Víkurfréttir - 14.09.1989, Page 12
12
BÍIAR&þjónusta
Yikurfréttir
14. sept. 1989
TOYOTfl r-Jíéítt-'
FOUR RUNNER:
Mikill jeppi
og lipur
bæjarbíll
Hinn nýi 4-Runner jeppi frá TOYOTA á bryggjunni í Keflavík.
Ljósm.: hbb.
Toyota-umboðið, en Hílasala
Brynleifs er með umboð fyrir það á
Suðurnesjum, er þessa dagana að
kynna nýja gerð af Toyota-jeppa.
Hér er um að ræða Toyota Four-
runncr, sem notið hefur mikiUa vin-
sælda um allan heim og hafa Islend-
ingar m.a. flutt þá inn notaða frá
Bandaríkjunum. Hér er bíllinn í
boði töluvert breyttur og átti undir-
ritaður þess kost að fá að reynslu-
aka honum cina kvöldstund.
Massívari og
og breytt útlit
Helstu breytingar á bílnum eru
þær, að nú er hann 4ra dyra, sem er
að mínu mati stór kostur, yfir-
bygging er úr stáli og finnst það
strax í akstri; hann erallur massív-
ari. Fjöðrunarbúnaði hefur verið
breytt þannig að bíllinn er nú með
gorma að aftan og fram. Ekki
eru driflokur að framan, heldur er
alsjálfvirk tenging framöxla þegar
sett er í framdrif, en það ætti ekki
að koma að sök, því drifskaft og
framdrifshluti millikassa snúast
ekki þegar bíll er í afturhjóladrifí.
Utlit bílsins er að öllu leyti breytt
og finnst mér vel hafa til tekist. Sú
gerð af Four-runner, sem er í boði
hér, er ríkulega búin aukahiutum,
m.a. með rafmagnsrúðum og -
speglum, central-hurðalæsingum,
miðstöð afturi, álfelgum og þá er
bíllinn með „krómpakka". Einnig
er hann fáanlegur með sóllúgu.
Frágangur bílsins er mjög góður í
heild og greinilegt að mikil vinna
hefur verið lögð i smáatriði. Þegar
sest er inn, þá tekur maður strax
eftir því hvað sætin eru þægileg.
Það fer vel um ökumann og far-
þega, bæði frammí og afturí, rúmt
er um höfuð og fætur fyrir „meðal-
Jóna“.
Góðir aksturs-
eiginleikar
Aksturseiginleikar eru góðir.
Vél er þýð og aflmikil enda 6 cyl.
150 din. hestöfl. Bíllinn er bein-
skiptur, 5 gíra, með léttri og lipri
skiptingu. Hann liggur mjög vel í
beygjum sem gerir hann lipran í
bæjarakstri. Til að reynsluaka
honum við misjafnar aðstæður, þá
keyrði ég út á Reykjanes og ók
honum greitt á mölinni og vorum
við, ég og samfylgdarmaður minn,
báðir sammála um að fjöðrunin
væri mjög góð og væri ekki ama-
legt að fara „hringinn" á þessum
bíl. Þegar við vorum komnir að
Sjóefnavinnslunni á Reykjanesi,
þá var jeppadellan komin upp í
manni og vorum við farnir að gjóa
augunum á brekkur sem voru þar í
kring. Nú var komið að því að setja
í lága drifið, en hlutfall í millikassa
er mjög gott eða H4/L4
1.00/2.566., en í brekkum þessum
kom enn betur í ljós hin góða
fjöðrun bílsins og þrátt fyrir mikið
ólag, þá sleppti hann aldrei hjóli
og byrjaði ekki að „hoppa" eins og
algengt er í jeppum við þessar að-
stæður. Eins virkaði vélin vel við
þessar aðstæður og hefur töluvert
„tork“ við lágan snúning, sem
gerði það að verkum að hægt var
að láta bílinn „labba“ í brekkun-
um.
I stuttu máli má segja að helstu
kostir séu mjög góð fjöðrun, þýð
og aflmikil vél, þægileg sæti,
stjórntæki vel staðsett og gott út-
sýni fyrir ökumann. Helstu ókost-
ir fannst mér vera stýrið, að svörun
þess væri ekki nógu nákvæm og
þegar greitt væri ekið þyrfti ár-
vekni ökumanns að vera mikil. En
þetta er eflaust hlutur sem venst
með notkun bílsins.
Jeppi og
lipur bæjarbíll
Eitt er víst, að kostir Four-
runner jeppans eru miklu fleiri en
gallarnir og hér er greinilega á ferð
bill sem á eftir að njóta mikilla vin-
sælda og ætti hann að geta uppfyllt
óskir þeirra sem vilja jeppa og
jafnframt lipran fjölskyldubíl.
S.R.
lýja Mazdan sýnd
um mánaðamótin
Bílasala Suðurnesja, um-
ðsaðili fyrir Bílaborg, sem
a. er með umboð fyrir
tzda-bifreiðar, kynnir um
stu mánaðamót þrjár nýjar
■ðir af Mazda 323. Um er að
ða 2ja, 4ra og 5 dyra útfærsl-
sem allar hafa gjörólíkt yf-
ragð. Helstu nýjungar eru
m.a. 16 ventla vél og allar
gerðir eru með vökvastýri. Ey-
vindur Ólafsson á Bílasölu
Suðurnesja sagði að tekist
hefði að ná óvenju hagstæðum
samningum við framleiðendur
og því væri mjög hagstætt verð
á bílunum.
LÁTTU EKKI 0F IVIIKINN HRAÐA VALDA ÞÉR SKAÐA
Ökuleikni ’88:
Keflvíkingur
í 2. sæti
Úrslit ökuleikni Bifreiða-
klúbbs Reykjavíkur og DV
fóru fram fyrirskömmu. Jó-
hannes Brynleifsson, Kefl-
víkingur, sem reyndar býr nú
í Þorlákshöfn, varð í 2. sæti
og fékk utanlandsferð að
launum. Þrír aðrir Suður-
nesjamenn tóku þátt í úrslit-
unum sem fóru_ fram í
Reykjavík. Valur Á. Gunn-
arsson varð í 25. sæti og Jón
Þorkelsson í 26. sæti af 50
keppendum í karlaflokki.
Fulltrúi kvenþjóðarinnar á
Suðurnesjum, Björg Þor-
kelsdóttir varð hins vegar að
sætta sig við botnsætið.
BÍLALEIGA
GÓÐIR BÍLAR - GOTT VERÐ
Hafnargötu 38 - Sími 13883
SKIPTING
GRÓFIN 19, 230 KEFLAVÍK, SÍMI 92-13773 -
• Almennar bílaviðgerðir
• Sjálfskiptingar
• SUN-vélastillingar
• Bremsuviðgerðir
Mikið urval af varahlutum:
• ( bremsukerfi
• í kveikjukerfi
• [ sjálfskiptingar
Hjöruliðskrossar og legur - Pakkdósir
Úrval smáhluta - þurrkublöð, viftureimar
o.fl.
DRÁTTARBILL
ALLTAF TIL TAKS.
Bílas. 985-23774
VerksL 13773