Morgunblaðið - 28.11.2015, Side 44

Morgunblaðið - 28.11.2015, Side 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér finnast skyldur sem tengjast börnum yfirþyrmandi í dag. Innan um það langar þig til að hita meira upp í sjálfum þér. Eyddu meiri tíma í að hugsa um sjálfan þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er óvenjumikil hætta á því að þú verðir fórnarlamb einhvers konar glæps í dag. Þú finnur hjá þér hvöt til þess að sletta úr klaufunum og leika þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vinkona þín sýnir þér mikinn skiln- ing í dag. Slakaðu á kröfunum! Það gefur meira af sér en að píska sig áfram. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ef einhver reynir að telja þér hug- hvarf í dag muntu verja afstöðu þína með kjafti og klóm. Láttu þau samt ekki buga þig því þú hefur nægan styrk til þess að leysa málin. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einhver nákominn þér vill koma þér til hjálpar. Ekki hika við að sýna væntumþykju þeim, sem þú umgengst reglulega. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að verja sjálfan þig betur og hætta að hafa svona miklar áhyggjur af öðru fólki. En mundu að öllu gamni fylgir nokkur alvara. 23. sept. - 22. okt.  Vog Temdu þér hófsemi á öllum sviðum. Dag- inn í dag ættir þú að nota til að læra, stunda tilraunir, spyrja spurninga og æfa þig. Gerðu þitt til að efla slíkan áhuga hjá sjálfum þér og öðrum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft ekki að breyta svo miklu til þess að hrista aðeins upp í venju- bundnum degi. Örlítið frávik skapar skemmti- legar aðstæður Ekki halda aftur af þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Dagurinn í dag verður ekki svo slæmur. Frítími þýðir skemmtun sem byggir mann upp. Reyndu að sýna sjálfri/sjálfum þér umburðarlyndi þegar þú gerir mistök. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það gagnast þér lítið að vera stöð- ugt að líta um öxl og kvelja þig með gerðum hlutum. Ekki vegna þess að þú getir ekki rætt málin heldur vegna þess að þú ert ekki ræð- inn í dag. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ástin hreinlega eltir þig á röndum! En öfundsvert vandamál. Mundu að vinur er sá er til vamms segir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver sagði að matarástin væri ein- lægasta ástin. Spáðu í það hvernig aðrir skynja þig, þeir hljóta að halda að þú sért of- urhetja, fyrst þeir gera þessar kröfur. Síðasta vísnagáta var sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns- son: Háslétta það heiti ber. Heitir líka kjarrlendið. Himinn blár og bjartur er. Bungu lága sjáum við. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Ég fór um Hellisheiði, og Heiðmerkur reit. Þá upp í himinheiði af heiðinni leit. Árni Blöndal svarar: Hásléttuna heiði tel. Heiði vaxin kjarri lágu. Himinbláma í heiði vel Heiði, – jökulbungu hvel. Helgi Seljan á þessa lausn: Hásléttu kalla heiði má á heiðinni Lyngdals kjarrið grær. Sól í heiði ég helzt vil fá, heiti á bungunum fjær og nær. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Um Höllu á Jökuldalsheiði (heiði er kjarr, landið saug þurrt): Í heiðríkju hent’ana leiði. Af heiði Miðness strax flaug burt. Helgi R. Einarsson svarar: Möguleika að líkum leiði, lukkuhjólið á mig reiði. Nú ber nokkuð vel í veiði, vissulega er þetta heiði. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig; Slétta sú er heiði há. Heiði nefnist kjarrlendið. Heiði er festing björt og blá. Bungu heiði köllum við. Og limra tilheyrir: Hundgá berst ofan af heiðinni, herða smalar á reiðinni hóandi fé, hygg ég, að sé veturinn líka á leiðinni. Síðan segist Guðmundur enn fastur í gátufarinu: Stropblettur á eggi er. Einatt má á hamri sjá. Á tening líka lítum vér. Ljósið jafnframt greina má. Þorfinnur Jónsson á Ingveld- arstöðum orti: Kælist vangi um vetrar daga vekur ganga roða í kinn. Með vind í fangi vart til baga víkur angurs bragurinn. Að síðustu gömul vísa: Þegar lundin þín er hrelld þessum hlýddu orðum: gakktu með sjó og sittu við eld. Svo kvað völvan forðum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sól skín í heiði Í klípu „ÞAÐ HLJÓMAÐI VERR ÞEGAR GUÐ SAGÐI ÞAÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „FARÐU AF ÞESSUM OLÍUBORNA MANNI, ÞÚ ERT Í BESTU SKÓNUM ÞÍNUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann biður þín í 35.000 feta hæð. JÆJA, SJÁUM NÚ TIL… ÉG HEF FENGIÐ MÉR MORGUNMAT, HÁDEGISMAT OG KVÖLDMAT ÞETTA HEFUR VERIÐ GÓÐUR MORGUNN! HELGA, FLESTAR VINKONUR ÞÍNAR EIGA EIGINMENN SEM KUNNA AÐ LESA… ALLS EKKI… Kæra dagbók… …TRUFLAR ÞAÐ ÞIG AÐ ÉG GET ÞAÐ EKKI? Í alvöru?! Viltu aðyfirmaður þinn hrökkvi upp af?!Það er rangt hvernig sem á þaðer litið. Ég læt sem ég hafiekki heyrt þetta. Snjórinn, snjórinn, snjórinn allsstaðar. Mikil ósköp sem Víkverja þykir snjórinn yndislegur. Að heyra marrið undan kuldaskónum þegar gengið er í fönninni. Og loftið, ein- staklega hreint og tært og ekki laust við að það bíti aðeins í kinnarnar. x x x Gallinn er hins vegar sá við snjóinnað þurfa að skafa bílinn. Að sjálf- sögðu var rúðuskafan ekki til taks í bílnum og þurfti Víkverji því að not- ast við hið dæmigerða geisla- diskahulstur. Sem betur fer fann Vík- verji gamalt hulstur í bílnum. Bíllinn er líklega eini staðurinn þar sem hlustað er á geisladiska því tónlistar- streymi í gegnum snjalltæki er frekar notað á heimilinu en rispaðir geisla- diskar. x x x Hulstrið klikkaði ekki. Víkverjiheldur jafnvel að það sé hrein- lega betra að nota slíkt en þar til gerða rúðusköfu. Í það minnsta gekk greiðlega að skafa rúður bílsins. x x x Annars getur Víkverji ekki kvartað.Hann býr við þann lúxus að vera með bílskýli. Hann gengur því á hverjum morgni inn í upphitaðan bíl og þarf því sjaldnast að skafa. Það er líklega ástæðan fyrir fjarveru rúðu- sköfunnar í bílnum. Það er að segja þegar Víkverji fær að setja sinn bíl inn í bílskýlið. Það eru góðir dagar. x x x Annars færist jólaskapið yfir Vík-verja í þessu veðri. Það er svo gott að vera inni og baka eða fara út að renna sér á sleða og viðra barnið í sjálfum sér. Þar er jólaandinn en ekki í verslunarmiðstöðum. x x x Annars svitnar Víkverji alltaf áþessum árstíma. Ástæðan er sú að það reynir á hæfileika hans til inn- pökkunar og aðventukransagerðar. Hann er ekki leikinn í slíku og því kaupir hann helst allt tilbúið eða betri helmingurinn pakkar inn öllum jóla- pökkunum. Víkverji gerir víst ekkert annað en að flækjast fyrir en getur aðeins rétt límband ef á þarf að halda. víkverji@mbl.is Víkverji En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég gerði Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þín- um. Sálmarnir 73:28 HEILSA OG LÍFSTÍLL SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, föstudaginn 18. desember NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út sérblað um heilsu og lífstíl laugardaginn 2. janúar. Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og lífstílsbreytingu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.