Víkurfréttir - 14.09.1989, Síða 14
14
Skólamál
Víkurfréttir
14. sept, 1989
SIGLINGAFRÆÐI
30 tonna próf. Námskeið hefjast í Keflavík
mánudaginn 18. september nk.
Þorsteinn Kristinsson
Sími 11609
Frá Tónlistarskóla
Miðneshrepps
Tónlistarskóli Miðneshrepps verður settur
sunnudaginn 17. sept. kl. 15 ígrunnskólan-
um. Nemendur mæti með stundatöflurnar
með sér.
Skólastjóri
Skylminganámskeið
Byrjenda- og framhaldsnámskeið í olymp-
ískum skylmingum hefjast mánudaginn 18.
sept. Nánari upplýsingar og skráning hjá
Óla í síma 11053.
Opið á laugardögum kl. 14 - 16.
Aðrir tímar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
Þingeyingar Suðurnesjum
Aðalfundur Þingeyingafélags Suðurnesja
verður haldinn laugardaginn 16. september
í K.K.-húsinu (uppi). Fundurinn hefst kl.
14 stundvíslega.
Venjuleg aðalfundarstörf. Vetrarstarfið
rætt.
Stjórnin
Stjórn verkamanna-
bústaða Hafnahrepps
auglýsir til umsóknar 3ja herbergja 75,2 m2
íbúð, sem hafin er bygging áog samkvæmt
verksamningi verður til afhendingar í
ágúst/sept. 1990.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
Hafnahrepps og skal þeim skilað á sama
stað eigi síðar en 30. sept. 1989.
Stjórn verkamannabústaða
í Hafnahreppi.
„Alls voru 90 nemendur í Tónlistarskólanum í Garði í fyrra og það er ekkert sem bendir til þess að skól-
inn nái ekki að sinna öllum þeim íbúum hreppsins sem liafa áliuga á tónlistarnámi í vetur". Ljósm.:hbb.
Tveir tónlistarskólar starfandi í Garði í vetur:
ígr un V ri ð
sl kól lan n ( ik tar“
- segir Sólveig Björk Gránz, formaður
Tónlistarfélags Gerðahrepps
Tveir tónlistarskólar verða starfræktir í Garðinum nú í vetur.
Eins og fram kom í auglýsingu í síðasta tölublaði Víkurfrétta hefur
Alma Elísabet Hansen stofnað einkatónlistarskóla fyrir Garð og
nágrenni. Þó verður áfram rekinn tónlistarskóli á vegum Tónlistar-
félags Gerðahrepps og sveitarfélagsins.
En hver er ástæðan fyrir því að tveir tónlistarskólar eru í ekki
stærra byggðarlagi? Til að fá svör við því leitaði blaðið svara hjá
Ölmu og Sólveigu Björk Gránz, formanni Tónlistarfélags Gerða-
hrepps. Gefum Ölmu fyrst orðið:
„Ætla að halda
minni hálfu stöðu“
„Ég hef aðeins haft hálfa
stöðu hér við Tónlistarskólann
í Garði, en það er lítil vinna og
lélega borguð. Hér er ég bú-
sett. Börnin hér eru alveg sér-
staklega dugleg, djörf og mjög
músikölsk og taka á öllu með
svo miklum krafti sem hefur
hrifið mig.
Það er ekki ætlun mín að
keppa við neinn og síst Tón-
listarskólann í Garði og það er
enginn kali út í þann skóla og
þar mun ég halda minni hálfu
stöðu. Skólinn er að vísu bara
útibú frá Keílavík. Það sam-
band finnst mér allt vera eitt-
hvað í lausum reipum og ég
skil ekki það samkrull. Né
hvers vegna skólinn er ekki
sjálfstæður."
„Vil ekki vera ólögleg“
-Hafa nemendur sótt mikið
til þín?
„Mjög margir væntanlegir
nemendur hafa leitað til mín
úr Sandgerði og Garði og einn
eða tveir úr Keflavík. Nem-
endur sem ekki hafa komist
inn í tónlistarskólana og þessa
nemendur vildi ég nú ekki
fyrst taka aðaiéren vegna þess
að ég vil ekki vera ólögleg eða
koma aftan að neinum þá vil
ég frekar stofna skóla eða úti-
bú sem er þá opinber stofn-
un.“
„Ætla ekki að leita
til hins opinbera“
-En ert þú ekkert hrœdd við
að það sé of mikið að hafa tvo
tónlistarskóla í ekki stœrra
byggðarlagi?
„Þetta er nú einkaskóli og
ég ætia mér nú ekki að leita til
hins opinbera um neitt. Miðað
við aðsóknina þá er annað
hvort kvótinn of lítill eða um-
ræddir nemendur hafa ekki
fengið inngöngu af ókunnum
ástæðum. Mér finnst að þessir
krakkar eigi fullan rétt á tón-
listarnámi þar sem kennsla er
niðurgreidd af almenningsfé
hins almenna borgara. Því á
ekki að velja einn úr frekar en
annan. Mér finnst ekki stætt á
að gefa mönnum ekki kost á að
reyna sig.
Ég vil hafa allt löglegt og hef
því fengið skipað í skólanefnd,
þó enn vanti fulltrúa sveitar-
félagsins, en um það hef ég
óskað,“ sagði Alma Elísabet
Hansen að endingu.
„Foreldrar athugi hvert
þeir senda börnin sín“
Formaður Tónlistarfélags
Gerðahrepps, Sólveig Björk
Gránz, hafði þetta um málið
að segja:
„Skoðun mín er sú að mér
finnst furðulegt að kennari í
hálfri stöðu við Tónlistarskól-
ann í Garði skuli að hausti, er
innskriftir eru að hefjast,
stofna sinn eigin tónlistar-
skóla og kalla hann Tónlistar-
skóla í Garði og nágrenni. Vil
ég benda fólki í Garðinum á að
athuga vel í hvaða skóla það er
að senda börnin sín.“
„Allir fengu inngöngu“
„Allt frá því Tónlistarskól-
inn í Garði var stofnaður fyrir
10 árum hefur verið góð að-
sókn að skólanum og jöfn
aukning frá ári til árs, eða þar
til á síðasta ári að veruleg fjölg-
un varð. Allir nemendur, er
létu skrá sig á tilskildum tíma,
fengu kennslu, en ekki var
hægt að taka inn nemendur á
miðjum vetri.“
„Sé enga ástæðu
fyrir því að annar
skóli sé stofnaður“
„Alis voru 90 nemendur við
Tónlistarskólann í Garði í
fyrra og það er ekkert sem
bendir til þess að Tónlistar-
skólinn í Garði nái ekki að
sinna öllum þeim íbúum
hreppsins sem hafa áhuga á
tónlistarnámi nú í vetur. Þess
vegna sé ég enga ástæðu til
þess að stofnaður sé annar tón-
listarskóli í Garði. Tónlistar-
skólinn í Garði er rekinn af
Tónlistarfélagi Gerðahrepps
með styrk frá ríki og sveitar-
félagi. Ekki veit ég hvernig
hægt er að reka tónlistarskóla
án þessara styrkja. Ég tel því
að auglýsing Ölmu sé ögrun
við skólann okkar, sem alla tíð
hefur notið mikils velvilja
Garðbúa,“ sagði Sólveig
Björk Gránz, formaður Tón-
listarfélags Gerðahrepps, að
endingu.