Morgunblaðið - 01.12.2015, Side 4
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tillaga að deiliskipulagi fyrir svæðið
við Seljalandsfoss og Hamragarða
gerir ráð fyrir að þjónustumiðstöð
og bílastæði verði vestan núverandi
Þórsmerkurvegar. Jafnframt er
gert ráð fyrir að Þórsmerkurvegur
verði færður vestur fyrir þjónustu-
miðstöðina.
Starfshópur á vegum Rang-
árþings eystra hefur unnið að deili-
skipulagi svæðisins í samráði við
aðra landeigendur. Hópurinn kynnti
tillögu sína á opnum íbúafundi í gær.
Meðal markmiða skipulagsins er
að bæta aðstöðu ferðamanna en um
leið að draga úr álagi á viðkvæm
svæði. Gríðarlegt álag er á svæðið
við Seljalandsfoss vegna mikillar
fjölgunar ferðafólks. Áætlað er að
yfir 320 þúsund ferðamenn hafi lagt
leið sína þangað á síðasta ári og
hafði þá fjölgað um 50% frá árinu á
undan. Fréttir hafa verið um örtröð
á bílstæðunum á álagstímum.
Hvergi sé hægt að leggja bílum.
Starfshópurinn bar saman fjórar
sviðsmyndir og gerir nú tillögu um
eina þeirra. Samkvæmt upplýs-
ingum Antons Kára Halldórssonar,
skipulags- og byggingarfulltrúa,
gerir hún ráð fyrir að þjónustu-
miðstöð verði úti á aurunum, á milli
Seljalandsfoss og Hamragarða. Þar
verði jafnframt bílastæði og aðeins
sleppistæði við fossinn. Þórsmerk-
urvegur verði færður vestur fyrir
þjónustumiðstöðina. Anton segir
jafnframt að gerður verði góður
göngustígur sem liggi í hring, frá
þjónustumiðstöð, um Seljalandsfoss,
Hamragarða og til baka að þjón-
ustumiðstöð. Með færslu vegarins,
þjónustumiðstöð á þessum stað og
betri dreifingu fólks með göngustíg-
um verði rýmra um fossinn og svæð-
ið nýtist betur.
Ísólfur Gylfi Pálmason sveit-
arstjóri segir að til tals hafi komið að
innheimta gjald fyrir bílastæði, til að
standa undir uppbyggingu og
rekstri svæðisins, á svipaðan hátt og
áformað er að gera á Þingvöllum.
Skipulagssvæðið tekur yfir hluta
óskipts lands fjögurra býla á Selja-
landstorfu og Hamragarða sem er í
eigu sveitarfélagsins. Á Hamragörð-
um er rekið tjaldsvæði og þar er
fossinn Gljúfrabúi. Verið er að fara
yfir landamerkin við Seljalandsfoss.
Landeigendur hafa óskað eftir því
að deiluskipulagsvinnunni verði
frestað þar til landamerkin eru klár.
Þjónustumiðstöð vestan vegar
Unnið að deiliskipulagi landsins við Seljalandsfoss og Hamragarða undir Eyjafjöllum
Mikið álag á svæðið vegna fjölgunar ferðafólks Rýmkað til með færslu Þórsmerkurvegar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fagur foss Áætlað er að um 320 þúsund manns komi að Seljalandsfossi á ári. Vinsælt er að ganga á bak við fossinn.
Tillgaga að skipulagi við Seljalandsfoss
Heimild: Rangárþing eystra
Tjaldmiðstöð
Hús Rangæinga-
félagsins
Hamra-
garðar
Tjaldsvæði
Suðurlandsvegur
Bí
las
tæ
ði
Skammtíma-
stæði
Bí
la
st
æ
ði
Va
rn
ar
ga
rð
ur
Hu
gs
an
le
gu
r f
ra
m
tíð
ar
ve
gu
r
N
úv
er
an
di
þó
rs
m
er
ku
rv
eg
ur
Seljalandsfoss
Lóð fyrir þjónustuhús
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Spáð er snjókomu á höfuðborgar-
svæðinu í dag. Gangi sú spá eftir
gæti mögulega snjóað nóg til þess að
hægt verði að opna einhverjar skíða-
lyftur í Bláfjöllum í þessari viku eða
byrjun þeirrar næstu.
„Okkur vantar aðeins meiri snjó
til að geta opnað,“ sagði Magnús
Árnason, framkvæmdastjóri Skíða-
svæða höfuðborgarsvæðisins, í gær.
„Við vonum að við getum undirbúið
brekkurnar og opnað sem fyrst.“
Hann taldi í gær að minna hefði
snjóað fram að því í Bláfjöllum en í
sjálfri borginni. Reynt er að festa
þann snjó sem fellur með troðurum.
Í gær vantaði nokkuð, líklega um 30
sentimetra af jafnföllnum snjó, til að
ástandið væri alls staðar gott á
skíðasvæðinu.
Búið er að opna göngubrautir í
Bláfjöllum og eins er búið að opna
eina brekku fyrir skíðaæfingar eldri
krakka. Dreift var heyi í brekkuna
og þá þarf minni snjó til að hægt sé
að opna. Skálafell verður opið um
helgar frá og með 31. janúar 2016
samkvæmt samningi sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu.
Litlu skíðalyfturnar inni í Reykja-
vík, það er Ártúnsbrekkulyftan hjá
gömlu rafstöðinni við Rafstöðvar-
veg, Breiðholtslyftan við Útvarps-
stöðvarveg/Jafnasel og Grafarvogs-
lyftan við Dalhús, voru í gangi á
föstudaginn var. Opið var um
helgina og í gær. Hægt er að sjá hve-
nær þær eru í gangi á Facebook-
síðunni „Skíðasvæðin í borginni“.
Síðan er uppfærð daglega á meðan
er snjór. Þessar lyftur eru ætlaðar
börnum og byrjendum.
Morgunblaðið/Eggert
Ártúnsbrekka Búið er að opna skíðalyftur fyrir börn og byrjendur í borginni. Það styttist í opnun lyftanna í Blá-
fjöllum ef spár um áframhaldandi snjókomu rætast. Þar er búið að opna brautir fyrir gönguskíðafólk.
Skíðavertíðin hefst brátt
Eitthvað vantar af snjó svo að hægt sé að opna í Bláfjöll-
um Snjókomu er spáð á höfuðborgarsvæðinu í dag
Einnig úrval
af pappadiskum,
glösum og servéttum
Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari
FLOTTU
AFMÆLISTERTURNAR
FÁST HJÁ OKKUR
Skoðið
úrvalið á
okkarbakari.is
Heilbrigðisstofn-
un Suðurlands
verður rekin með
0,7 til 0,9 prósent
halla árið 2015
þar sem ekki var
veitt rekstrarfé í
starfsemi nýrrar
göngudeildar lyf-
lækninga á Sel-
fossi og vegna
aukningar verk-
efna í sjúkraflutningi.
Þetta kemur fram í mánudags-
pistli forstjóra Heilbrigðisstofnunar-
innar, Herdísar Gunnarsdóttur. Þar
segir hún það hafa reynst vandasamt
verk að gera rekstraráætlun fyrir
árið 2016 vegna umtalsverðra launa-
hækkana. „Enn er óljóst hverjar
launabætur ríkisins verða til heil-
brigðisstofnana,“ skrifar Herdís og
bætir við að fjárframlög til grunn-
þjónustu séu ekki næg og lítið svig-
rúm sé til endurbóta á búnaði og
tækjum heilbrigðisstofnunarinnar.
Of lág framlög fyrir
grunnþjónustu
Herdís
Gunnarsdóttir