Víkurfréttir - 14.09.1989, Qupperneq 7
Fréttir
Garður:
Lionsmenn
selja
perur
Á morgun, föstudag,
munu Lionsmenn úr Lions-
klúbbnum Garði ganga í hús
í sveitarfélaginu og bjóða
fólki ljósaperur til kaups,
Er þetta liður í fjáröflun
klúbbsins og mun ágóði af
sölunni renna til líknarmála.
Eru Garðmenn hvattir til að
taka vel á móti sölumönnun-
um.
Ökumaður stöðvaður:
Undir áhrifum
fíkniefna og
með byssu
Lögreglan í Keflavík stöðv-
aði aðfaranótt sunnudagsins
ökumann sem lyktaði af hass-
þef. Var hann þegar færður á
lögreglustöðina og við nánari
leit á manninum fundust
nokkur grömm af hassi.
Þá var mikið af veiðitækj-
um í bílnum m.a. hagla-
byssa. Var það allt gert upp-
tækt. Jafnframt er maðurinn
grunaður um meint fíkni-
efnaáhrif við akstur. Málið
er í rannsókn. N
Auk þessa voru tveir öku-
menn teknir um síðustu helgi
fyrir grun um meinta ölvun
við akstur. Mikill erill var hjá
lögreglunni m.a. sökum ölv-
unarástands fólks.
Fiskeldi Grindavíkur:
..Ánægöir með
fiskfríið
í lóninu“
„Þetta hefur gengið mjög
vel og veiðimennirnir eru
mjög ánægðir með fiskiríið í
lóninu,“ sagði Bjarni Andrés-
son hjá Fiskeldi Grindavíkur í
samtali við blaðið. Fiskeldis-
stöðin hefur ? sumar boðið
stangveiðifólki upp á veiðar í
lóni, sem staðsett er Grinda-
víkurmegin við eldisstöðina.
„Það er fullbókað hjá okk-
ur 4-5 daga í viku og alltaf
einhverjir að veiðum í lón-
inu.“
-Er þeita mikill afH?
' ,,Að meðaltali koma
svona 3-4 fiskar á stöng yfir
daginn. Þegar er búið að
sleppa 1300fiskumílóniðog
þar af hafa veiðst 800 fiskar.
Það hefur ekki verið alltof
mikil sól í sumar en þeim
mun betra fiskiveður," sagði
Bjarni Andrésson hjá Fisk-
eldi Grihdavíkur að end-
ingu.
Fyrirtæki
__________7
Víkurfréttir
14.sept. 1989
Hafdís Friðriksdóttir, eigandi tískuverslunarinnar Kikk.
Ný tískuvöruverslun
við Hafnargötu
Ný verslun með tískufatn-
að opnaði við Hafnargötu í
Keflavík um mánaðamót.
Kikk heitir verslunin og eig-
andi hennar er Hafdís Frið-
riksdóttir.
Hafdís sagði í samtali við
blaðið að allur fatnaður
verslunarinnar væri innflutt-
ur frá Hollandi og væri þetta
fatnaður fyrir dömur og
herra á öllum aldri.
Áður en Hafdís opnaði
Kikk rak hún verslunina
Traffic. Því spyrjum við: Er
enginn samdráttur í tísku-
verslun í dag?
„Það er alltaf eitthvað að
gera, en þetta er bara eins og
gengur og gerist,“ sagði Haf-
dís Friðriksdóttir, verslunar-
eigandi, að endingu.
HAFNARGATA 17 - 230 KEFLAVÍK - SÍMI 13811
United Colors Of Benetton
L’OCCHIAUÍ
Benetton gleraugnaumgjarðir
GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR
íslandslax:
Greiðslustöðvun
framlengd
Skiptaráðandinn í Grinda-
vík hefur framlengt greiðslu-
stöðvun Islandslax h.f. við
Grindavík um tvo mánuði.
Áður hafði fyrirtækið fengið
þriggja mánaða greiðslu-
stöðvun 8. júní sl.
Nema heildarskuldirfyrir-
tækisins 852 milljónum
króna en hugsanlegt er að
eigendur fyrirtækisins taki á
sig 200 milljónir af upphæð
þessari. Gangi það upp eru
menn bjartsýnir á að takast
muni að bjarga fyrirtækinu
frá gjaldþroti.
Þá hefur bandarískur aðili
sýnt áhuga á að koma inn í
fyrirtækið en það er í dag að
51% í eigu Sambandsins og
49% í eigu norskra aðila.
AUGLÝSINGASÍMAR VÍKURFRÉTTA
ERU 14717, 15717.
Öll almenn gröfuvinna
Snjómokstur - Vörubíll
Gröfuþjónusta
Ðaldurs Árnasonar
Holtsgötu 6 - 245 Sandgerði -
Simi 37607
HELGARMATSEÐILLINN
Glæsilegur sér-
réttamatseðill'
Rjómalöguð
sjávarréttasúpa
\
Heilsteiktur nauta-
og svínahryggur
1770 kr.
Restaurant
Jói Klöru leikur fyrir matargesti
íöstudags- og laugardagskvöld
TÖKUM AÐ OKKUR
fundi, afmæli, veislur og
mannfagnaði. Glæsilegur
salur. Pantið í tírna.