Morgunblaðið - 28.11.2015, Page 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015
✝ Ragnheiður G.Rasmussen
fæddist 28. ágúst í
Reykjavík 1932.
Hún lést á heimili
fyrir aldraða í
Helsingör í Dan-
mörku 20. nóv-
ember 2015.
Ragnheiður
eignaðist þrjú
börn með fyrri
manni sínum og
eru það þau Guðrún Kaldan,
Tryggvi Kaldan
og Kristín Kaldan.
Þau eru öll búsett
í Helsingör, Dan-
mörku. Seinni eig-
inmaður Ragn-
heiðar var Skjold
Rasmussen píanó-
leikari.
Útförin fer
fram í Gurre-
kirkjugarði Hels-
ingör í dag, 28.
nóvember 2015.
Látin er frænka mín og móð-
ursystir Ragnheiður G. Rasmus-
sen. Aggý eins og við kölluðum
hana var í minni minningu ávallt
lífsglöð kona enda einhvern tíma
þegar ég spurði hana hvað henni
fyndist hún vera gömul sagði hún
mér að henni liði eins og hún væri
ekki eldri en 25 ára og var hún þá
komin á áttræðisaldur. Ég á góðar
minningar um Aggý frænku, bæði
þegar hún kom og heimsótti okkur
á mitt æskuheimili í Dvergholtinu
og síðar þegar ég fór í nám til Dan-
merkur, þá heimsótti hún okkur til
Horsens og við heimsóttum hana
til Helsingör. Það var mjög nota-
legt að eiga fjölskyldu í Helsingör
þegar við vorum í námi í Dan-
mörku og um stórhátíðir gátum við
farið til Helsingör og átt þar góðar
stundir heima hjá Aggý með öllu
hennar fólki sem er orðið töluverð-
ur fjöldi.
Einnig kallaði hún alltaf alla
saman ef maður rak inn nefið og
hélt fjölskylduboð þar sem oft var
glatt á hjalla.
Ég reyndi ávallt að heimsækja
Aggý þegar ég gat, bæði þegar ég
og fjölskyldan mín fórum í frí til
Danmerkur og þegar ég var á
ferðinni vegna vinnu. Áttum við
einmitt góðar stundir fyrir tveim
árum þegar ég ákvað að koma við
hjá Aggý og bað hana að segja mér
sína sögu sem ég tók upp á hljóð-
upptökutæki og er ómetanlegur
fróðleikur sem þar er að finna og
eftir henni haft.
Þar segir Aggý mér frá ástæðu
þess að hún fluttist búferlum til
Danmerkur og settist að í Hels-
ingör en Aggý fluttist ung til Dan-
merkur og giftist dansk-íslenskum
manni Ulf Kaldan að nafni sem var
sendur til Íslands á sumrin til
skyldmenna og felldu þau hugi
saman þar og fluttust þau til Hels-
ingör og áttu þar saman þrjú börn.
Aggý frænka var mikill listunn-
andi enda lærður píanóleikari og
starfaði hún sem píanókennari alla
sína tíð og unni því starfi.
Hún giftist á miðjum aldri kons-
ertmeistaranum og píanóleikaran-
um Skjold Rasmussen og talaði
hún mikið um hversu farsælt það
hjónaband hefði verið þó það hefði
staðið stutt, en hann dó fyrir aldur
fram og varð það henni mikill
harmur.
Aggý var mikill Íslendingur í sér
og minnist ég stundum þegar hún
talaði um Ísland að sérstakur
glampi var í augunum á henni og
stundum mátti sjá votta fyrir tár-
um á hvarmi.
Ég veit að það eru margir sem
komu við hjá Aggý frænku af
skyldmennum sem voru bæði í fríi
og í námi í Danmörku og eiga góðar
minningar um þessa gestrisnu lífs-
glöðu konu sem þrátt fyrir áföll í
sínu lífi lét það ekki hafa áhrif á lífs-
gleði sína.
Sjálfur á ég góðar minningar
þegar við áttum notalegar samræð-
ur heima í hlýlegu stofunni hennar í
Helsingör og hún sagði mér sögur
af fólkinu okkar, Reykjavíkurætt-
inni, Hólakoturum eins og hún vildi
kalla okkur.
Hér á eftir fylgir ljóð sem amma
mín Kristín Guðmundsdóttir samdi
til Aggýjar en hún saknaði alltaf
dóttur sinnar sem bjó í Danmörku.
Minning þín lifir og hvíl þú í friði.
Geisli í sál mína skín
er opna ég bréfin þín
laug í hjartanu lifnar
tár í augum glitrar
Elskulega dóttir mín
ástarþakkir fyrir
bréfin þín
þau lesin eru æði oft
til að sálartetrið fái
næringarvott.
(Kristín Guðmundsdóttir)
Guðmundur Hreinsson, Hóla-
kotari, Jóna M. Kristjóns-
dóttir og börn.
Ragnheiður G.
Rasmussen
Elsku besta
amma mín, ég trúi
því ekki enn að þú
sért farin frá okkur. Við vorum
nýbúnar að ræða stórafmælið
þegar þú kvaddir, og þú endaðir
umræðuna á því að þú ætlaðir sko
að verða 100 ára. Ég veit þú pass-
ar vel upp á litlu kallana þína,
eins og þú kallaðir þá, sem þú
bókstaflega lifðir fyrir. Það var
svo gaman að koma með þá í
heimsókn til þín, það lifnaði yfir
þér allri og ég veit hvað þér þótti
ótrúlega vænt um þá.
Ég sakna þín svo mikið og sér-
staklega þegar líða fer að jólum.
Það var svo yndislegt að koma til
ömmu í dekur. Við Gunnar Villi
ætlum að baka lagkökuna þína
fyrir jólin og mikið þyrfti ég að
Hulda Rannveig
Friðriksdóttir
✝ Hulda Rann-veig Friðriks-
dóttir fæddist 28.
nóvember 1935.
Hún andaðist 30.
janúar 2015.
Útför Huldu fór
fram 6. febrúar
2015.
geta hringt í þig til
að fá leiðbeiningar,
eins og svo oft áður.
Ég hef ekki tölu á
öllum skiptunum
sem ég hringdi í þig
úr búðinni eða við
eldavélina, og fékk
leiðbeiningar um
hvernig þú eldaðir
þetta, eða bakaðir
hitt. Þú varst snill-
ingur í eldhúsinu og
kökurnar þínar og maturinn var
það allra besta.
Þú kenndir mér svo margt um
lífið og hvað það er sem virkilega
skiptir máli og fyrir það er ég svo
þakklát. Þú gekkst í gegnum svo
mikið á þinni ævi en aldrei léstu
mann finna fyrir því.
Hvíldu í friði, elsku amma mín,
þín er sárt saknað.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Þín,
Arna.
Með þriggja mánaða millibili
kvöddu þessi heiðurshjón eftir
farsæla samfylgd frá 1952, Einar
lést 31. október sl. en Kristín 1.
ágúst sl.
Þeir sem kynntust Einari
fundu að þar var á ferðinni eld-
heitur hugsjónamaður. Sögustað-
urinn Laugar í Sælingsdal hefur
frá upphafi heillað piltinn á Leys-
ingjastöðum. Það hefur verið eft-
irminnilegt atvik fyrir átta ára pilt
þegar UMF Unnur djúpúðga fór í
sögu- og skemmtiferð í ágúst 1925
um heimahaga með viðkomu í
Hvammi, Laugum, Bollatóftum,
Tungustapa og Hafragili. „Þegar
hópurinn stóð upp aftur á Laug-
um hafði því verið hreyft að ég
held í fyrsta sinn á opinberum
vettvangi að Laugar í Sælingsdal
væri framtíðarsetur og framtíðar
æskuheimili söguríkasta héraðs á
Íslandi,“ skrifar Geir Sigurðsson.
„Ungmennafélögin í Dalasýslu
hafa reist einhverja myndarleg-
ustu sundþró sem til er á Íslandi,“
segir í „Hvítri bók“ ríkisstjórnar-
innar 1931. Á fyrsta sundnám-
skeiðinu á Laugum í febrúar 1932
var m.a. 14 ára piltur frá Leys-
ingjastöðum. Hún var áhrifamikil
hátíðarræða hans á Héraðs-
mótinu á Laugum 1947. Þar skor-
aði hann á Dalamenn að samein-
ast um eftirminnilegt átak í
menntunar- og fræðslumálum í
Dalasýslu.
Staðurinn í dag er og hefur ver-
ið tengdur Einari órjúfanlegum
böndum. Skólahald hófst á Laug-
um 1944 í mjög þröngu húsnæði
sundlaugarinnar, en þremur ár-
um seinna tók Einar við og kenndi
þar í þrjú ár, en fór í Kennaraskól-
ann og lauk þar prófi 1952. Tók
hann þá við skólastjórninni til
1974. Einar lagði allt sitt þrek og
hugsun í að byggja upp þennan
skólastað. Ég hitti hann sumarið
1955. Mjög einbeittur á svip sagði
Einar Kristjánsson
og Kristín Berg-
mann Tómasdóttir
✝ Einar Krist-jánsson
fæddist 15. ágúst
1917. Hann lést
31. október 2015.
Kristín Berg-
mann Tómas-
dóttir fæddist 12.
ágúst 1926. Hún
lést 1. ágúst
2015.
hann að nú væri að duga eða drep-
ast, hann hefði sterkt vopn í hendi
og það væri „penninn“. Nú skyldi
honum beitt af fullri hörku og
lagni. Hinn 8. nóv. um haustið var
loks samþykkt á sameiginlegum
fundi hreppsnefndar og skóla-
nefndar Hvammshrepps að hefja
byggingu nýs skólahúss. Fimm
árum síðar náðist samkomulag við
fimm aðra hreppa sýslunnar um
samstöðu að byggingunni.
Þetta er sýnishorn afreka Ein-
ars að uppbyggingunni á Laug-
um. Þolinmæði og þrautseigja
Einars dugði til að árangur næð-
ist. Þessu til viðbótar annaðist
Einar húsvörsluna og vann mikið
við eftirlit húsbygginga.
Þegar litið er til innra starfs
skólans og þess hlutverks sem
skólastjórinn átti að vinna stóð
hann ekki einn á vaktinni. Rekst-
ur og stjórn heimavistarskóla er
vægast sagt tvöfalt verk miðað við
heimangönguskóla. Þeim skólum
er hægt að loka kl. 16 að deginum,
en heimavistarannríkið hefst þá.
Þarna stóð Einar ekki maður ein-
samall. Kristín var húsmóðir
heimilisins og lagði fram sína alúð
og umhyggju fyrir börnunum.
Börnin fundu að þarna var stjórn-
söm kona sem annaðist þau af um-
hyggju og mikilli alúð. Skólastjórn
þeirra hjóna var farsæl og eftir-
minnileg.
Hugsjónafuni Einars og
brautryðjendastarf þeirra hjóna
hafa átt stærstan þátt í að koma
upp þessu menntasetri við mjög
erfiðar aðstæður, takmarkaðan
skilning og mjög knappt fjár-
magn.
Ég minnist samstarfs og ára-
tuga vináttu Kristínar og Ólafar
konu minnar. Til Einars var ávallt
gott að leita. Þökk fyrir áratuga
samleið í starfi. Blessuð sé minn-
ing þessara heiðurshjóna.
Hjörtur Þórarinsson.
Elsku amma okkar.
Þú varst alltaf svo
góð við okkur og hugs-
aðir svo vel um okkur.
Þú kenndir okkur flestar bænirn-
ar sem við kunnum og svo margt
annað. Við munum vel þegar við
gistum hjá ykkur afa, þegar þú
komst inn til okkar og við fórum
saman með Faðir vorið og fleiri
bænir. Við munum aldrei gleyma
þér, öllu því sem þú gerðir fyrir
okkur og kenndir okkur. Munum
við geyma allar góðu minningarn-
ar í hjarta okkar og þökkum fyrir
að hafa fengið að kynnast þér.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlést okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Guðrún Birna
Þorsteinsdóttir
✝ Guðrún BirnaÞorsteinsdóttir
fæddist 14. sept-
ember 1936. Hún lést
2. nóvember 2015.
Útför Dúnu var gerð
11. nóvember 2015.
Við allt viljum þakka,
amma mín,
indælu og blíðu faðmlög
þín,
þú vafðir oss vinaarmi.
Hjá vanga þínum var frið
að fá,
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum
barmi.
Við kveðjum þig, elsku
amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo, amma, sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Hvíldu í friði, elsku amma okk-
ar.
Bergljót Soffía, Inga Birna,
Freyja Dís og Lóa Mjöll.
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565 9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898 5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts föður míns, afa okkar
og langafa,
BALDURS SIGURJÓNSSONAR,
Droplaugarstöðum,
áður Austurbrún 25.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á
Droplaugarstöðum fyrir frábæra umönnun.
Bálför hefur farið fram.
.
Ólöf S. Baldursdóttir og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður, stjúpföður og afa,
HAFSTEINS B. ÓLAFSSONAR,
Sléttuvegi 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Skógarbæjar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
.
Gréta A. Vilhjálmsdóttir,
Margrét Hafsteinsdóttir, Vilhelm Einarsson,
Sigurður Kort Hafsteinsson, Skúli Þór Hafsteinsson,
Anna Jóna Árnadóttir, Bertel Martenson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, amma, langamma og
langalangamma,
GUÐRÚN DAGNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
fimmtudaginn 12. nóvember.
Útför Guðrúnar fór fram frá Digraneskirkju
26. nóvember og að hennar ósk var útförin ekki auglýst.
.
Kristrún Harpa Ágústsdóttir,
Pétur Ómar Ágústsson,
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
FRÍÐA SVEINSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 19. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju
föstudaginn 4. desember klukkan 15.
.
Bragi Þorsteinsson,
Helga Bragadóttir, Jóhann Sigurjónsson,
Halldóra Bragadóttir, Árni B. Björnsson,
Sveinn Bragason, Unnur Styrkársdóttir
og barnabörn.