Morgunblaðið - 01.12.2015, Page 11

Morgunblaðið - 01.12.2015, Page 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Handsaumaðir skermar Unnur og Davíð í Ljósberanum. Unnur sér um skermagerðina en Davíð hannar lampafæturna. margra ára notkun. Fólk er líka að kaupa gamla lampa á nytjamörk- uðum sem þarf að skipta um skerma á og slíkt er nokkuð í tísku í dag. Skermagrindurnar koma oft langt að til að fá ný klæði hjá mér.“ Flestir skermarnir eru saum- aðir í höndunum og þess verður ekki langt að bíða að framleiðsla grindanna verði komin í hendur Davíðs. Þá verður öll vinna við lampa- og skermagerðina komin í hendur þeirra hjóna. Dóttir þeirra, Aðalheiður Rut, hefur líka komið að skermagerðinni en hún var á listnámsbraut í Hafnarfirði. Frá Edison til steampunk Bæði rekaviðar- og röralampar Davíðs hafa vakið mikla athygli og þau hjón komist á sýningar Hand- verks og hönnunar í fjórgang. Þau hafa einnig farið norður til að taka þátt í stóru handverkshátíðinni á Hrafnagili í Eyjafirði. Röralamp- arnir eru kenndir við „steampunk“- stílinn og nokkrir slíkir prýða sýn- ingarglugga og -rými verslunar- innar Linsunnar við Skólavörðustíg. Lamparnir, sem hafa vakið forvitni vegfarenda, kveiktu þá hugmynd hjá hjónunum að koma framleiðslunni í netsölu. „Við gerum öðruvísi lampa en fólk fær annars staðar og erum greinilega að gera eitthvað sem fólki líkar, annars væri umsóknum okkar um þátt- töku í sýn- ingum Hand- verks og hönnunar varla svarað,“ segja hjónin. Edison- lampar Davíðs vöktu sérstakan áhuga blaðamanns en þar not- ar Davíð slökkvara í gömlum stíl sem hann pantar frá Frakklandi og falningar frá Litháen. Davíð segir á döfinni að fara að renna lampafætur og hann er þegar bú- inn að kynna sér það handverk. „Mér finnst gaman að vinna með rörin og nota gamalt dót inn á milli til að búa til lampafætur. Ég hef t.d. notað bremsudiska og eitt og annað. Þá finnst mér rekaviðurinn mjög heillandi og nú er ég að fara að vinna fætur úr birki og reynivið, ætla að renna úr því.“ Einn af veglegustu lömpum Ljósberans hefur lampafót sem gerður er úr viðarbita úr gamla Kaupfélaginu á Hvammstanga, sem byggt var 1902. Davíð áskotnaðist bjálki úr húsinu, með sál og sögu, eins og hann orðar það sjálfur. Gamlir hlutir hafa einnig öðlast nýtt líf í meðförum Unnar. „Ég nota gamlar bækur og blöð, teikn- ingar og kort, gamla dúka og stórr- is í skermagerðina og jafnvel lopa- peysur hafa orðið að lampaskermum,“ segir Unnur. Lampar og listaverk úr dýrahauskúpum Það liggur því beinast við að spyrja hvort samtal þeirra hjóna snúist að miklu leyti um lampa- gerð? „Það er eiginlega ekki hugsað um neitt annað,“ segir Unnur og hlær. Það sé endalaust hægt að ræða hug- myndir þegar nýtilegan efnivið ber á góma. „Þegar hug- myndin kem- ur upp stekk ég út í skúr og byrja að framkvæma,“ segir Davíð. „Dóttir okkar hefur líka hlaupið til og aðstoðað mig ef þarf og gaukar að okkar alls kyns hugmyndum,“ bætir Unn- ur við. Eitt af nýjustu samvinnuverk- efnunum er lampagerð úr höfuð- kúpum hrúta sem Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson á Vatnsnesi í Vest- ur-Húnavatnssýslu verkar. Unnur hefur m.a. skorið hauskúpu út og Davíð útbúið lampa inni í henni ásamt öðrum útfærslum. Sjálfur gerir Jóhannes Óskar listaverk úr höfuðkúpunum og hannar undir merkjum Natural Bones Design. Aðalheiður Rut hefur sett mark sitt á nokkrar hauskúpur með því að vefa utan um þær ull með út- saumi. Alls konar Lampaskermar og loftljósaskermar í ýmsum stærðum og gerðum. Hringbraut-miðlun ehf. | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100 Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi Háskóla Íslands og viðtali við háskólarektor, Jón Atla Benediktsson. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ Heimsókn til Háskóla Íslands – æðstu mennta- stofnunar landsins í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 21.00 í kvöld • Háskóli meðmjög góða útkomu í alþjóðlegum samanburði • 14.000 stúdentar stunda nám í 25 deildum og um 1100 þeirra erlendis frá • Fjölbreytt meistara- og doktorsnám til margra ára •Þrír prófessorar við Háskóla Íslands eru á lista yfir áhrifamestu vísindamenn í heimi Á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 21.00 DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015 Hauskúpa Haus- kúpu-lamparnir eru samstarfsverkefni Ljósberans og Nat- ural Bones Design.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.