Morgunblaðið - 28.11.2015, Síða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015
Söfn • Setur • Sýningar
Sérkenni sveinanna jólasýning á Torgi
Jólaratleikur
Leitin að jólakettinum er stórskemmtileg skemmtun fyrir alla fjölskylduna
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
I Ein/Einn-Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal
Blaðamaður með myndavél á Veggnum
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð og kaffihús
Listasafn Reykjanesbæjar
Kvennaveldið: Konur og kynvitund
13. nóvember – 24. janúar
Töskur frá Handverki og hönnun
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Þyrping verður að þorpi
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið alla daga 12.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
LISTASAFN ÍSLANDS
NÍNA TRYGGVADÓTTIR - LJÓÐVARP 18.9. 2015 - 3.1. 2016
Sunnudagsleiðsögn 29. nóvember kl. 14.
Dr. Jón Karl Helgason, prófessor við Háskóla Íslands, leiðir gesti um sýninguna.
NÍNA SÆMUNDSSON - LISTIN Á HVÖRFUM 6.11.2015 - 17.1.2016
Sunnudagsleiðsögn 29. nóvember kl. 15:30.
Hrafnhildur Schram, sýningarstjóri sýningarinnar, leiðir gesti um sýninguna.
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið dagl. kl. 11-17, lokað mánud.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
GYÐJUR 17.10.2015 - 29.11.2015 - Ath. Síðasta sýningarhelgi.
Opið laugard. og sunnud. kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
SPEGILMYND 11.10.2015 - 29.11.2015 - Ath. Síðasta sýningarhelgi.
Sögustund á aðventu í Safni Ásgríms Jónssonar kl. 15.
Opið sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist,
plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Veitingahúsið Kapers Ljúffengt kaffi og kruðerí
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 10-17.
SAFNAHÚSIÐ
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
GEYMILEGIR HLUTIR
Að safna í söguna
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Á eintali við tilveruna
Eiríkur Smith
Verk frá 1983 – 2008
Sýningarstjóraspjall
Sunnudag 29. nóvember kl. 15
Ólöf K. Sigurðardóttir fjallar um sýninguna
Á eintali við tilveruna – Eiríkur Smith
Hádegistónleikar
Þriðjudag 1. desember kl. 12
Hanna Björk Guðjónsdóttir og Björg
Birgisdóttir
Mæðgur með Maríu
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is - sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er er grískur þátttöku-
harmleikur þar sem áhorfandinn
lærir að þekkja sjálfan sig upp á
nýtt,“ segir Hannes Óli Ágústsson
listrænn stjórnandi og hugmynda-
smiður um verkið Láttu bara eins og
ég sé ekki hérna sem leikhópurinn
Sómi þjóðar frumsýnir í Tjarnarbíói
sunnudaginn 29. nóvember kl. 17 en
næstu sýningar verða kl. 18 og 19.
„Verkið er á mörkum þess að vera
leiksýning og performans. Um nokk-
urt skeið hef ég gengið með þá hug-
mynd í maganum að vinna leiksýn-
ingu sem felur í sér þátttökuleikhús.
Í því skyni fór ég að kynna mér slík-
ar sýningar betur og er með hug-
mynd að fjórum verkum undir sam-
heitinu „skrímslið í manninum“ sem
byggðar eru upp á fjórum mismun-
andi erkitýpum. Sú fyrsta, sem við
vinnum með í þessari sýningu, er
Prómeþeus “ segir Hannes Óli og
rifjar upp örlög Prómeþeusar eins
og þau birtast í grískum goðsögnum.
„Prómeþeus var Títani sem bjó á
Ólympustindi og sveik sitt eigið kyn
í stríði Ólympusguða við Títani. Þeg-
ar Seifur hugðist útrýma mannkyni
snerist Prómeþeus til varnar mann-
inum og stal eldinum frá guðunum
og gaf hann mönnunum. Seifur lét
þá hlekkja Prómeþeus við klett, en á
hverjum degi kom örn og kvaldi
Prómeþeus með því að höggva í lifur
hans. Hann var loks frelsaður af
hetjunni Heraklesi.“
Hverjir eru Prómeþeusar
samtímans?
Í samtali við Morgunblaðið bendir
Hannes Óli á að annað lykilþema
sýningarinnar birtist í vangaveltum
um hvað það þýði að vera manneskja
á tímum stanslauss eftirlits. „Hvern-
ig sköpum við sjálfsmynd okkar þeg-
ar einkalífið er orðið að eign stjórn-
valda og stórfyrirtækja. Við fórum
inn í mikla spunavinnu með þessar
hugmyndir að leiðarljósi,“ segir
Hannes Óli, en auk hans taka þátt í
verkefninum þau Tryggvi Gunn-
arsson, Karl Ágúst Þorbergsson,
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sara
Hjördís Blöndal, Salóme R. Gunn-
arsdóttir og Sigurður Arent Jóns-
son, sem mörg hver hafa lokið leik-
listarnámi frá sviðslistadeild Lista-
háskóla Íslands ýmist sem leikarar
eða sviðshöfundar. „Þetta er mikið
samvinnuverk og því ómetanlegt að
þetta fólk hafi lagt allt sitt í þetta
verkefni, en við framleiðum þetta án
allra styrkja.“
Að sögn Hannesar Óla velti hóp-
urinn fyrir sér hvort sjá mætti ein-
hverja Prómeþeusa í samtímanum.
„Hverjir eru í dag að svíkja eigin
samfélagshóp og fórna sér fyrir æðri
málstað? Er þetta mögulegt í dag
þar sem allir fylgjast með öllum á
samfélagsmiðlum og þar sem fjöl-
miðlar nota samfélagsmiðla sem
fréttaveitur?“ segir Hannes Óli og
tekur fram að spunavinnan hafi leitt
hópinn inn í heim pöndunnnar.
„Á tímabili fjallaði sýningin mjög
mikið um pöndur, en gerir það ekki
lengur. Pandan er dýr sem er í út-
rýmingarhættu, sem er að einhverju
leyti manninum að kenna. Pandan
virðist ekki hönnuð til að lifa af. Þær
eiga erfitt með að maka sig og gera
lítið annað en að éta og skíta. Við
færðum þetta yfir á manninn sem
lætur sér fátt um finnast þó að ólíkir
Prómeþeusar komi og reyni að
bjarga mannkyni,“ segir Hannes Óli
og bendir í því samhengi á uppljóstr-
anir Edwards Snowden. „Hann
sveik vinnuveitendur sína til að-
stoðar fyrir mannkyn með því að af-
hjúpa gríðarlegt umfang njósna, en
almenningi virðist standa á sama því
fáir hafa breytt sínum venjum í
tölvuheimum. Fólk hélt áfram að
borða sinn bambus,“ segir Hannes
Óli og veltir upp þeirri spurningu
hvers vegna við sem manneskjur
högum okkur eins og pöndur þegar
við séum ekki pöndur.
Innblásið af pöndum
Að sögn Hannesar Óla verður
verkið leikið í ýmsum bakrýmum
Tjarnarbíós, en aðeins komast sex
áhorfendur eða þátttakendur á
hverja sýningu. „Við bjóðum áhorf-
andanum að koma í leikhúsið og
gangast undir persónuleikapróf þar
sem hann er leiddur í gegnum stig
sjálfsupplýsingar og þarf að horfast
í augu við sína innri pöndu. Verkið
er þannig að stórum hluta eitt stórt
persónuleikapróf undir eftirliti og
innblásið af pöndum,“ segir Hannes
Óli og bætir við: „Þeim mun meira
sem áhorfendur gefa af sér þeim
mun meira fá þeir út úr verkinu.“
Þess má að lokum geta að aðeins
verða fimm sýningardagar, þ.e. 29.
nóvember, 2., 9., 10. og 13. desem-
ber, en sýnt er þrisvar á dag á tíma-
bilinu frá kl. 17 til 20, en hver sýnign
er um 50 mínútur. Allar nánari tíma-
setningar má nálgast á vefnum
tjarnarbio.is.
Listrænt teymi Hannes Óli Ágústsson listrænn stjórnandi verkefnisins ásamt Salóme R. Gunnarsdóttur, Tryggva
Gunnarssyni, Ástbjörgu Rut Jónsdóttur, Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur og Sigurði Arent Jónssyni.
„Eitt stórt per-
sónuleikapróf“
Sómi þjóðar frumsýnir Láttu bara
eins og ég sé ekki hérna í Tjarnarbíói
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju
verða haldnir 18. desember kl. 23,
19. desember kl. 20 og 20. desem-
ber kl. 20, en áratugalöng hefð er
fyrir tónleik-
unum. Þar koma
fram Kór Lang-
holtskirkju og
Gradualekór
Langholtskirkju.
Einsöngvarar í
ár eru Benedikt
Kristjánsson,
Andri Björn Ró-
bertsson og Ólöf
Kolbrún Harð-
ardóttir. Ein-
söngvari á táknmáli er Kolbrún
Völkudóttir. „Þetta verða þrítug-
ustu og áttundu Jólasöngvarnir við
kertaljós og að vanda er boðið upp
á rjúkandi jólasúkkulaði og pip-
arkökur í hléi,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu. Stjórnandi er Árni Harðarson
sem hleypur í skarðið fyrir Jón
Stefánsson sem er fjarverandi
vegna veikinda.
Jólasöngvar í
Langholtskirkju
Ólöf Kolbrún
Harðardóttir
Kvenleikar nefnist listsýning Erlu
Þórarinsdóttur sem opnuð verður á
vegum Listvinafélags Hallgríms-
kirkju á morgun, sunnudag, við
messulok kl.
12.15.
„Þegar ég
fékk að vita að
sýningin í Hall-
grímskirkju yrði
opnuð fyrsta í að-
ventu, var aug-
ljóst að hún yrði
tengd jólahald-
inu og endurfæð-
ingu Kristsvit-
undarinnar hjá
kristnum. Ég fór að ígrunda fæð-
ingu frelsarans. Hann er guðlegur í
mannsmynd, hann er fyrirmynd og
hann er við. María mey er móðir
hans, mennsk kona og heilög guðs-
móðir, hún fæðir hann,“ segir Erla
um sýningu sína. Sýningin, sem
stendur til 7. febrúar er opin alla
daga milli kl. 9 og 17. Aðgangur er
ókeypis.
Erla Þórarinsdóttir
sýnir Kvenleika
Erla
Þórarinsdóttir