Morgunblaðið - 01.12.2015, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Menntamálaráðuneytið réð í haust
Þorstein Þorsteinsson, fyrrverandi
skólameistara Fjölbrautaskóla
Garðabæjar, sem ráðgjafa við
stjórnun Fjölbrautaskóla Vestur-
lands, Akranesi.
Líkt og kom fram í Morgun-
blaðinu fyrir rúmum mánuði var
ástæða ráðningar Þorsteins sú að
mikil óánægja hafði ríkt meðal
kennara skólans, með stjórnun og
starfshætti skólameistarans,
Ágústu Elínar Ingþórsdóttur.
„Þetta gengur bara nokkuð vel,
en það má ekki gleyma því að þetta
er langhlaup og tekur tíma. Við er-
um að breyta áherslum og innleiða
nýjar stjórnunaraðferðir. Við ger-
um það bara hægt og rólega, enda
er sígandi lukka best,“ sagði Þor-
steinn í samtali við Morgunblaðið í
gær, þegar hann var spurður hvern-
ig ráðgjafarstafi hans við FVA mið-
aði.
Þorsteinn kveðst hafa notað tím-
ann til þess að
setja sig vel inn í
mál skólans.
Hann hafi rætt
við fjölmarga frá
því hann hóf
störf, nemendur,
kennara og
stjórnendur.
Um helgina
var auglýst staða
aðstoðarskóla-
meistara FVA. Þorsteinn var spurð-
ur hvort ráðið yrði í stöðuna úr hópi
kennara við FVA: „Við vitum það
ekki enn. Við bíðum spennt eftir að
sjá hverjir sækja um. Ég hef
ákveðnar hugmyndir um það hvað
væri best fyrir skólastarfið, en það
verður bara skoðað þegar allar um-
sóknirnar eru komnar í hús. En
vissulega skiptir það máli að fá góð-
an mann í starfið. Ég lagði það til
strax og ég kom að þessu starfi að
staða aðstoðarskólameistara yrði
auglýst laus til umsóknar og nú hef-
ur það verið gert, sem er jákvætt,“
sagði Þorsteinn.
Ráða aðstoðar-
skólameistara
Ráðgjafi segir sígandi lukku besta
Þorsteinn
Þorsteinsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrirhugað hótel í Brautarholti 10-
14 í Reykjavík mun heita Eyja
Guldsmeden og verður það rekið í
samstarfi við dönsku hótelkeðjuna
Guldsmeden hotels. Stefnt er að
opnun hótelsins í maí.
Linda Jóhannsdóttir, annar eig-
enda Luna Hotel Apartments, segir
reksturinn munu
verða í eigu henn-
ar og eiginmanns
hennar, Ellerts
Finnbogasonar,
sem er jafnframt
meðeigandi Luna
Hotel Apart-
ments. Um sé að
ræða sérleyfi til
reksturs hótels í
Reykjavík undir
merkjum
Guldsmeden hotels-keðjunnar. Alls
verða 65 herbergi á hótelinu í Braut-
arholti.
Hrifust af dönsku hóteli
Linda segir þau Ellert hafa fyrst
gist á Guldsmeden-hóteli í Dan-
mörku árið 2009. Þau hafi þá hrifist
af áherslu hótelsins á sjálfbærni og
vistvernd. „Þegar við fengum tæki-
færi til að leigja Brautarholtið og
búa til hótel fengum við strax þá
hugmynd að fara út í svipaðan rekst-
ur og Guldsmeden-hótelið. Við
ákváðum að hótelið skyldi heita
Eyja og vera með lífrænar
áherslur,“ segir Linda.
Hún segir þessa áherslu munu
koma fram í því að Eyja Guldsme-
den-hótelið muni bjóða upp á líf-
rænan morgunmat og hádegismat.
Þá verði kappkostað að nota líf-
rænar vörur, t.d. hreinlætisvörur.
Félagið B12 ehf., sem er í eigu
Mannverks, leigir húseignina til
rekstrarfélags þeirra hjóna. Mann-
verk sér jafnframt um að breyta
skrifstofuhúsnæðinu í hótel.
Stofnuðu fyrirtækið 2003
Linda og Ellert stofnuðu Luna
Hotel Apartments árið 2003 og hef-
ur rekstrinum vaxið fiskur um
hrygg. Félagið er nú með 19 íbúðir
til leigu í miðborginni. Sá rekstur
verður aðskilinn rekstri hótelsins.
Linda segir mikla samkeppni í út-
leigu hótelíbúða í miðborginni.
Þau hjónin gerðu samning við
Mannverk um leigu hússins í vor og
voru samningar við Danina undirrit-
aðir í sumar. Ytra útlit hússins mun
taka óverulegum breytingum, en
mörgu hins vegar breytt innandyra.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Brautarholt 10-14 Hótelið verður vel staðsett, enda steinsnar frá Hlemmi.
Opna vistvænt
hótel í borginni
Verður hluti af danskri hótelkeðju
Linda
Jóhannsdóttir