Morgunblaðið - 28.11.2015, Síða 42

Morgunblaðið - 28.11.2015, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 Gunnar Andrésson er þjálfari Gróttu í handbolta karla. Hannkom liðinu upp í efstu deild í vor og var kjörinn besti þjálf-ari 1. deildar karla í framhaldinu. „Við erum á þokkalegu róli um miðja deildina en viljum helst vera ofar. Við eigum eftir að bæta okkur enda margir ungir og efni- legir leikmenn sem spila stórt hlutverk hjá liðinu. Okkur var spáð falli og því erum við yfir pari miðað við hvað aðrir bjuggust við af okkur en á pari eða rétt undir okkar væntingum. En þetta er svo jöfn deild og bæði stutt upp og niður töfluna.“ Gunnar er viðskiptastjóri á eignastýringasviði Arion banka, en hann er viðskiptafræðingur og hefur lokið prófi í verðbréfamiðlun. „Þetta eru því langir dagar hjá mér. Er sjaldnast kominn heim fyrr en átta eða níu á kvöldin, fer beint úr bankanum og út á Nes eða á kaffihús að undirbúa leik eða æfingu. Mér finnst gott að breyta um umhverfi þar sem maður fær frið og á kaffihúsum get ég undirbúið mig yfir góðum kaffibolla og klippt saman myndbrot um lið andstæðinganna eða okkur sjálfa. Þetta gerir maður allt í tölv- unni.“ Næsti leikur Gróttu er við FH í 16 liða úrslitum bikarsins á Sel- tjarnarnesi. „Við höfum spilað tvisvar við þá í vetur, unnið einn leik og tapað einum, svo þetta verður hörkuleikur.“ Gunnar er í sambúð með Hrönn Johannsen, starfsmanni Sumar- ferða. Börn hans frá fyrra hjónabandi eru Garðar Ingi 18 ára og Ágústa Huld 15 ára og Hrönn á fyrir Söndru 19 ára og Loga 14 ára. Morgunblaðið/Styrmir Kári Þjálfarinn Gunnar hvetur sína menn í Gróttu til dáða. Fínt að undirbúa leiki á kaffihúsum Gunnar Andrésson er 45 ára í dag R ósa fæddist í Reykja- vík 29.11. 1965 og ólst upp í Hlíðunum til tíu ára aldurs. Hún var í skóla Ísaks Jónssonar og Æfingadeild Kennaraháskólans. Fjölskyldan flutti síðan í Hafnar- fjörðinn þar sem Rósa var í Víði- staðaskóla. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborg og er með BA próf í stjórnmálafræði frá HÍ. Rósa sinnti blaðamennsku, dag- skrárgerð og fréttamennsku 1986- 99, lengst af á fréttastofu Bylgj- unnar og Stöðvar tvö, og var fram- kvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna 2001- 2006. Rósa hefur verið bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði frá 2006, hefur setið í bæjarráði frá 2006 og er formaður bæjarráðs frá 2014. Á fyrri kjörtímabilum hefur hún verið fulltrúi í fræðslu- ráði og skipulagsráði Hafnarfjarð- arbæjar og frá 2014 er hún for- maður fræðsluráðs Hafnarfjarðar. Hún situr í stjórn Sorpu frá 2014 og er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði frá ársbyrjun 2014. Rósa er auk þess ritstjóri hjá Bókafélaginu frá 2009. Hún hefur sjálf skrifað mikið um mat og mat- argerð og gefið út þrjár mat- reiðslubækur, Eldað af lífi og sál 2009, Partíréttir 2013 og Hollar og heillandi súpur 2015. Árið 1992 skrifaði hún ævisögu Thelmu Ingvarsdóttur Herzl, útg. sama ár. Rósa starfaði mikið innan Sam- bands ungra sjálfstæðismanna á árunum 1983-87 og sinnti þar ýmsum stjórnar- og trúnaðar- störfum. Hún hefur svo aftur Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti sjálfstæðism. í Hafnarfirði – 50 ára Kíkt á kvikmyndaver Rósa og Jónas með Sigurgeir, Margréti Lovísu og Jónasi Bjartmar í fríi í Kaliforníu. Bjartsýn og lífsglöð Mæðgin Rósa með Bjartmari, syni sínum. Mynd frá í september 2003. Hlöðver Jóhanns- son, fyrrverandi skrifstofustjóri hjá Vegagerð ríkisins, Núpalind 8 í Kópa- vogi, verður 90 ára 29. nóvember. Hann fagnar af- mæli sínu með fjölskyldu og ætt- ingjum. Árnað heilla 90 ára Nýr borgari Reykjavík Valgerður Friðriksdóttir fæddist í Reykjavík 28. nóvember 2014. Hún vó 3.860 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Svava Óskarsdóttir og Friðrik Helgason. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barns- fæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511 2022 | www.dyrabaer.is AMH | Akranesi | Sími 431 2019 Jólagjöf dýranna – fyrir dýrin þín

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.