Víkurfréttir - 14.09.1989, Side 8
8
A matseðli helgarinnar
- Villigæs í rjómaberjasósu.
- Hreindýrasteik Baden-Baden með ristaðri
peru og rifsberjahlaupi.
- STEIKAR-BARINN fyrir alla fjölskylduna,
sunnudagskvöld. Aðeins kr. 1290 pr. mann.
- Þú tekur því rólega á neðri hæðinni ogskellir
þér svo upp á efri hæðina í góða stemningu
með Skyttunum.
Er veisla eða
hádegisfundur
í vændum?
-eða bara afmæli?
Hvernig væri að athuga með
Glóðina? Við getum tekið að okkur
allt frá 10-15 manna hádegisverðar-
fundum til 120 manna ættarmóta eða
árshátíða.
Leitið nánari upplýsinga í síma 11777.
NÁMSKEIÐ
verður haldið fyrir þær sem hafa áhuga á að
gerast málfreyjur. Námskeiðið mun fara
fram á tímabilinu 18. til 28. sept. ’89.
Skráning og upplýsingar í síma 12872.
MÁLFREYJUR Á ÍSLANDI
Málfreyjudeildin Varðan
mdar-
B| grín ■ gagnrýni
•^•vangaveltur-
umsjón:*emil páll.**|
Vill hann ekki Leifs-
stöð til Reykjavíkur?
Birgir Þorgilsson, ferða-
málastjóri, hefur lagt til að
Flugráð breyti nafni Kefla-
víkurflugvallar í Flugvöli
Leifs Eiríkssonar. En hvers
vegna? Jú, ástæðan er sú að
það fer fyrir brjóstið á hon-
um að sagt er að lent verði í
Keflavík, þegar komið er til
landsins, en með breyting-
unni yrði talað um Reykja-
vík með lendingu eða flug-
taki frá Flugvelli Leifs Ei-
ríkssonar. Skildi maðurinn
aldrei hafa ferðast erlendis
og séð að það stendur yfir-
leitt Reykjavík fyrir ísland í
erlendum flughöfnum?Ann-
ars er vandséð hvernig hægt
er að tala um lendingu í
Reykjavík, nema Birgir leggi
til að Leifsstöð og flugvöllur-
inn verði flutt til Reykjavík-
ur!
Hvað er varnar-
liðið að reyna?
Nú ætlar varnarliðið að
fara að bjóða út rekstur olíu-
hafnarinanr í Helguvík.
Sjálfsagt er þetta vegna
kunnáttuleysis, en eftir að
hafa lesið 5. málsgrein í 2.
kafla samnings frá 1983 milli
Keflavíkurkaupstaðar og
utanríkisráðuneytisins, þá
hljóta hernaðaryfirvöld að
sjá að útboð gengur ekki.
Enda stíft ákvæði um að af-
greiðsla í höfninni eigi að
vera eins og var í Keflavíkur-
höfn. Það er kannski sama
þarna og með gjaldtökuna af
uppskipuninni. Sé svo þarf
að gera hernum það skiljan-
legt að þeim kemur þetta
hreint ekkert við.
Skiptilykill og
sterkir menn
Þó það sé kannski að bera í
bakkafullan lækinn að ræða
meira um það „kaos“ sem
átti sér stað, er tvær bifreiðar
lentu út af Reykjanesbraut
næst síðasta sunnudag, þá
virðist margt sem tengist því
óhappi fara fyrir brjóstið á
mönnum. Eitt þeirra atriða
eru frásagnir ýmissa fjöl-
miðla um klippur eða önnur
björgunartæki sem notuð
voru við að ná fólki út úr
annari bifreiðinni. Þeir sem
komu á staðinn vita að
hvorki klippur né sérútbúin
björgunartæki komu þar
nærri, heldur einungis sterk-
ir lögreglumenn, sjúkra-
flutningsmenn, læknar og
aðrir er komu þar að. Að vísu
notuðu þeir skiptilykil til að
ná hurð af hjörum en annað
ekki, nema hinn mannlega
kraft.
Varðstjórabrölt hjá
Keflavíkurlögreglunni
Fregnir berast nú af því að
breytingar séu að taka gildi
varðandi stöður varðstjóra
og aðstoðarvarðstjóra hjá
lögreglunni í Keflavík. Pálmi
Aðalbjörnsson, sem verið
hefur í launalausu ársfríi, er
að koma inn á ný sem varð-
stjóri. Við það færist Gunnar
Vilbergsson úr stöðu varð-
stjóra 1 stöðu aðstoðarvarð-
stjóra og Þórður Kjartans-
son hverfur til náms.
Hvar voru
þingmennirnir?...
Þrátt fyrir að föstudagur-
inn hafi markað mikil tíma-
mót í sögu Suðurnesja-
manna, þ.e. þegar Ormat-
virkjunin 1 Svartsengi var
formlega tekin í notkun, fór
Yikurfréttir
14. sept. 1989
lítið fyrir þingmönnum þessa
svæðis. Aðeins tveir mættu á
staðinn, Jóhann Einvarðs-
son og Hreggviður Jónsson.
Hvar hinir voru vita Molar
ekki, en sjálfsagt hafa þeir
verið uppteknir, við skulum
a.m.k. vona að svo hafi ver-
ið. Aðeins bárust þó fréttir í
þá veru frá tveimur þeirra,
þeir Karli Steinari og Geir
Gunnarssyni.
...eða sveitar-
stjórnamenn?
Mæting sveitarstjórna-
manna af Suðurnesjum var
lítið betri. Best var hún frá
Grindavík enda stutt að fara,
en þó var þar ekki um 100%
mætingu að ræða. Einnig
nokkuð góð úr Njarðvík, en
þó vantaði þar þrjá menn. U r
Keflavík mætti íhaldið ekki
og Jón Oli var eini kratinn.
Frá Sandgerði var það aðeins
oddvitinn og sveitarstjórinn
sem mættu. Ur Vogum
aðeins stjórnarformaður HS,
sem er oddviti staðarins,
ásamt sveitarstjóranum. Ur
Höfnum mættu aðeins
stjórnarmaðurinn í HS og
varamaður hans. Frá Garði
mætti sveitarstjóri og tveir
kjörnir fulltrúar, aðrir ekku
Hafi heimamenn ekki meiri
áhuga fyrir slíku stórmáli er
vart hægt að krefjast mæt-
ingar þingmanna, eða hvað?
Jón Dr. Borgarsson
Það væri mun meira gam-
an að lifa hér í þessu landi ef
allir tækju jafn létt nafngift
sem gárungarnir hafa gefið
Jóni Borgarssyni í Höfnum
og hann sjálfur. Vegna frá-
sagnar af björgun ankeris á
dögunum og síðan yfirlýs-
ingar hans, sem hann nefndi
Drekayfirlýsingu, hefur
hann nú fengið viðurnefnið
Jón Dreki Borgarsson og
hefur sjálfur gaman af.
Félagsmál
Hér er hópurinn að leggja land undir fót frá Leifsstöð fyrir tæpuni hálfum mánuði.Ljósm.: Hpé/Grindav.
Þroskaheftir f Þýskalandi
Þrettán manna hópur á
vegum Þroskahjálpar á Suð-
urnesjum hefur undanfarinn
hálfan mánuð dvalið í sum-
arbúðum í Þýskalandi. Er
hópurinn væntanlegur
heim á morgun, föstudag.
Af þessum 13 eru 8 full-
orðnir fylgdarmenn. Nánar
verður greint frá för þessari
síðar.