Víkurfréttir - 14.09.1989, Qupperneq 10
10
Ferskur sjávarréttamatsölustaður
Opinn föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 18:30
Borðapantanir daglega í síma 14040
NÝTT: Bubbi og Mummi leika Ijúfa
dinnertónlist laugardagskvöld
Fróðleikur og fjölbreytt efni
í hverri viku.
Þú lest það í Víkurfréttum.
Félagsmál
Vikurfréttir
14. sept. 1989
Séð ínn í hinn nyja íþrottasal í Ketlavik.
Ljósm.: hbb.
Nýr íþróttasalur
á rúmu ári
- Rætt við Helga Hólm, formann byggingarnefndar
Nýverið var tekinn í notkun við íþróttahúsið í Keflavík nýr 650 m2
íþróttasalur fyrir tilstuðlan íþróttabandalags Keflavíkur. Hinn nýi
salur kostar fullbúinn 27,8 milljónir króna en hann er hugsaður
fyrir flestar íþróttagreinar. Það var Steinsmíði hf. í Njarðvík sem
sá um byggingu hússins og gólfefni, sem er samskonar og á stxrri
sai hússins, en það er frá hollenska fyrirtækinu Deskol.
En hvernig tókst að fjár-
magna þessa stóru byggingu?
Til að leita svara við því tókum
við formann byggingarnefnd-
ar, Helga Hólm, tali.
„Tekjum til byggingarinnar
hefur verið aflað með fjárfram-
lögum frá almenningi, lottó-
tekjum og framlagi frá Kefla-
víkurbæ. Keflavíkurbær veitti
í upphafi 14 milljónum til
byggingarinnar, sem greiðast á
fimm árum, en framlögin frá
almenningi námu um einni
milljón króna.“
-Nú er þetta dýrl mannvirki.
Hvernig tókst að byggja það á
rétt rúmu ári?
„Til þess að takast mætti að
klára bygginguna á þetta
skömmum tíma þá fékk
byggingarnefnd hússins lán
hjá Sparisjóðnum í Keflavík á
móti væntanlegu framlagi
Keflavíkurbæjar.
Til þess að standa straum af
greiðsíum afborgana og vaxta
næstu fjögur árin mun bygg-
ingarnefndin áfram vera með
ýmsar fjáraflanir," sagði
Helgi.
-Þannig að bygging hússins
er alls ekki í höfn?
„Síður en svo. Næstu tvö ár-
in þurfum við að greiða 10-11
milljónir hvort ár. Þar vegur
þyngst framlag bæjarins.
Þetta ævintýri hefði ekki
verið framkvæmanlegt á þenn-
an hátt ef ekki hefði komið til
þessi ágæta samvinna við
Keflavíkurbæ,“ sagði Helgi
Hólm, formaður byggingar-
nefndar, að endingu.
Heimilistæki fyrir 100 þúsund (eða meira)
Þú greiðir 5000 kr. mánaðarlega
Við lánum þér í 24 mánuði - Engin útborgun
! j © ©
j—m—
Þú færð hvergi betri kjör!
Komdu og verslaðu allan
„pakkann" í húsið
á greiðslukjörum
sem eiga sér
———, vart hlið-
stæðu.
NUDDSTOFA SOFFÍU
---Haustpakki—
---10 nuddtímar—
Nuddtíminn er...... 30 mín.
Innifalið sól ...... 30 mín.
Hvíld .............. 20 mín.
og bað
Verð kr. 10.000.-
Opið kl. 10-18 mánudaga, miðviku-
daga og föstudaga.
Opið kl. 13-21 þriðjudaga og fimmtu-
daga.
Símatími kl. 12-13 og 18-19 alla daga
nema föstudaga aðeins kl. 12-13.
NUDDSTOFA SOFFÍU
Hafnargötu 23, 2. hæð, sími 14337.
Mannlíf
11
Vikurfréttir
14. sept. 1989
Norræna Ijósmyndasamkeppnin:
Tæpar 200
myndir bárust
Tæpar 200 ljósmyndir
bárust í ljósmyndasam-
keppni sem háð var í Kefla-
vík áföstudag í samvinnu við
vinabæi Keflavíkur á Norð-
urlöndum. Hefur dóm-
nefndin, skipuð valinkunn-
um mönnum, nú valið 50
myndir úr þessum hópi sem
sendar verða á sýningu í
Trollhattan í Svíþjóð.
Þotuskíði:
Þeyst um á Keflavíkinni
Ungdómurinn lét ekki
veðrið um helgina aftra sér
frá því að þeysast um á
Keflavíkinni á þotuskíðum.
Þotuskíðaleiga ein, er hefur
starfsemi sína á höfuðborg-
arsvæðinu, brá sér bæjarleið
og bauð Keflvíkingum og
nærsveitungum að taka í
þessi undratæki á Keflavík-
inni.
Það er skemmst frá því að
segja að aðsóknin í þotuskíð-
in var mikil og lék fólk sér
langt fram í náttmyrkur við
það að þeysa eftir haffletin-
um.
Fjölbreytt í Frístund
Ótrúlegt úrval af
skólareiknitölvum
og úrum frá Casio.
Allt fyrir ljósmyndaáhugafólk
Myndavélar frá Canon,
Olympus, Chinon,
Ricoh, Yashica
og Panasonic.
Þrífætur og sjón-
aukar.
NINTENDO
sjónvarpsspil fyrir alla
aldurshópa.
Einnig leikjatölvur og
tölvuspil. Sjón er sögu
ríkari!
ALLAR NÝJUSTU MYNDIRNAR HJÁ
OKKUR í VHS OG BETA
1
□QDDPD '' \i
CHaC3C3CDCD h
□OODOO DODOQ aanon ooooo ÐBQE3Q ■
Holtsgötu 26, Njarðvík, sími 12002 - Hólmgarði 2, Keflavik, sími 15005
Leynisbraut 11, Garði, sími 27320
OPNUNARTÍMAR:
KEFLAVÍK:
Alla daga frá 10-23
Sunnudaga 13-23
NJARÐVÍK:
Alla daga frá 10-23
Laugardaga og sunnudaga
frá 13-23
GARÐUR:
Alla daga vikunnar
frá 20-23