Víkurfréttir - 14.09.1989, Síða 15
Sjávarútvegur
15
Yíkurfréttir
14. sept. 1989
Njarðvík:
Kvótalaus til geymslu
Nú á annan mánuð hefur
Eskifjarðarbáturinn Núpur
ÞH 3 legið hundinn við
bryggju í Njarðvík án þess að
nokkuð væri unnið við hann.
Ástæðan er sú að búið er
að veiða upp í afiakvóta
bátsins og því ekjkert íyrir
hann að gera. Er með öllu
óvist um framtíð bátsins, þar
sem hann hefur verið seldur
upp í nýsmíði á Akureyri og
mun kvótinn færast yfir á
það skip.
Núpur ÞH 3 í Njarðvíkurhöfn.
Ljósm.: epj.
Fiskmarkaður
Suðurnesja:
Toppsala
hjá
Skarfi GK
Grindavíkurbáturinn Skarf-
ur GK gerði góða sölu á Fisk-
markaði Suðurnesja í síðustu
viku. Seld voru 73 tonn úr
skipinu fyrir um 4,9 milljónir
króna.
Megin uppistaðan í afian-
um var þorskur og fékkst að
meðaltali 67 krónur fyrir
kílóið af honum. Þá fengust
105 krónur fyrir kílóið af
ýsu.
Meðalverð alls afians sem
boðinn var upp reyndist vera
67,20 krónur á kílóið. Há-
setahlutur úr þessari veiði-
ferð, sem tók átta daga, er 90
þúsund krónur. Er þetta
stærsta sala af einum báti frá
því markaðurinn tók til
starfa.
Harpa II. til
ðlafsvíkur
Fyrirtækið Gullvík í
Grindavík hefur selt annan
báta sinna, Hörpu II, til Ól-
afsvíkur. Báturinn er 36
tonna eikarbátur sem áður
var gerður út frá Grindavík
undir nafninu Faxavík GK
727.
Uppboðið á
Farsæl GK
Grindvíkingarnir, sem
standa að útgerð Farsæls G K
162, hafa haft samband við
blaðið vegna frásagnar um
uppboð til slita á sameign.
Telja þeir að umrætt uppboð
sé ekki til komið vegna þess
að menn hafi ekki verið sam-
mála um verð bátsins, heldur
hafi þetta verið eina leiðin
sem hægt var að fara. Leið-
réttist þetta hér með.
Raðauglýsingar
Tónlistarskólinn
í Keflavík
SKÓLASETNING
fer fram á sal skólans föstudaginn 15. sept.
kl. 17. Aríðandi er að allir nemendur mæti
og taki með sér stundaskrár.
Kennsla hefst mánudaginn 18. sept.
P.S. Enn er hægt að bæta við nemendum á
einstaka hljóðfæri og í söng. Síðustu forvöð
til að sækja um skólavist eru að morgni
föstudagsins 15. sept. frá kl. 10 til 12.
Skólastjóri
Athugið breytt
símanúmer!
Símanúmerinu á barnaheimilinu
Tjarnarseli hefur verið breytt oe er
nú 14204.
Forstöðumaður
Gæsluvellir Keflavíkurbæjar
Gæsluvellir Keflavíkurbæjar við Miðtún og
Heiðarból verða opnir á tímabilinu 15.
sept. til 1. maí frá kl. 13-16 alla virka daga
nema laugardaga.
Baugholts- og Asabrautarvellir verða lok-
aðir frá 30. september.
Félagsmálastjóri
GK 4444
Þetta sérstaka skráningarnúmer má sjá á skipi einu í Sandgerðis-
flotanum, Jóni Gunnlaugs. Við síðustu málningarklössun hefur
GK-skráningarnúmerið á bakborðshlið skipsins verið fært til, en
málningin síðan flagnað af eldra númerinu með þeim afleiðingum
að nú er skipið GK 4444. Á innfelldu myndinni sést betur hvað um er
rætt og þar sést einnig að fimmti tölustafurinn er að koma í Ijós.
Ljósm.: hbb
Atvinna
ATVINNA
Stúlka óskast til iðnaðarstarfa. Vinnutími
8-17. Umsóknir leggist inn áskrifstofu Vík-
urfrétta sem fyrst, merkt „A“.
Beitningamenn óskast
Óskum eftir að ráða menn í beitningu. Upp-
lýsingar í síma 13450.
STAFNES HF.
Brekkustíg 22.
Njarðvík.
Skrifstofustarf
Starfsmaður óskast til almennra skrifstofu-
starfa eftir hádegi. Nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
^Kaupféfag. Su&urneáj.
a
ATVINNA
Starfsfólk óskast í Pulsuvagninn. Vakta-
vinna.
Einnig vantar starfskraft í Kjötbúrið fyrir
hádegi.
Upplýsingar gefur Vilberg í Pulsuvagnin-
^PULSUVflGNINNp