Víkurfréttir - 14.09.1989, Blaðsíða 3
F-
4-
Fréttir
Víkurfréttir
14.sept. 1989
Banaslys á Hafnavegi:
33 ára kona lést
Þrjátíu og þriggja ára göm-
ul kona úr Reykjavík lést af
völdum umferðarslyss á
Hafnavegi síðdegis á mánu-
dag. Tilkynning barst um
slysið um kl. 17.20 en það
varð um 400 metrum frá
gatnamótum Hafnavegar og
vegarins að aðalhliði Kefla-
víkurflugvallar.
Var konan ein í bifreiðinni
og á leið frá Höfnum í átt að
Reykjanesbraut. Er bíllinn
var kominn á beina kaflann
neðan malbikunarstöðvar
verktaka mun hann hafa far-
ið út af veginum, þar sem
hæð hans er um einn metri.
Að sögn vitna fór bíllinn
tvær veltur vinstra megin við
veginn.
Þegar að var komið fannst
konan í margra metra fjar-
lægð frá bílnum, þar sem hún
hafði kastast út úr honum.
Var hún þá meðvitundar-
laus. Var hún þegar flutt á
sjúkrahúsið í Keflavík og
þaðan á sjúkrahús í Reykja-
vík, þar sem hún lést um
nóttina.
Bifreiðin er illa farin eftir slys þetta.
Ljósm.: hbb
Smurolía lak út
var aðstoð frá slökkviliði Brunavarna Suðurnesja
hjá Aðalstöðinni.
Smurstöð ASK:
við að hreinsa
Ljósm.: epj.
Er verið var að dæla smur-
olíu milli tanka hjá Aðalstöð-
inni á föstudagskvöld vildi
það óhapp til að tankur, sem
verið var að dæla í, yflrfylltist
og smurolía komst út á bíla-
planið framan við smurstöð-
ina.
Þó ekki væri um mikið
magn að ræða smitaðist hún
fljótlega um nokkurt svæði,
auk þess sem hún festi sig við
olíumölina á yfirborði plans-
ins.
Var aðstoð fengin frá
slökkviliði Brunavarna Suð-
urnesja við að hreinsa planið,
bæði með vatni og hreinsi-
efni. Umrædd smurolía kem-
ur af vélum bíla sem koma til
smurningar og fer hún inn á
tank sem er í gólfinu. Á
ákveðnum fresti er síðan
dælt af þeim tanki og yfir í
útitank og var einmitt verið
að gera það er óhappið átti
sér stað.
Föstudagskvöld:
Alli og Jón í dúndur
diskóstuði. Dansarar
fró Auði Haralds
frumsýna Lambada
dansinn sem fer sigur-
för um alla Evrópu.
Aldurstakmark 18 ór.
Miðaverð 800 kr.
Laugardagskvöld:
Rokkabillíband Reykjavíkur með Bjarna Ara
sem gestasöngvara. Jói og Man'a sýna rokk-
dans og endurtaka Lambada dansinn rosalega.
Þau verða leiðbeinendur hjá Dansskóla Auðar
Haralds í vetur og kenna þessa dansa. 20 ára
Sjávargullið
Síðustu helgi var upp-
selt. Pantið því borð
tímanlega. Meirihátt-
ar matsölustaður.
aldurstakmark. 800 kr. aðgangseyrir.
NÝIT - NÝTT - NÝTT - NÝTT - NÝTT
LAMBADA
Nýr dans sem fer eins og eldur um sinu um alla Evrópu.
Dans sem allir geta lært ásamt mambó og salsa.
Eitthvað fyrir þá sem þora! ^
Innrítun í símum 656522, 31360 og 92-13030 to\\
Kennum einnig: frá kl. 13-19. °9 ^«áoat'Stösv'><Va*f- •
Samkvæmisdansa a va<<''0Oaos®<atvJ **
Diskó-, jazz- og funkdansa c.^^e\9'''?eSsa sVt°
Rock’n'Roii P
Gömludansana y\a<® natð»3s
Barnadansa o9'
Meðlimir i F.Í.D., D.l' OG I.C.B.D.
Lærðir kennarar, betri árangur
[)\\SS