Morgunblaðið - 01.12.2015, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. D E S E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 282. tölublað 103. árgangur
VERK GERÐ
EFTIR FYRIR-
MÆLUM
REYNSLU-
AKSTUR OG
ÖKUPRÓF
SKERMA-
GRIND VARÐ
AÐ FYRIRTÆKI
BÍLAR ÁSBRÚ 10ERLA MEÐ BÓK 30
til jóla!
23 dagar
„Aldrei áður hefur verið jafnmikið í húfi á alþjóð-
legum fundi vegna þess að ráðstefnan snýst um
framtíð jarðarinnar, framtíð lífsins,“ sagði
Francois Hollande Frakklandsforseti þegar hann
setti loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
París í gær. „Vonir alls mannkynsins hvíla á herð-
um ykkar.“ Yfir 150 þjóðarleiðtogar, þ.á m. Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra,
sóttu fyrsta fund ráðstefnunnar í gær en gert er
ráð fyrir að henni ljúki 11. desember. Markmiðið
með ráðstefnunni er að sameinast um aðgerðir til
að draga úr losun koldíoxíðs og annarra gróð-
urhúsalofttegunda til að hindra hlýnun jarðar.
Einnig á að semja um ráðstafanir til að hjálpa fá-
tækum löndum að laga sig að breytingunum.
Þetta er fjölmennasta samkoma þjóðarleiðtoga á
einum degi í sögunni, að sögn embættismanna
Sameinuðu þjóðanna.
Christiana Figueres, framkvæmdastjóri Lofts-
lagsstofnunar SÞ, ávarpaði fulltrúa. „Aldrei áður
hefur svo mikil ábyrgð verið í höndum svo fárra,“
sagði hún. „Heimsbyggðin reiðir sig á ykkur.“
Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfis-
ráðuneytinu, er meðal fulltrúa Íslands. Hann seg-
ir marga gera sér vonir um góðan árangur af ráð-
stefnunni, meðal annars vegna þess að þátttakan
sé svo mikil. „Grunnhugmyndin er sú að ríkin
sendi inn sjálfviljug markmið [um samdrátt í los-
un]. 182 þeirra hafa sent inn slík landsmarkmið
og þau standa fyrir um 95% af losun heimsbyggð-
arinnar. Síðan er meiningin að ná samkomulagi
sem verði eins konar rammi um þessi sjálfviljugu
markmið.“ »12 og »17
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna sett í Parísarborg
AFP
Loftslagsráðstefnan Obama, forseti Bandaríkjanna, og Hollande, forseti Frakklands, slógu á létta strengi í kvöldverðarboði hins síðarnefnda í París í
gærkvöldi. Meðal annarra við borðið eru Segolene Royal, orkumálaráðherra Frakka, og utanríkisráðherrarnir Laurent Fabius og John Kerry.
„Aldrei jafnmikið verið í húfi“
Hollande Frakklandsforseti hvetur ríki heims til dáða í baráttunni gegn
koldíoxíðslosun og segir vonir mannkynsins hvíla á herðum fulltrúanna
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Þarna er komið með ábendingar í
anda þess sem við höfum haldið fram
á liðnum árum, að fákeppnin hafi
leitt af sér óeðlilega hátt eldsneyt-
isverð til almennings, sem er mjög
alvarlegt. Við væntum þess að mark-
aðurinn bregðist sem fyrst við,“ seg-
ir Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, um frummatsskýrslu
Samkeppniseftirlitsins um eldsneyt-
ismarkaðinn. Þar er því m.a. haldið
fram að dregið hafi úr samkeppni í
sölu á bifreiðaeldsneyti á síðustu ár-
um, að álagning á bifreiðaeldsneyti í
smásölu sé óeðlilega há og að olíufé-
lögin samhæfi hegðun sína með þegj-
andi samhæfingu.
Runólfur segir ljóst að þessi fá-
keppnismarkaður sé neytendum dýr
og í þessari rannsókn komi vísbend-
ing um að markaðurinn hér sé ekki
að skila hagstæðasta verði til al-
mennings, nema síður sé. „Svo eru
þarna vísbendingar um að í kjölfar
samráðsúrskurðanna virðist álagn-
ing til almennra neytenda hafa jafn-
vel hækkað, á meðan álagning til
stórkaupenda hafi lækkað töluvert.
Það er eins og samkeppninni hafi
verið mætt á þeim enda en hinum al-
menna bíleiganda verið látið blæða,“
egir hann.
Olíufélögin gagnrýndu niðurstöð-
ur og staðhæfingar í skýrslunni í
gær og sögðu m.a. fráleitan saman-
burð á álagningu við eldsneytis-
markaðinn í Bretlandi. Samkeppnis-
eftirlitið sendi frá sér áréttingu
síðdegis þar sem því er haldið fram
að frumniðurstaðan um að íslenskir
neytendur hafi ofgreitt 4-4,5 millj-
arða að meðtöldum virðisaukaskatti
á seinasta ári sé varfærin.
Fákeppnin neytendum dýr
FÍB segir vísbendingar um að í kjölfar samráðsúrskurða í olíufélagsmálum
hafi álagning hækkað Olíufélögin gagnrýna skýrslu Samkeppniseftirlitsins
MTjón neytenda » … 14-15
Fyrirtækið Icewear er að færa út
kvíarnar á hótelmarkaðnum og
byggir nú 8 lúxusíbúðir á Lauga-
vegi 1 sem eru ætlaðar í skamm-
tímaleigu til ferðamanna.
Ásgeir Þór Eiríksson, eigandi
Icewear, segir stefnt að því að opna
íbúðahótelið í mars. Um er að ræða
bakhús, en á sömu lóð er gamla
Vísishúsið sem snýr að Laugavegi.
Ásgeir Þór er bjartsýnn um
rekstur íbúðahótelsins og bendir á
að nú sé mikil eftirspurn eftir slík-
um íbúðum í miðborg Reykjavíkur.
Samhliða þessari uppbyggingu
hyggst Ásgeir Þór og félag hans
endurbyggja gamla Vísishúsið og
gera nýtt port milli húsanna. »6
Teikning/Stúdíó andrúm arkitektar
Bakhús Drög að íbúðahótelinu.
Gera upp gamlan
reit á Laugavegi
Vísitala fram-
leiðsluverðs hef-
ur lækkað um
5,2% síðasta árið.
Hagfræðingur
Samtaka iðn-
aðarins segir
þróun vísitöl-
unnar benda til
versnandi sam-
keppnisstöðu ís-
lensks iðnaðar.
Samhliða auknum kostnaði hér-
lendis hefur verð á ýmsum mik-
ilvægum útflutningsafurðum lækk-
að verulega. Þannig hefur vísitala
framleiðsluverðs á afurðum stóriðj-
unnar lækkað um 16,9% á síðustu
12 mánuðum. »16
Iðnaður Álverð
hefur lækkað mikið.
Lækkun vísitölunnar
er áhyggjuefni