Víkurfréttir - 14.09.1989, Blaðsíða 1
). árgangur ______________________________________________________________________________Fimmtudagur 14. septemaer iubu
Innbrotsþjófur
gómaður
Lögreglan gómaði um
helgina innbrotsþjóf við iðju
sína í útibúi Kaupfélags Suð-
urnesja í Garði. Gerðist at-
burðurinn aðfaranótt laug-
ardagsins.
Urðu menn varir við
mannaferðir við kaupfélagið
og létu lögregluna og versl-
unarstjórann vita. Komu að-
ilar jafnt að útibúinu og opn-
aði verslunarstjórinn fýrir
lögreglunni. Þar inni var þá
innbrotsþjófur að setja á sig
þýfi úr búðinni.
Misfella á
gangstétt olli
handleggs-
brotum
Kona sem var að ganga
eftir gangstétt við Tjarnar-
götu í Keflavík, við inn-
keyrsluna að porti Nonna &
Bubba, síðasta fimmtudag,
varð fyrir því óhappi að
hnjóta um misfellu á stétt-
inni. Við það brotnaði hún á
báðum handleggjum.
Tveir á 150
km hraða
A mánudag í síðustu viku
stöðvaði lögreglan í Grinda-
vík ökumann bifhjóls fyrir
að aka á 153 km hraða á
Reykjanesbraut, við Grinda-
víkurveg. Síðdegis á sunnu-
dag stóð síðan lögreglan í
Keflavík ökumann að því að
aka á 148 km hraða á sömu
braut.
Voru báðir ökumennirnir
sviptir ökuréttindum á
staðnum til bráðabirgða.
BERJATÍNSLA Á BERGI. Myndina tók Auður Jónatansdóttir fvrir norrænu ljósmyndasamkeppnina. Fleiri myndir eru í mið-
opnu blaðsins í dag.
Hættulegt athæfi
við bensínstöð
Hættulegt athæfí átti sér
stað á plani bensínstöðvar-
innar í Garði síðasta fimmtu-
dagskvöld. Kveiktu ung-
menni þar mikið bál á plan-
inu og óku síðan á bifhjólum
(motorcross) í gegnum bálið.
Vegna anna hjá lögregl-
unni í Keflavík gat hún ekki
brugðist nógu fljótt við, en
engu að síður var einn dreng-
ur handtekinn en sleppt með
alvarlega áminningu. Það
sem gerði þetta saklausa bál
svona hættulegt var stað-
setningin við bensínstöðina.
Tókst lögreglunni að
slökkva mesta bálið áður en
slökkviliðið kom á vettvang
Heilbrigðisnefnd endurskoðar gestafjölda pöbbanna:
Eitt klósett fyrir
65 bjórgesti
Heilbrigðisnefnd Suður-
nesja hefur samþykkt endur-
skoðaðar reglur um hámarks
gestafjölda á þeim veitinga-
stöðum er selja bjór. Miðast
reglur þessar við að þar sem
aðeins er eitt salerni fyrir
hvort kyn megi gestafjöldi
aldrei fara yfir töluna 65.
Gildir þetta um Vitann, Sand-
gerði, og Hafurbjörninn,
Grindavík, að sögn Magnús-
ar Guðjónssonar heilbrigðis-
fulltrúa. Áður hefur sama
skilyrði verið sett fram varð-
andi Píanóbarinn.
Munu reglur þessar gilda
þar til nýjar reglur koma á
næsta ári fyrir landið allt, en
að sögn Magnúsar er talið að
þær verði enn strangari eða
miðaðar við 50 manns. Mun
viðkomandi veitingastöðum
verða gefinn einhver aðlög-
unartími að þessum nýju
reglum.
Lokar Fiskmarkaður
Suðurnesja um áramöt?
Þó í dag sé haldið upp á það á all mikla óvissu varðandi fiskmarkaði hér á landi. einhverjaframtíðfyrirsér. ef móðsson, stjórnarformann
að liðin eru tvö ár frá upphafí framtíð fyrirtækisins. Er það En hvernig skildi hafa lögin ná fram að ganga? Öll FMS, á síðu 6 í blaðinu í
fiskuppboða hjá Fiskmarkaði fyrst og fremst vegna þess að gengið að reka Fiskmarkað þessi mál eru tekin fyrir í ít- dag. 1
Suðurnesja, horfa menn fram um áramót renna út lögin um Suðurnesja og á sá staður arlegu viðtali við Loga Þor-