Morgunblaðið - 01.12.2015, Síða 14

Morgunblaðið - 01.12.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015 Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 www.kemi.is - kemi@kemi.is • Almennur handhreinsir sem byggir á náttúru- legum efnum. • Virkar jafnt með vatni og án. • Engin jarðolíuefni eru notuð. • Inniheldur aloa vera, jojoba olíu og lanolin til að mýkja húðina. • Virkar vel á olíu, feiti, blek, jarðveg, epoxy og lím. • Inniheldur fín malaðan sand til að hreinsa betur. Gengur illa að þrífa smurolíuna af höndunum? Eru lófarnir þurrir og rispaðir? Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þörf er á aðgerðum á eldsneyt- ismarkaðinum til að bæta hag al- mennings að mati Samkeppniseft- irlitsins, sem hefur komist að þeirri niðurstöðu að íslenskir neytendur hafi í fyrra greitt 4-4,5 milljarða kr. með virðisaukaskatti meira fyrir eldsneyti en ef virk samkeppni hefði ríkt í sölu bifreiðaeldsneytis. Þetta kemur fram í frumniðurstöðum markaðsrannsóknar Samkeppniseft- irlitsins á eldsneytismarkaði sem birt var í gær. Niðurstaða þessa frummats er að á eldsneytismarkaðnum sé að finna að- stæður og háttsemi sem raska sam- keppni almenningi til tjóns. Þar segir að á þessu stigi rannsóknarinnar sé það mat eftirlitsins að þörf sé á íhlut- un til að stuðla að aukinni samkeppni og með því bæta hag almennings. Verð á eldsneyti fyrir bifreiðar sé hærra hér á landi en í flestum öðrum vestrænum ríkjum og er munurinn sagður það mikill að hann verði ekki útskýrður með smæð markaðarins eða auknum kostnaði vegna sölu eldsneytisins hérlendis, legu landsins eða veðurfari. ,,Þá sýnir rannsókn Samkeppn- iseftirlitsins að álagning á bifreiða- eldsneyti í smásölu á Íslandi er hærri en búast mætti við, jafnvel þegar gert er ráð fyrir heildsöluálagningu félaganna sjálfra, smásöluálagningu sjálfstæðra smásala í Bretlandi og raunkostnaði félaganna við kaup, innflutning, birgðahald og dreifingu. Álagning á aðrar eldsneytistegundir virðist hins vegar benda til meiri samkeppni á milli olíufélaganna,“ segir í ágripi yfir meginniðurstöður skýrslunnar sem er nálægt 300 bls. að stærð. Verðið fylgir betur hækkun inn- kaupsverðs en lækkun Fram kemur að sterkar vísbend- ingar séu um það á markaðnum fyrir smásölu bifreiðaeldsneytis að olíufé- lögin samhæfi hegðun sína með ,,þegjandi samhæfingu“ eins og það er orðað. Tekið er fram að samhæf- ing sem verður til án beinna eða óbeinna samskipta keppinauta sé skaðleg en ekki ólögmæt. Vísbendingar um samhæfinguna eru sagðar sjást m.a. í því að verð og álagning á bifreiðaeldsneyti, án skatta og annarra opinberra gjalda, séu há í samanburði við önnur ríki þrátt fyrir að tekið hafi verið tillit til markaðsaðstæðna og afslátta. „Jafn- framt benda greiningar til þess að verð á bifreiðaeldsneyti fylgi betur hækkun innkaupsverðs en lækkun. Þá virðast verðbreytingar vera leidd- ar af tilteknum aðilum á bifreiðaelds- neytismarkaðnum, mjög litlar sveifl- ur eru á markaðshlutdeild og álagningu í sölu bifreiðaeldsneytis í samanburði við eldsneyti sem aðeins er selt fyrirtækjum, stöðugleiki virð- ist ríkja um verðákvarðanir olíufélag- anna og þættir sem að öllu jöfnu hafa áhrif á verð á mörkuðum þar sem samkeppni ríkir (s.s. fjöldi keppi- nauta, mismikill kostnaður vegna birgðahalds- og dreifingar) gera það ekki á markaðnum fyrir bifreiðaelds- neyti.“ Tekið er fram að vísbendingar séu hins vegar um að samkeppni sé virk- ari í sölu til stórnotenda á eldsneyti. Útiloki nýja keppinauta Bent er á að olíufélögin og tengd fyrrtæki starfi á öllum stigum olíu- markaðarins, innflutningi, birgða- haldi, heildsölu og smásölu og þau hafi hvata og getu til þess að útiloka nýja keppinauta með því að neita þeim um eldsneyti í heildsölu eða að- gang að birgðarými. Þá séu vísbendingar um að félög hafi nýtt sér birgðarými á tilteknum stöðum til að hindra innkomu keppi- nauta. Tjón neytenda 4-4½ milljarðar  Sterkar vísbendingar um „þegjandi samhæfingu“ olíufélaga á smásölumarkaði bifreiðaeldsneytis að mati Samkeppniseftirlitsins  Álagning sögð gefa vísbendingu um takmarkaða samkeppni Morgunblaðið/Golli Dælt á tankinn Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins segir að verð á bílaeldsneyti sé hærra hér á landi en í flestum öðr- um vestrænum ríkjum. Munurinn verði ekki skýrður með smæð markaðarins eða auknum kostnaði vegna sölu hér. Ætla má að mati höfunda frummats- skýrslu Samkeppniseftirlitsins að ís- lenskir neytendur og fyrirtæki hafi á árunum 2005-2014 greitt á bilinu 16- 27 milljörðum (21-34 milljörðum króna með virðisaukaskatti) meira fyrir bifreiðaeldsneyti en ætla mætti ef virk samkeppni hefði ríkt í sölu bifreiðaeldsneytis. Samanburður fyrir árabilið 2005 til 2012 leiðir í ljós að á því tímabili hækkaði innkaupsverð bensíns í ís- lenskum krónum um 136% og dísil- olíu um 88% en opinber gjöld og skattar um 7% á bensín og 15% á dís- ilolíu. Er talið að álagning hafi hækk- að á fyrrgreindum tímabilum í tilfelli dísilolíu um 56% og í tilfelli bensíns um 13%. Vakin er athygli á því þegar horft er á álagningu olíufélaganna að hún var hærri fyrir bensín á árunum 2010-2014 en 1996-2000, þegar félög- in höfðu með sér ólögmætt samráð. Hins vegar hefur hún lækkað í tilfelli svartolíu frá því á tíunda áratugnum. ,,Álagning bensíns hefur hækkað nánast stöðugt frá árinu 1996 til árs- ins 2014 en hún var 8% hærri á ára- bilinu 2010-2014 en 1996-2000. Und- anskilin eru þó árin 2003 til 2005 en þá lækkar álagningin,“ segir þar. Morgunblaðið/Ómar Bifreiðar Sérfræðingar Samkeppniseftirlitsins telja að álagning á hvern bensínlítra sé óeðlilega há eða allt að 18 krónur með virðisaukaskatti. 16-27 milljarðar vegna fákeppni  Álagning 8% hærri 2010-’14 en ’96-2000 Eignatengsl geta leitt til rösk- unar á samkeppni að því er segir í skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Fram kemur að 52% eigenda Skeljungs eiga 24% hlut í N1. Það eru einkum Gildi lífeyr- issjóður og Lífeyrissjóður starfs- manna ríksins sem eiga stóran hlut í Skeljungi og N1. „Eignarhald Gildis og LSR í Skeljungi og N1 dregur því úr hvata Skeljungs og N1 til þess að keppa á eldsneytismarkaðnum og auðveldar samhæfða hegðun á markaðnum,“ segir í skýrsl- unni. LSR er annar stærsti hlut- hafinn í báðum olíufélögunum og Gildi er jafnframt þriðji stærsti hluthafinn í báðum. Geta haft skaðleg áhrif EIGNATENGSL OLÍUFÉLAGA Álagning olíufélaganna á hvern seldan lítra (bensín og svartolía) Álagning í krónum (vegið meðaltal án vsk. að teknu tilliti til afslátta) olíufélaganna á hvern lítra bensíns og svartolíu árin 1996-2014 (verðlag ársins 2014) 35 30 25 20 15 10 5 0 Heimild: samkeppniseftirlitið. Markaðsrannsókn á eldsneytismarkaðinum. 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 Svartolía Bensín

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.