fannst
hann ennþá merkilegri fyrir vikið.
Mínar minningar að vestan eru
flestar úr Silfurgötu 7 og neðan úr
dokku þar sem við Davíð Þór bróð-
ir sátum og dorguðum og veiddum
marhnúta. Netið með kröbbunum
og siglingadótinu í forstofunni sit-
ur fast í minni, bratti stiginn með
kaðlinum fyrir handrið, sem haldið
var í þegar maður renndi sér nið-
ur, og uppstigið á klósettið. Það
var eins og setjast í hásæti og svo
var togað í band til að sturta niður.
Fyrir vikið var sérstaklega
skemmtilegt að sturta þar niður.
Svo voru það auðvitað kjallara-
tröppurnar úr eldhúsinu, stór-
hættulegar, frekar sleipar og orðn-
ar mjög eyddar. Að fara niður í
kjallara var eins og að fara inn í
ævintýraheim. Þar var hægt að
gramsa í allskonar kjallaradóti og
gleyma sér. Harðfiskur var alltaf
til í frystikistunni og var hann
óspart nagaður, helst óbarinn.
Ég átti margar góðar stundir
með afa í Gullsmára eftir að hann
flutti suður. Ég bjó í blokkinni fyr-
ir ofan hans og tók hann stundum
með mér í sund. Þá fórum við í Ár-
bæjarlaug, syntum nokkrar ferðir
og spjölluðum. Ég kíkti svo endr-
um og sinnum yfir til hans og stillti
fjarstýringar og sjónvarpið sem
áttu það til að „hætta að virka“.
Síðustu vetur höfum við fjöl-
skyldan farið að minnsta kosti einu
sinni í viku til afa, eldað mat og átt
góða kvöldstund saman. Þessar
heimsóknir hafa gefið mínum
börnum mikið og þau fengið að
kynnast langafa sínum betur. Þau
kynntust honum svo enn betur
þegar við vorum hjá honum í
Sunnuhlíð í nokkur skipti.
Þar vildi afi helst vera.
Komið er að kveðjustund og er-
um við fjölskyldan þakklát fyrir
allar þær stundir sem við höfum
fengið með afa.
Takk fyrir allt og allt, elskuleg-
ur.
Nú húmi slær á hópinn þinn,
nú hljóðnar allur dalurinn
og það, sem greri á þinni leið
um því nær heillar aldar skeið.
Vor héraðsprýði horfin er:
öll heiðríkjan, sem fylgdi þér.
Og allt er grárra en áður var
og opnar vakir hér og þar.
Þér kær var þessi bændabyggð,
þú bast við hana ævitryggð.
Til árs og friðar – ekki í stríð –
á undan gekkstu í háa tíð.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
En styrrinn aldrei stóð um þig,
– hver stormur varð að lægja sig,
er sólskin þinnar sálar skein
á satt og rétt í hverri grein.
Loks beygði þreytan þína dáð,
hið þýða fjör og augnaráð;
sú þraut var hörð – en hljóður nú
í hinsta draumi brosir þú.
Svo hvíl þig, vinur, hvíld er góð,
– vor hjörtu blessa þína slóð
(Jóhannes úr Kötlum.)
Margrét, Ormar, Íris Birta
og Egill Orri.
„Ég bið að heilsa honum,“ voru
síðustu orðin sem ég heyrði Guð-
mund segja þegar hann fór inn í
bílinn hjá Ingibjörgu og Snorra
áleiðis á flugvöllinn í byrjun nóv-
ember. Leiðin lá til Reykjavíkur,
hugmyndin var að skreppa til
læknis og koma síðan aftur heim á
Ísafjörð. Heim í faðm fjalla blárra.
Þetta var svo sem ekki óalgeng
kveðja hjá honum, því hann þekkti
marga. Sá sem kveðjan var til í
þetta sinn er nú reyndar ekki
nema þriggja mánaða gamall,
nærri öld yngri en sá sem kveðj-
una sendi.
Þegar litið er til baka er eins og
Guðmundur hafi alltaf verið hluti
af fjölskyldu minni. Ég man
reyndar vel eftir því þegar ég hitti
hann fyrst en það var austur á
Hornafirði þegar hann og Margrét
móðursystir mín komu í heimsókn
fyrir margt löngu. Þetta er reynd-
ar ekki skrýtin tilfinning því Guð-
mundur var einstakur maður. Það
er ekki oft að maður kynnist fólki
sem lætur sér fyrst og fremst annt
um aðra og vinnur að því leynt og
ljóst að bæta hag samferðafólks-
ins. Þetta gerði Guðmundur með
myndarlegum hætti, hann og sam-
starfsmennirnir í Hrönn hf. gerðu
út eitt þekktasta aflaskip landsins
og tengslin voru mikil við atvinnu-
lífið og framfarirnar miklar. Hag-
ur samfélagsins var borinn fyrir
brjósti og því urðu vonbrigðin mik-
il þegar Guðbjörgin kom ekki
framar til Ísafjarðar eftir samein-
ingu Hrannar við Samherja. Þegar
maður leggur allt sitt í samfélagið
þá stendur viljinn til þess að það
njóti áfram um ókomna tíð. Hins
vegar þá voru sigrarnir og fram-
farirnar ætíð ofar í huga Guð-
mundar en mótlætið en af því fékk
hann sinn skammt. Gott dæmi um
áhugann á framförum er þegar
Bolungarvíkurgöngin voru vígð
2010, þá mætti hann sérstaklega
vestur úr Kópavogi til að fagna
þessum merkilega áfanga. Hann
átti ófá sporin sem barn um Ós-
hlíðina frá Hnífsdal til Bolungar-
víkur til að heimsækja ömmu sína.
Nú er kær vinur farinn í sína
hinstu ferð og skarð er fyrir skildi.
Heyr, himna smiður,
hvers skáldið biður,
komi mjúk til mín
miskunnin þín.
Því heit eg á þig,
þú hefur skaptan mig,
ég er þrællinn þinn,
þú ert Drottinn minn.
(Kolbeinn Tumason.)
Minningin um mætan mann lifir
áfram. Ég vil þakka fyrir þann
tíma sem gefinn var fyrir mína
hönd og fjölskyldu minnar. Elsku
Ingibjörg, Jóna Margrét, Bryndís
og aðrir aðstandendur við sendum
ykkur hugheilar kveðjur með
kæru þakklæti fyrir vináttuna og
liðin ár.
Þröstur, Guðrún, Heba Dís
og Birta Rós.
Það gekk maður inn í garðinn
okkar í skóginum og studdist við
tvo stafi. Þegar hann kom nær
húsinu kallaði hann hárri röddu:
„Er nokkur heima?“ Þetta var
rödd skipstjóra sem vanur var að
láta til sín heyra og þetta var vinur
okkar hann Guðmundur að koma
úr sinni daglegu morgungöngu um
skóginn. Þegar Guðmundur keypti
Sunnuhlíð, næsta bústað við okk-
ar, vissum við auðvitað hver hann
var, skipstjóri og útgerðarmaður
og maðurinn hennar Gunnu
frænku, systur Ella á Bjargi, en
við vissum ekki hvern mann hann
hafði að geyma, það koma ekki
fyrr en seinna. Hann var þá orðinn
ekkill en í sambúð með konu frá
Höfn, Margréti Gísladóttur. Það
myndaðist strax góður vinskapur
milli okkar. Guðmundur og Mar-
grét voru afskaplega gestrisin,
höfðu gaman af að veita vel og
segja skemmtilega frá. Margrét
var ættuð frá Breiðdalsvík en hafði
búið í Höfn allan sinn búskap, var
orðin ekkja þegar þau Guðmundur
kynntust og átti uppkomin börn.
Margrét var kát og skemmtileg og
fóru þau Guðmundur margar ferð-
ir saman innanlands og utan. Aldr-
ei fundum við fyrir aldursmun þó
milli okkar væri á þriðja tug ára.
Guðmundur fæddist í Hnífsdal
en keypti Silfurgötu 7 snemma á
búskaparárum sínum og Guðrún-
ar, þar ólust dæturnar þrjár upp
og var hann orðinn roskinn maður
þegar flutt var í Kópavoginn. Guð-
mundur var félagslyndur og vildi
láta til sín taka, gera það sem gagn
var að, enda klár og skynsamur.
Hann hafði gaman af tónlist og
söng með Karlakórnum og Sunnu-
kórnum þar sem heyrðist í djúp-
um, fallegum bassanum fyrir aftan
altina. Tónlistarfélagið naut líka
krafta hans. Að verða 99 ára gam-
all, halda fullu minni og athygli er
mikil gjöf fyrir ættingja hans og
samferðarmenn. Dætur hans hafa
svo sannarlega kunnað að meta
það og hugsað vel og fallega um
hann síðustu árin. Á hverju vori
eftir að hann flutti suður komu þau
Margrét í skóginn með farfuglun-
um og fóru ekki aftur fyrr en líða
tók á haustið. Eftir að Margrét féll
frá komu dæturnar og barnabörn-
in með honum svo hann fengi að
njóta síðustu áranna í Tungudaln-
um sem hann bast svo sterkum
böndum. Samveru okkar í skógin-
um er lokið og við sjáum hann
ganga út úr garðinum umvafinn
grænum, fallegum gróðri, fuglarn-
ir, vinir hans, fylgja honum á leið
og gott ef mýslan trítlar ekki á eft-
ir. Genginn er góður maður, vinur
og frændi. Innilegar samúðar-
kveðjur til Ingibjargar, Jónu
Möggu, Bryndísar og Snorra og
allrar fjölskyldunnar frá okkur í
Kornuá. Blessuð sé minning Guð-
mundar Guðmundssonar í Sunnu-
hlíð.
Bára Einarsdóttir.
Sl. mánudag kvöddum við góð-
an vin við minningarathöfn í Nes-
kirkju, Reykjavík. Kæran fjöl-
skylduvin, Guðmund
Guðmundsson frá Ísafirði. Hann
var 99 ára og var fyrir stuttu búinn
að panta sér sal fyrir 100 ára af-
mælisveisluna í apríl á næsta ári!
Sl. sumar sátum við með Guð-
mundi og fólkinu hans í sólstofunni
í Sunnuhlíð, sumarbústaðnum í
Tunguskógi, fengum kaffi og
spjölluðum. Guðmundur með allt á
hreinu. Það var sama hvort við
ræddum fuglalífið í Skóginum, at-
vinnulífið á Ísafirði eða Króknum,
landsmálin eða barnabörnin.
Í upphafi fjórða áratugarins
hófu foreldrar mínir, Bíbí og Her-
mann, og stuttu síðar Gunna og
Guðmundur, búskap á sitt hvorri
hæðinni á Silfurgötu 7, Ísafirði.
Varð það upphafið að yfir 70 ára
vináttu. Eins og algengt var á
þessum árum deildu fjölskyldur
hlutum íbúðarhúsnæðis og allt
gekk þetta upp í einingu og ves-
enislaust. Svo skemmtilega hagaði
til að tvær elstu systurnar í hvorri
fjölskyldu fæddust sömu árin, en
við Ingibjörg, örverpin, komum
síðastar á sitt hvoru árinu. Þar fyr-
ir utan eignuðust foreldrar mínir
þrjá stráka og eru skondnar sögur
til af samskiptum þeirra og Guð-
mundar. Lífið í Silfurgötunni var
gott. Í sumar náðum við systurnar
sex að láta mynda okkur með Guð-
mundi fyrir framan Silfurgötuna.
Það eru uppáhaldsmyndir.
Mér var ljóst að Guðmundur
var mikilhæfur skipstjóri, útgerð-
armaður og virkur í bæjar-, stjórn-
mála- og félagslífi Ísafjarðarbæj-
ar. Ég undraðist þó hversu miklu
hann hafði áorkað í störfum sínum
þegar Örn Bárður rakti ævistörf
hans í minningarorðum sínum.
Það kom að því að foreldrar
mínir þurftu að stækka við sig og
flytja um set en áfram bjuggu
Gunna og Guðmundur í Silfurgöt-
unni. Alltaf héldust þó vinaböndin.
Hún Gunna hans Guðmundar var
mikilhæf og flott kona, rak útgerð-
ina heima í stofu með honum Guð-
mundi sínum, tók þátt í fé-
lagsstörfum og sinnti kennslu
meðfram húsmóðurstörfum. Hún
lést langt um aldur fram og varð
Guðmundur aldrei samur eftir
það.
Ári1992 eignaðist Guðmundur
bústaðinn Sunnuhlíð í Tunguskógi.
Foreldrar mínir höfðu átt sum-
arbústað í Skóginum frá árinu
1944. Hófst þá nýr kafli í lífi Guð-
mundar og samskipti hans og fjöl-
skyldna okkar jukust á ný. Það var
skemmtilegt. Dagleg samskipti
tekin upp að nýju. Guðmundur var
einna fyrstur til að reisa sér nýjan
bústað eftir snjóflóðið 1994. Öll
sumur höfum við farið með krakk-
ana okkar til ömmu og afa í Skóg-
inum. Einstök vinátta tókst með
yngsta stráknum okkar og Guð-
mundi og fór hann flesta daga í
heimsókn til Guðmundar, ýmist
einn eða með afa og stundum til að
leika við barnabörn í heimsókn.
Eins og gengur dró úr heimsókn-
um á unglingsárunum en alltaf
spurði Guðmundur: „Er strák-
urinn með?“Það var ljúft að fylgj-
ast með endurfundum þeirra sl.
sumar.
Með Guðmundi er genginn
mætur maður og höfðingi. Hans
verður saknað í Skóginum. Það var
fallegt að fylgjast með umhyggju
dætra hans og fjölskyldu þegar
kom að því að hann þurfti á aðstoð
þeirra að halda. Við þökkum Guð-
mundi vináttu og tryggð. Guð
blessi minningu hans og gefi fjöl-
skyldunni styrk.
Ásdís (Addý)
Hermannsdóttir.
Þá hefur Guðmundur blessaður
kvatt þetta líf nær aldar gamall.
Ég kynntist honum fyrst, þegar
þau Margrét, frænka mín, hófu
sambúð sína. Í fyrstu komu þau í
heimsókn á bernskuheimili mitt,
en eftir andlát foreldra minna
komu þau aldrei svo suður frá Ísa-
firði, að þau byðu mér ekki í máls-
verð með sér á Hótel Sögu, þar
sem þau dvöldu vanalegast. Þar
áttum við skemmtilegar stundir,
enda gat Guðmundur verið afar
skemmtilegur viðræðu og glettinn,
ef því var að skipta, og heill fræða-
sjór að auki. Þegar ég ferðaðist svo
vestur nokkrum árum eftir snjó-
flóðin í nágrannabyggðunum
dvaldi ég í smátíma hjá þeim Mar-
gréti í húsinu á Silfurgötunni í
góðu yfirlæti.
Eftir að þau fluttu suður sá ég
þau sjaldnar, en kom þó í heim-
sókn til þeirra í Gullsmárann og
mætti þar sama höfðingsskapnum
hjá þeim og fyrrum. Þetta voru
góðar stundir, sem ljúft er að
minnast.
Fyrir þær og góða viðkynningu
gegnum árin skal nú þakkað, þeg-
ar ég kveð þennan öldung hinstu
kveðju, um leið og ég bið honum
allrar blessunar Guðs þar, sem
hann er nú, og votta aðstandend-
um öllum innilega samúð mína.
Blessuð sé minning Guðmundar
Guðmundssonar.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
Fallin er frá öðlingurinn Guð-
mundur, fv. útgerðarmaður og
skipstjóri á eitt hundraðasta ald-
ursári. Það var mikil gæfa fyrir
mig sem ungan mann að fá að
kynnast Guðmundi en það gerðist
árið 1963 þegar ég aðstoðaði við að
stofna Útvegsmannfélag Vest-
fjarða. Þá var það sjálfgefið að
hann yrði kjörinn fyrsti formaður
félagsins og gegndi hann því starfi
í marga áratugi. Hann tók sæti í
stjórn LÍÚ árið 1973 og sat þar til
Guðmundur
Guðmundsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson