Víkurfréttir - 14.09.1989, Side 2
Fréttir
Vikurfréttir
14. sept. 1989
Okuleyfis-
svipting á
Garðvegi
Lögreglan í Keflavík tók
ökumann fyrir að aka á 133
km hraða á þriðjudag um
kvöldmatarleytið. Átti þetta
sér stað á Garð’vegi rétt fyrir
utan Keflavík. Varökumað-
urinn þegar sviptur ökurétt-
indum.
Rólegt í Grindavík
Siðasta vika var með ró-
legasta móti hjá lögreglunni í
Grindavík. Einungis einn
var stöðvaður með Bakkus
undir stýri.
Björn
Finnbogason
látinn
Heiðursborgari Gerða-
hrepps, Björn Finnbogason,
Gerðavegi 1, Garði, lést á
Sjúkrahúsi Keflavíkurlækn-
ishéraðs í gærmorgun. Björn
var á 87. aldursári.
Eftirlifandi maki Björns er
Auður Tryggvadóttir.
í eigu íslcnskra Aðalverktaka eru vélar til að leggja út steypu t.d. á Kefla-
vikurvcginn. Sú vél þeirra sem nú er vcrið að nota í tilraunaskyni ofan við
Hafnarfjörð, er nokkuð stærri en þessi. Ljósm.: pket.
Reykjanesbraut frá Ramma að Kúagerði:
Verður fræst
á næsta ári
„Það sem við höfum gert fyr-
ir Reykjanesbrautina á þessu
ári er að við höfum lagt axlir frá
Kúagerði í Hafnarfjörð og frá
Ramma að Grænási. Þetta er til
bóta fyrir ökumenn sem missa
bíla út fyrir veg og kippa þeim
inn á brautina aftur,“ sagði
Rögnvaldur Jónsson, umdæm-
isstjóri hjá Vegagerð ríkisins, í
samtali við biaðið, er hann var
spurður um úrbætur á Reykja-
nesbraut.
„Við komum til með að
merkja Reykjanesbrautina í
vetur með skiltum sem gefa til
kynna að hált sé í bleytu. Á
næsta ári verðum við að gera
eitthvað. Þá er hugmyndin að
fræsa brautina frá Ramma að
Kúagerði."
-Þolir steypuplatan aukna
frœsingu?
„Hjólförin í brautinni núna
eru frá 18-33 millimetrar, en
meðaldýpt þeirra er 24 milli-
metrar. Við megum ekki
þynna plötuna mikið meira en
hugmyndin er að fræsa 10
millimetra, sem ætti að duga
næstu 3-4 árin og fleyta mesta
vatnsmagninu af brautinni.
Eftir þann tírrra verðum við að
gera eitthvað alvarlegt í mál-
inu.“
-Er mikið mál að leggja slit-
lag ofan á brautina?
„Það er ekkert mál að leggja
ofan á steypuna. Við erum nú
að gera tilraunir með efni á
vegkafla ofan við Hafnarfjörð
með efni sem þola eiga betur
naglaslit. Einnig erum við að
gera tilraunir með steypt slit-
lag, en niðurstöðurnar úr þess-
um tilraunum koma ekki í ljós
strax,“ sagði Rögnvaldur
Jónsson að lokum.
Gífurleg uppbygging
Samhliða uppsetningu á
ORMAT-virkjuninni í
Svartsengi, eða strompgufu-
virkjuninni, hefur átt sér stað
gífurleg uppbygging á að-
veitu- og dreifikerfinu er
miðast öll að því að geta skil-
að með öruggum hætti þeirri
orku sem til staðar er.
Um er að ræða byggingu
rofastöðvar, aðveitustöðva,
háspennulína og hinar ýmsu
tengingar. Þá er hafinn und-
irbúningur að nýrri 132 kv
háspennulínu frá afhending-
arstað Landsvirkjunar sunn-
an Hafnarfjarðar og á sú lína
að verða tilbúináárinu 1991.
Frá því að HS tók við raf-
orkudreifingunni á svæðinu í
október 1985 hefur verið
fjárfest fyrir 140 milljónir
króna á núvirði í dreifikerf-
um rafmagns og um 60
milljónir króna í gatnalýs-
ingu. Þærframkvæmdir,sem
lokið er við, kostuðu um
363,5 milljónir króna á nú-
virði ojg ORMAT-virkjunin
296 milljónir króna á nú-
virði.
Mannbjörg í Sandgerði
Björgunarsveitin Sigurvon
í Sandgerði var kölluð út
vegna strands Qögurra tonna
trillu, Ásdísar IS 130, neðan
við fiskimjölsverksmiðjuna
i Sandgerði um kl. 2 aðfara-
nótt laugardagsins. Tókst
Sigurvonarmönnum að
bjarga manninum sem var um
borð yfir í björgunarbátinn
Sæbjörgu án þess að honum
yrði meint af.
Um áttaleytið um morg-
uninn tókst þeim síðan að
draga hinn strandaða bát út
og komu þeir með hann að
bryggju í Sandgerði á tíunda
tímanum. Þegar báturinn
strandaði var hann á leið frá
Þorlákshöfn til Hríseyjar en
bátsverjinn mun trúlegaekki
hafa þekkt aðstæður við
Sandgerði nægjanlega vel og
því fór sem fór.
Er komið var með bátinn
að bryggju fóru froskmenn
og skoðuðu botn bátsins og
kom í ljós að hann var
óskemmdur með öllu.
Asdís ÍS 130 komin í Sandgerðishöfn.
Ljósm.: epj.
r
Síðasti leikur IBK í sumar og sá mikilvægasti
IBK-KA
á Keflavíkurvelli laugar-
daginn 16. sept. kl. 14.
1. deildar sæti er í húfi. Suðurnesja-
menn - fjölmennum og styðjum
ÍBK í baráttunni.
^áf
11 uiii'niiiijsjp;j'ijj ......—n,m
Ver Þorsteinn víti á laugardaginn eða skorar Kjartan
gegn KA-mönnum....?
VATRYGGINGAFELAG ISLANDS HF.
Hafnargötu 58 - Keflavík - Sími 14880
stæksta FRgraA-QG AUGLÝsiNGABiAÐiÐ A SUÐUHNESJUM Útgefandi: Víkurfréttir hf.
Afgreiösla, rítstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, simar 14717,15717, Box 125, 230Keflavík. - Ritstjórn: Emil Páll
Jónsson, heimas. 12677, bilas. 985-25916, Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985-25917. - Fréttadeild: Emil Páll
Jónsson, Hilmar Bragi Bárðarson. - Auglýsingadelld: Páll Ketilsson. - Upplag: 5500 eintök, sem dreift er ókeypis
um öll Suöurnes. - Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annaö er óheimilt nema heimildar sé getiö.
Setning, fílmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF.. Keflavik