Víkurfréttir - 17.11.1988, Síða 6
MlKUn
6 Fimmtudagur 17. nóvember 1988
\jutm
Sjálfsbjörg
verðlaunar
Geir Sverris
Sjálfsbjörg á Suðurnesjum
boðaði félagsmenn sína til
kaffisamsætis sl. laugardag.
Astæðan var sú að heiðra átti
Geir Sverrisson fyrir frækileg-
an árangur á Olympíuleikum
fatlaðra í Seoul nýverið, eins
og flestum ætti að vera kunn-
ugt.
Það kom í hlut Friðriks
Magnússonar, formanns
Sjálfsbjargar á Suðurnesjum,
að afhenda Geir heiðursskjal
og viðurkenningu fyrir
frammistöðuna úti. Sagði for-
maður að Geir Sverrisson
hefði haldið uppi merki félags-
ins, þó svo að hann hafi tekið
þátt í sundíþróttinni upp á eig-
ið eindæmi.
baðinnréttinga
Afgreiðslufresti;
2-3 dagar.
r
.dropinn
Hafnargötu 90
Sími 14790
Frá afhendingu heiðursskjalsins sl. laugardag. Formaður Sjálfsbjargar á Suðurnesjum, Friðrik
Magnússon, afhendir Geir viðurkenninguna. Milli þeirra stendur Sverrir Guðmundsson, faðir Geirs.
Ljósm.: hbb.
Sjúkrahúsið og Heilsugæslan:
EUROCARD
VISA
Er bíllinn með
ðSKUR og LÆTI?
Við höfum á lager, setjum
undir og smíðum
pústkerfi í allar
gerðir bifreiða.
Pústþjónusta
Biarkars^lMI-
Grófin 7 - Keflavík - Sími 13003
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs
Heilsugæslustöð Suðurnesja
OPIÐ HÚS
Sunnudaginn 20. nóv. 1988 kl. 14:00-17:00 verða Sjúkra-
húsið og Heilsugæslustöðin í Keflavík almenningi til sýnis.
Veittar verða upplýsingar um starfsemina og fyrirspurnum
svarað.
Suðurnesjabúar - komið og skoðið þessar stofnanir ykkar
og fræðist um leið um þá starfsemi sem þar er stunduð í ykk-
ar þágu.
Stjórn og starfsmenn S.K. og H.S.S.
Opið hús á
sunnudag
Stjórn og starfsmenn
Heilsugæslustöðvar Suður-
nesja og Sjúkrahúss Keflavík-
urlæknishéraðs bjóða öllum
íbúum á Suðurnesjum til þess
að koma og skoða stofnunina
nk. sunnudag milli kl. 14 og
17.
Verða upplýsingar um
sjúkrahúsið og heilsugæslu-
stöðina látnar hanga uppi á
göngum, auk þess sem hinar
ýmsu deildir verða til sýnis. Þá
verða einnig ljósmyndir af
starfseminni til sýnis og gefur
þar meðal annars að líta
myndir af fæðingu með keis-
araskurði.
Allar upplýsingar sem verða
frammi eru unnar af starfs-
mönnum stofnananna. Fólki
gefst kostur á að láta mæla
blóðþrýsting og fleira á meðan
á kynningunni stendur.
Starfsfólk SK og HSS skor-
ar á fólk að láta sjá sig og
skoða þessar stofnanir sínar
og sjá hvernig búið er að starf-
seminni og hvað fer fram inn-
an veggja.
Fegurðarsamkeppni Suðurnesja:
Verður haldin
í Glaumbergi
Fegurðarsamkeppni Suð-
urnesja 1989 verður haldin í
veitingahúsinu Glaumbergi
4. mars. Keppnin var haldin í
Glaumbergi sl. vetur og
tókst mjög vel.
Það má gera ráð fyrir því
að fólk verði í „fegurðarhug-
leiðingum" í kvöld þegar
sýnt verður frá keppninni
Ungfrú heimur 1988, þar
sem fulltrúi Islendinga,
Linda Pétursdóttir, er meðal
þátttakenda. Af því tilefni
eru Suðurnesjamenn hvattir
til að hringja inn með ábend-
ingar í Fegurðarsamkeppni
Suðurnesja 1989 í umsjónar-
menn keppninnar, þær
Agústu Jónsdóttur í síma
13564 eða Birnu Magnús-
dóttur í síma 91-37379. íbú-
ar í minni byggðarlögunum
eru hvattir til að láta ekki sitt
eftir liggja og koma sínum
fegurðardrottningum á
framfæri.